10.10.2017 | 14:42
Hann faldi á sér andlitið
Því gilda lögin um hann.
Þeir bjuggust ekki við þessu?
Sekt við hákarlabúningi vegna búrkubanns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2017 | 07:35
Og hverjir eru þeir auðugustu?
Seinast þegar þau voru við völd voru "þeir auðugustu" allir sem höfðu tekjur. *ALLIR.* Pokadýrin í Bónus fengu á sig extra skatt, vegna þess hve há laun þau fengu.
Vill hækka skatta á þá auðugustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.10.2017 | 15:56
Úr Ford í Citroën
3.10.2017 | 21:44
Stórfrétt: maður notar hugtök rétt
1.10.2017 | 21:02
Ofbeldi er eðlilegur hluti af mannlegri hegðan
Ef þú trúir því ekki, prófaðu þá að svíkja undan skatti, og sjáðu hvað gerist.
Sjálfsvígshætta er mun meiri meðal unglinga sem leggja aðra í einelti.
Ef þolendurnir föttuðu þetta þá gætu þeir aldeilis hagað málum sér í vil.
Þetta kom mér á óvart. Það er greinlega mjög skýrt og stigvaxandi samband á milli þess að leggja aðra í einelti og að hafa þessar sjálfsvígshugsanir og hafa gert þessar tilraunir, segir Ársæll.
Þetta kemur mér reyndar á óvart líka. Nýjar upplýsingar.
... niðurstaða þessarar rannsóknar er ekki ósvipuð sambærilegum erlendum rannsóknum.
Merkilegt.
Við þurfum að höfða meira til foreldra og sérstaklega foreldra gerenda.
Þeir fussa bara á þig.
Þetta eru ekki góð merki og er ekki gott fyrir framtíðarhorfur barnsins þíns ef það er farið að beita þessum aðferðum á þessum aldri. Það eru allar líkur sem benda til þess að þetta vaxi ekki af fólki. Þeir sem beita kúgun og ofbeldi á unglingsaldri eru mjög líklegir til að gera það seinna á ævinni og þá er það nánasta fjölskylda sem verður fyrir þessu, segir Ársæll.
Þess vegna þarf að berja þá vel og innilega á meðan þeir eru enn ungir. Þeir munu ekki skilja, en þeir munu láta þá sem standa í barsmíðunum í friði.
Segja rannsóknir sem ég hef gert.
Kúgun og ofbeldi þarf að mæta með kúgun og ofbeldi.
Ég er ekki Ésu, svo fuck you.
Hann bendir á að flestir foreldrar óttist að barnið sitt verði þolandi í eineltis sem eru skiljanleg viðbrögð.
Fólk þarf að læra. En það gerir það ekki.
Það er líka kvíðvænlegt að það sé gerandi.
Það er ekkert óeðlilegt að foreldri fari í ákveðna afneitun ef það fær þau skilaboð að barnið þeirra leggi aðra í einelti, segir Ársæll.
Þekki amk einn sem væri vel sáttur við að barnið hans væri gerandi frekar en fórnarlamb. Held ekki að hann sé einn um það. Aðrir eru bara að ljúga til að þóknast samfélaginu.
Maðurinn á götunni hefur rangt fyrir sér.
Hins vegar liggur boltinn hjá foreldrum og ábyrgðin er fyrst og fremst þeirra í að ala börnin sín ekki upp í óþverraskap, segir Ársæll.
Börnin verða bara eins og foreldrarnir.
Á síðustu árum hefur dregið mikið úr einelti hér á landi og líðan íslenskra nemenda hefur komið mjög vel út miðað við önnur lönd.
Krakkarnir eru of uppteknir í símanum til að berja hvern annan.
Í starfi sínu með starfsfólki innan grunnskólanna segir Ársæll að enn fyrirfinnist gamlar leifar af þeim hugsunarhætti að sumir krakkar sem skera sig úr bjóði upp á eineltið.
Ja, það eru þeir sem að þrjótarnir ráðast fyrst á.
Það er sömu frasarnir notaðir af fólki í uppeldisstéttunum sem segja að sumir krakkar kalli á þetta.
Þeir eru reyndar til líka. Hef ég séð með eigin augum. En allar gerðir eru til, hvort sem ykkur líkar betur eða verr.
Við fórum öll í gegnum skóla og urðum vitni að þessu eða urðum fyrir þessu. Við sjáum ekki sjálf hvað þetta er óeðlilegt. Það er ekkert til sem heitir eðlilegt ofbeldi, segir Ársæll.
Ársæll veit ekki merkingu orðsins "eðlilegt." Ef allskyns þursagangur í krökkum væri ekki eðlilegur þá væri hann ekki svo algengur að við hefðum ekki öll orðið vör við hann.
Það sem er normalt og það sem einhverjum gaur úti í bæ finnst gott móralskt er tvennt ólíkt.
Gerendur eineltis í sjálfsvígshættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2017 | 14:09
Það fer eitthvað lítið fyrir lýðræðinu þarna úti
Má ekki kjósa um neitt í friði?
Skutu gúmmíkúlum að kjósendum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |