17.9.2017 | 19:23
Vitiði hvað væri best núna?
Ef VG tapaði megninu af fylgi sínu til Flokks fólksins og Pírata.
Ef fólki er alvara með breytingar, þá lætur það það gerast.
Í takt við það sem ég lagði til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2017 | 18:03
Nei, höfum þetta bara svona
Stjórnlaust. Þá kemur þingið engu í gegn - eða það er ólíklegt. Sem er óska-staða fyrir landann.
Það kemur ekkert nýtt uppúr kosningum hvort eð er.
Kosningar eina leiðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2017 | 22:27
"Grænir skattar" bitna á fátækum
VG virðast hata alla.
Eða kannski á rakhnífur Hanlons við? "Never attribute to malice that which is adequately explained by stupidity."
Stangast ekki á við græna skatta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2017 | 17:13
Hahaha!
Bíddu bara þar til skattahækkanirnar valda verðbólgu. Þá verður þessi "tekjuhækkun" að tekjulækkun.
En hey, eru öryrkjar ekki einmitt alltaf að heimta skattahækkanir? Olíugjald? Osfrv? Og þeir fá vissulega meira... þ.e.a.s. áður en verðbólgan kickar inn. 10.000 kall auka er alltaf 10.000 auka, svo það sé á hreinu.
Varð þeirra vilji, sýnist mér.
Gáið að hvers þið óskið ykkur.
Hallar á öryrkja í fjárlagafrumvarpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2017 | 17:09
Ódýrara en að taka taxa, kannski
Svolítil ókurteisi samt.
Sérsveitin leitar manns í Breiðholti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2017 | 23:35
Hvern er hann að kalla viðrini?
Q: Í sumar tókst ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartar framtíðar meira að segja að slá út viðrinið Donald Trump í óvinsældum.
Við getum borið saman SJS og Trump:
1: það er hægt að rekja hvernig Trump komst í embætti. Enginn skilur hvernig SJS komst í embætti.
2: Trump hefur á stuttum tíma gert hluti af viti. Á löngum tíma hefur SJS unnið eingöngu tjón.
3: Trump hefur meira fylgi en SJS.
Það er margt meira, en ég er að fara að sofa, svo fokkit.
Q: "Hann sagði ríkisstjórnina einnig hafa slegið Íslandsmet í ódugnaði og verkleysi,"
Það er jákvætt. Sjáið bara hvað gerist þegar þeir koma einhverju í verk: skattahækkanir sem renna beint í RÚV.
Best væri ef ríkið kæmi engu í verk.
Q: "...hefði meðal annars velt á undan sér grafalvarlegum aðsteðjandi vanda sauðfjárbænda."
Ekki þeim að kenna. Ekki að þeir séu á leiðinni að fara að laga það, en... ekki þeim að kenna. Svo rétt sé rétt.
Q: "Hann spurði til hvers væri verið að ljósleiðaravæða dreifbýlið ef menn ætluðu á sama tíma að horfa á sveitirnar tæmast."
Af hverju er það ekki prívat-aðgerð?
Q: "Í stað þess að reyna að fá bændur til að bregða búi ætti frekar að semja við bændur um að draga tímabundið úr framleiðslu gegn því að þeir myndu búa áfram í sveitunum."
Flestir væru fyrior löngu búnir að bregða b+ui ef allt væri eðlilegt.
Q: Áframhaldandi hægri sveltistefna.
Vildi ég að svo væri. SJS er greinilega ekki í sama veruleika og við hin.
4: Trump er í sama veruleika og við hin.
Q: Nú er forsætisráðherra farinn að óttast hrun. Hví skyldi ekki formaður Sjálfstæðisflokksins vera að farinn að óttast hrun?
Bjarni ben má eiga það að hann er raunsær.
Q: Hann lauk ræðu sinni á þessum orðum: Við þurfum að losna við þessa ríkisstjórn , hún er liðónýt, og vonandi tekst það í vetur.
Við höfum slæma reynzlu af því að losna við vondar ríkisstjórnir. Við af þeim taka alltaf aðrar verri. Miklu verri. Eins og til dæmis sú sem SJS var í. Nazistar hefðu verið skárri.
Reyndar... (samkvæmt kosningavitanum ætti Hitler að kjósa VG)
Óvinsælli en viðrinið Donald Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2017 | 16:16
Þeir gætu sparað meira:
Frumvarp til járlaga 2017: https://www.althingi.is/altext/146/s/0001.html
Við rekum fjölmiðil sem gerir ekkert annað en að útbýta áróðri og sænskum og breskum sjónvarpsþáttaseríum. 3.7 milljarðar, takk fyrir, og fer hækkandi.
Við borgum bændum til þess að þeir geti verið ósamkeppnishæfir og fátækir. Það er iðnaður sem er útghjöld, en ætti að vera innkoma, ef allt væri eðlilegt.
Við borgum fyrir "menningu" fyrir fáeina sérvitringa. (Íslenska Óperan fær 170 milljónir. Menning!)
Hér hafa verið stofnaðir og stækkaðir þjóðgarðar til þess eins að því er virðist að búa til útgjöld.
Og það er meira. Það er allskyns hringavitleysa í kerfinu sem fólk er skíthrætt við að breyta.
Við erum í mjög öfundsverðri stöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2017 | 15:35
Á sama tima...
... tökum við við endalausum straum af flóttamönnum án þess að tékka á hverjir þar eru á ferðinni.
Varnarmál!
Útgjöld til varnarmála hækka um 22% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2017 | 15:30
Þetta hefðu þeir geta sparað okkur
Fyrir hvern er þetta gert?
Ekki mig.
Ekki neinn sem ég þekki.
Útvarpsgjald hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2017 | 15:28
Það er svo margt sem þeir hefðu geta sparað sér í staðinn
"Breytingin er talin munu skila ríkissjóði um 1,7 milljörðum á árinu í auknar tekjur."
Og lífskjararýrnun fyrir þá sem hafa lægstar tekjur í réttu hlutfalli við það. Hvort sem þau eiga bíl eða ekki.
Er ég viss um að þau kunna ríkinu eingöngu þakkir fyrir.
Bensín og dísil hækka um 8 og 18 kr. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |