28.11.2014 | 07:49
Svo þetta er uppistaðan í liðinu
Ekki að undra að þeir séu slappir bardagamenn, allt bótaþegar.
Vígamenn á atvinnuleysisbótum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2014 | 13:51
Hvað með það?
Við erum ekki beint nógu merkleg til þess að nokkur nenni að standa í hryðjuverkum hér.
Og jafnvel þó einhver nennti því:
Norðmenn hafa allt þetta sem þeir eru nú að heimta. Ekki dugði það þeim þegar Breivik fór á stjá.
Svo tek ég eftir að þeir hafa frekar takmarkað ímyndunarafl.
Bara ett dæmi: ef einhverri Breivik týpu dytti í hug að eitra fyrir stórum hóp? Þeir myndu ekki verða þess varir fyrr en eftirá.
Allar þessar rannsóknarheimildir gera ekkert fyrir okkur.
Hryðjuverkavarnir takmarkaðar hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.11.2014 | 13:41
Mér lýst vel á þetta
Það mætti samt alveg verða verðhjöðnun.
Það er ekki eins og það eimi ekki vel eftir af kreppunni ennþá. Mínus-verðbólga myndi alveg bjarga því.
Svo: gleðjumst fyrir hönd allra sem hafa verðtryggð lán.
Þetta er sjaldgæft og endist ekki lengi.
Bregðast þarf við 1% verðbólgu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.11.2014 | 13:37
Nú? Fóru fram réttarhöld fyrst?
Það hljóta þá að vera til pappírar um þetta, hvað maðurinn hafði sér til sakar unnið og svoleiðis.
Aftaka í Stokkhólmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2014 | 23:32
Allir vírusar eru ólæknandi
Maður verður bara að bíða þá af sér, þola þá ævilangt, eða deyja úr þeim.
Ólæknandi vírus greinist í Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2014 | 22:05
Getum við drukkið meira?
Kannski.
En við munum þá líklega drekka betur.
Einkavæðingu fylgir aukin neysla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2014 | 18:54
Af hverju ekki?
Kettir eru búnir til úr kjöti, svo...
Því ekki borða þá?
Hvað eiga einhverjir pjakkar með að segja öðrum hvað þeir mega og mega ekki borga?
Svisslendingar fái ekki að éta jólaköttinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2014 | 18:19
En það eru þegar meira en næg útgjöld
Milljarðar af þeim, nú þegar. Sem enginn sem ég þekki nýtur góðs af.
Ný útgjöld kynnt á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2014 | 17:28
Ágætis hugmynd
Það er sniðugt að hafa sérverzlanir. Alveg sérstaklega fyrir sérvizkuleg hobbý eins og viskýdrykkju.
Ja, eða brennivín almennt.
Ég hef séð sérverzlanir með brennivín í öðrum löndum:
Í Ungverjalandi, Írlandi... í Bandaríkkunum var það svona drive-through sjoppa.
Vilja sérstakar vískiverslanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2014 | 07:08
Meira hlýtur að koma til
Ég meina, þetta er að meðaltali 6000 kall á mánuði sem fólk sparar.
Egill hjá Brimborg er með betri kenningu:
"Vöxtinn í sölu nýrra bíla til einstaklinga undanfarnar 16 vikur má rekja til bætts efnahagsumhverfis, sterkari krónu, aukins kaupmáttar og meiri bjartsýni einstaklinga. Þá er almennt komin mikil þörf á endurnýjun bílaflotans."
Leiðréttingin eykur bílasölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |