Þeir misskilja:

"Þeir eru kannski að prófa ein­hver vopn en af hverju? Það er ekki vegna þess að þeir vilji heims­yf­ir­ráð og ekki vilja þeir fara aft­ur í stríð."

Hvar heyrðu þeir að NK stefndu á heimsyfirráð?  Hver sagði þeim félögum það?  Það hef ég aldrei heyrt. 

"Þeim er ógnað."

Nei.  Þessar ógnir þeirra eru til heimabrúks. 

"Þeim er ógnað vegna þess að Banda­ríkja­menn, Suður-Kór­eu­menn og Jap­an­ir eru með stríðsæfing­ar í kring­um landið þeirra í aug­sýn á hverju ári."

Það er vegna þess að þeir treysta NK jafn langt og þeir geta hent þeim.  Og Kínverjum, en þeir fara meira leynt með það.

"Þeim er enda­laust hótað og það sem er birt í er­lend­um frétt­um er 50% bull og 100% ýkt."

Karma. 


mbl.is Alveg bannað að krumpa foringjann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er að hugsa:

Áður en þið lesið þetta, passið uppá að kveikja á heilanum og slökkva á tilfinningunum.

Tilbúin?

Okey: 

Hanna Birna lendir í því að einhver vinnufélagi hennar snowdenar upplýsingum frá henni, og allt verður vitlaust.

Það  er vegna þess að það er víst ólöglegt að opinbera það sem teljast vera persónuupplýsingar, sama hvernig, og Hanna ku bera ábyrgð á undirmönnum sínum.

Lögin eru ekki nákvæmlega þekkt almenningi, sem hefur almennt ekki nennt að fletta þeim upp.  Ekki hef ég nennt því.  Ekki veit ég hver viðurlögin eru skv lögum, og ekki þú heldur, grunar mig. 

Allt verður vitlaust á eftir.

Færeyskt fiskiskip bilar og verður að leggja að bryggju á íslandi.  Það hefur verið að veiða úr sameiginlegum stofni villidýra, sem gerir þann verknað ólöglegan.

Alveg örugglega ólöglegan. 

Hluti af viðeigandi lögum hefur verið birtur hér á MBL, og útskýrir allt vel.  Ekki veit ég samt hver viðurlögin eru skv lögum, og ekki þú heldur, grunar mig.

Allt verður vitlaust.

Munurinn er, að í fyrra skiptið vill fólk að meintur lögbrjótur taki einhverjum viðurlögum - en í seinna skiftið vill fólk að hafnaryfirvöld brjóti lögin beint.  Örugglega án viðurlaga.

Ég sé hér að fólk almennt sér ekkert athugavert við að brjóta sum lög.

Hvað kemur til? 


Sem er lögbrot

Að báturinn er við höfn er líka lögbrot.

Svo ég spyr:

Fyrst við erum að brjóta þessi lög, af hverju göngum við ekki alla leið í því, og kaupum af þeim allan aflann?

Það virðist mér vera góð hugmynd.

Eru viðurlög? 


mbl.is Fá olíu og vistir ef þörf krefur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vissi það!

Mig hefur alltaf grunað að Hello Kitty væri vera utan úr geimnum!

hello-kitty-in-space-feature

 


mbl.is Hello Kitty er ekki kisa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn er....

að í Norður kóreu er þetta löglegt og eðlilegt, á meðan svo er ekki í USA, þess vegna fer allt í keng þar.
mbl.is Bandaríkin „grafreitur mannréttinda“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of dýr miðað við allt.

Toyota hef­ur sett á markað nýja gerð Yar­is-smá­bíls­ins ...  Víst er það satt að breyt­ing­arn­ar eru þónokkr­ar, aðallega á út­liti bíls­ins en þó einnig á und­ir­vagni.

Grunar mig að það hafi verið sóun á tíma og peningum. 

Aug­ljós­asta breyt­ing­in er þó að fram­an,...Verst bara hvað risa­stórt loft­inn­takið minn­ir mann á yf­ir­vara­skegg eins og á litl­um Mexí­kana.

Andele andele, arriba!  (Hvað sem það nú þýðir.)

Næsta kyn­slóð Yar­is verður reynd­ar fram­leidd í Mexí­kó

Ég átti einu sinni mexíkanskan bíl.  Hann lak.  Öllu. 

þegar þar að kem­ur sam­hliða nýj­um Mazda2, og þá munu þeir bíl­ar nota Skyacti­ve-vél­arn­ar frá Mazda, en það er framtíðar­mús­ík.

Nei, *þetta* er framtíðarmúsík: https://www.youtube.com/watch?v=9a_lOcavDwI 

Toyota lagði nokkra vinnu í end­ur­hönn­un á und­ir­vagni bíls­ins sem er stífari en áður.

Sem er algjörlega tilgangslaust, með það í huga að þessi ökutæki ná ekki einusinni 100 km/h niður brekku. 

Það finnst vel í akstri hvað bíll­inn er skemmti­legri og ligg­ur bet­ur þótt hann virki ör­lítið hast­ari á hraðahindr­un­um.

Og af hverju höfum við meira af en nokkuð annað land á jörðinni, og þó víða væri leitað?  HRAÐAHINDRANIR! 

Nýr Yar­is Hybrid er sá hrein­asti í sín­um flokki

Minnir mig á að ég þarf að ryksuga bílinn minn að innan bráðlega. 

kol­efn­is­gildi hans er aðeins 75 g á km.

Af hverju má ekki borða fíflin sem fundu upp þetta "kolefnisgildi?"  Það er ekki hæft til annars en manneldis.  Eða sem dýrafóður, ef allt fer a versta veg. 

Vél­in er 1,5 lítra

Hah!  Minn er 1600.  Gerið betur en þetta. 

Í tvinnút­gáfu er hann aðeins fá­an­leg­ur með CVT-sjálf­skipt­ingu

Why bother? 

Þegar hon­um er ekið ró­lega eyðir hann hins veg­ar mjög litlu enda raf­mótor­inn að hjálpa til.

Hey, minn bíll eyðir mjög litlu, þó hann hafi engan rafmótor og sé talsvert þyngri, ekinn meira en 200K og sjálfskiftur.  Vegna þess að hann er Honda.  Sem er miklu betri bíll í alla staði. 

Hægt er að stilla á rafstill­ingu ein­göngu í um það bil tveggja kíló­metra akst­ur á hraða und­ir 50 km á klst.

Það kemur mér varla út í búð.  Og ég er í eyjum. 

Búið er að færa bæði raf­hlöður og bens­ín­tank und­ir aft­ur­sæt­in og þess vegna er óhætt að segja að Yar­is er rúm­góður fyr­ir smá­bíl að vera.

Bíllinn er rúmgóður vegna þess að a það eru rafhlöður undir aftursætunum á honum.

Það var og.

og það er "af smábíl að vera" eð ekki "fyrir smábíl..." 

Pláss fyr­ir farþega í aft­ur­sæt­um er þokka­legt og mun­ar þar mest um gott höfuðrými og flatt gólfið.

En ekki hið illa höfurými og mishæðótt gólf gamla Yarisins. 

Fóta­rými er þó af skorn­um skammti ef þeir sem frammi í sitja þurfa sitt pláss. Mesta plássið er þó í fram­sæt­um sem eru bara nokkuð þægi­leg þrátt fyr­ir að vera í minna lagi.

Af hverju ætti maður að taka þennan bíl fram yfir Ford Fairmont? 

Það er reynd­ar dá­lítð langt að teygja sig í stýri og stjórn­tæki hægra meg­in við stýrið.

Er annað stýri?  Af hverju? 

Ein­hverra hluta vegna er mjög stutt­ur aðdrátt­ur á stýri

Ef ég bara vissi hvað það væri... 

... efn­is­val í inn­rétt­ingu er betra en áður.

Ef það er ekki viðarpanell á mælaborðinu og shag-teppi á hurðunum, þá er ekki gott efnisval þar. 

Bakk­mynda­vél, loft­kæl­ing og blát­ann­ar­búnaður er allt staðal­búnaður til að mynda.

Þarf það eins og gat á hausinn. 

Til dæm­is er hún ennþá tæpri hálfri millj­ón dýr­ari en best búna Fiesta sem hægt er að fá.

Þá er augljóst að maður ætti frekar að fá sér svona Fiestu. 

Betra er þá að miða við grunn­gerðir bíl­anna, en þar mun­ar tals­vert minna. Toyota Yar­is er í grunn­inn á 2.690.000 kr. en ódýr­asta Fiest­an er á 2.450.000 kr. Mazda2 er ennþá ódýr­ari á aðeins 2.190.000 í sinni ódýr­ustu út­færslu.

Og Chevy Cruze, sem er einum klassa fyrir ofan er einungis 200K dýrari.  Og þá færðu stærra skott, meira pláss og stærri vél.  Sem er ekki hybrid, sem er betra.


mbl.is Sparibaukur sem á sér fáa keppinauta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira fyrir peninginn

Það kostar ekkert meira að fara til meginlands Evrópu en að fara til Akureyrar (framborið Agureyri).

Gisting á einhverju hóteli sem manni dettur í huga að bara mæta á hvar sem er í evrópu kostar minna en gisting sem maður hefur fyrir því að panta á islandi með fyrirvara.  (Með undantekningu... einni sem ég veit af - hugsanlega fleiri, en hey... veit bara um eina.)

Ef maður hefur ekki ákveðið að skreppa til Köben, er verðlag allstaðar lægra en hér heima.  Á öllu.  Mat, drykk, bílaleigubíl, jú neim itt.  Þetta á sérstaklega við um Þýzkaland.

Og talandi um Þýzkaland:

Líkurnar á að vera böstaður fyrir að aka eins og maður eru engar.  Það er allstaðar hægt að fá jagermeister, og bjór er ódýrari en gos.  Og maturinn er æðislegur.


mbl.is Íslendingar meira til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hentug stærð

1967 Plymouth Valiant er sennilega hentugasti bíll sem framleiddur hefur verið.

Ekki of lítill, nóg pláss, þolanlega stórt skott.  Passar í öll stæði.  Við þyrftum eiginlega að fá mótin af þeim bíl og fara að smíða þannig bíla hér á landi.  Gætum haft í þeim annaðhvort orginal slant6, sem eyðir ekkert sérlega miklu, eða eitthvað nýrra, eins og td 2 lítra Toyota, eins og var í Carina, eða eitthvað í þeim dúr.

En nei...

Hér á landi virðumst við aka annað hvort A: hræbillegum bíldruslum af verstu sort, því það eru ódýrustu bílarnir; Chevy Cruz og þaðan af verra sem berst til okkar með magnkaupum frá bílaleigum; eða B: forljótum, rándýrum, en ekkert sérlega góðum jeppum.  Eins og Landcruiser.  Vegna þess að plebbar með peninga eru fífl.

Sumir segja að Range Rover séu góðir... jæja, bíðið þar til þeir byrja að bila. 

Örfáir sérvitringar fjárfesta í góðum bíl. 

Þetta gerist af skattaástæðum - sem sagt, sömu ástæðum og Ford F150 er vinsælasti bíllinn í USA.  Lög & reglugerðir beina fólki í þetta.  Óbeint.

Danir hafa það helvíti skítt núna, að þurfa að sætta sig við vita-kraftlausar véltruntur eins og Skoda Oktavia, en það þurfum við líka.

En, Danir hafa hærri ráðstöfunartekjur en við... 


mbl.is Danir aftur í millistærðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýkir morði við dráp

Sumir hlutir eru líkir því sem þeir eru.
mbl.is Líkti aftöku Foley við hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stíll er líka mikilvægur

„Það eru litl­ar sjá­an­leg­ar breyt­ing­ar á hon­um eins og alltaf hjá Porsche en meira um vert það sem er und­ir niðri.

Meira um... hvað?

Manni, lestu þetta upphátt. 

Hann er lík­ari Macan, með grimm­ara út­lit og aukast hest­öfl í 262

Það er eitthvað rangt við þetta... 

og togið fer úr 550 Newt­on­metr­um í 580.

Fer úr? 

Eins lækk­ar upp­tak í hundraðið úr 7,6 sek­únd­um...

lækkar upptakið?  Hvað?  Maður verður að skilja þetta út frá samhenginu.

...en eyðsla í blönduðum akstri verður sex lítr­ar.

Á hundraðið, vonum við. 

Þessi bíll verður 13.990.000 kr.

Really? 

"Það er aldrei logn­molla hjá Benna þegar kem­ur að því að kynna nýja bíla."

*facepalm* 

"„Minni jepp­ar sem eru sjálf­skipt­ir eru marg­ir orðnir fram­hjóla­drifn­ir en þessi er fjór­hjóla­drif­inn"

Ef það er ekkki fjórhjóladrifið er það ekki jeppi.  


mbl.is Nýr Cayenne og tvö ný merki hjá Bílabúð Benna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband