31.1.2015 | 14:58
Fæstir leggja í pappírsvinnuna
Og þegar upp er staðið er hún ekki þess virði - það sem stóð til að gera verður í mínus vegna reglugerða.
Á hinn bóginn stendur til að búa til meiriháttar batterí sem á að rukka fólk fyrir að horfa á fjöll og fossa.
Það er einmitt ekki framleiðandi iðnaður, og mun ekki skila neinu auka til ríkisins, heldur ver kostað af þeim landsmönnum sem enn eru eftir og nenna að vinna.
Skortir tækifæri á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2015 | 17:40
Sennilega bara jákvæð fylgni
Ef bíltegundin er sú algengasta á götunum, verður henni líklegast oftast stolið líka, bara í réttu hlutfalli við fjölda.
Meikar sens.
Ford F-150 stolið mest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2015 | 15:35
Ekki hægt að mynda sér skoðun út frá þessu myndbandi
Það er nefnilega svo mikið ritskoðað.
Lögregla skýtur stúlku til bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2015 | 17:43
Ef pólitíkus segir að eitthvað þurfi ekki...
27.1.2015 | 19:17
Ódýrari en Corolla
Ford Fiesta:
Ford.co.uk: £10,145
Ford.com (USA): $13,965 - $20,945
Ford.de: 13.400 eu.
Brimborg: 2.390.000 kr
Toyota Corolla:
Toyota.com (USA): $16.900
Toyota.co.uk: ekki til.
Toyota.de: 18.690 eu.
Toyota.is: 3.530.000.
Þess vegna er Ford Fiesta vinsælli en Toyota Corolla.
Lítil en öflug vél í hagkvæmum bíl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2015 | 18:57
Er það já?
Vitnum í fyrri frétt um sama mál... en fyrir Frakkland allt:
http://www.mbl.is/bill/frettir/2015/01/26/banaslysum_fjolgar_a_ny/
Gæti það verið?
Fljótari á minni hraða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2015 | 15:05
Er það sjaldgæft?
Ég stóð í þeirri meiningu að morð væri framið á hverjum degi í Sviss, lágmark.
Eða er fréttin að maðurinn notaði belti, en ekki eitthvað annað? Svo það er þá sjaldgæft?
Eða það að hann henti líkinu í ána... sem er þá væntanlega næstum aldrei gert... eða hvað?
Eða var þetta kannski þekktur maður í Sviss?
Myrti eiginkonu sína með belti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2015 | 14:57
Vörurnar mega ekki vera betur merktar?
Bandaríkjamenn merkja allt betur á allan hátt en evrópumenn.
Hvað nákvæmlega við það er svo ó-æskilegt?
Reglur um merkingar stoppuðu Costco | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2015 | 16:26
Svo þangað fóru allir peningarnir okkar
Ég var að velta fyrir mér hvernig þetta 1% gat allt í einu átt 6% stærri hlut af heildarkökunni án þess að eiga neitt verðmætari eignir.
Stórfelld svik og blekkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2015 | 16:20
Þau skilja þá ekki merkingu orðsins
Mikið finnst mér orðið af fólki sem ekki skilur tungumálið sem þá á að kunna. 23%? Kemur ekki á óvart.
Þó svo að maður fái gjafir í staðinn fyrir kynlíf þarf það ekki að vera vændi.
Það er skilgreiningin á vændi samt.
Charlotte Fuglsang, forstöðumaður kvennaathvarfsins Reden København segir mörkin hafa færst til í hugum ungs fólks vegna færni þeirra í notkun net- og samfélagsmiðla.
Eða þau vita ekki hvað orðið "vændi" þýðir. Og skilur heldur ekki hugtök eins og "greiðzla."
Það er greinilegt að ungu fóli finnst ekki eins að fá til dæmis iPhone eða tösku fyrir kynlíf eða peninga, segir Fuglsang.
Þau eru vissulega fól, held ég.
Hún segir það að taka á móti gjöfum í skiptum fyrir kynlíf vera vændi þó svo að það sé á gráu svæði.
Hvort er þá meira vændi að stunda kynlíf fyrir evrur eða dollara?
Mogens Holm Sørensen sem er ráðgjafi í vændismálum fyrir dönsk félagsmálayfirvöld segir þó óljóst hvar gráa svæðið hefst og endar hvað sé í raun vændi.
Mogens er moðhaus.
Bendir hann á að kynlíf geti einnig verið gjaldmiðill fyrir að komast inn í ákveðinn vinahóp eða fyrir vernd.
Er greiðzla á öðru formi ekki líka greiðzla?
Er kynlíf fyrir iPhone vændi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |