29.10.2015 | 00:46
En RAV4 er með bensínvél
RAV4 með dísel er traktor, minnir dáldið á Landrover, að mörgu leiti.
Með bensínvél er það stórskemmtilegur bíll, toppaður aðeins af Lexus NX. Sem er stórlega alltof dýr rallýbíll.
Af hverju ætti maður frekar að kaupa inferior vöru (dísel) ef maður getur fengið superior vöru fyrir aðeins minna?
Meiri búnaður og munaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2015 | 17:16
Svaka rebel, á gamals aldri
Ég hef þokukenndar hugmyndir um hver þetta er, en, hey: þegar fólk er farið að hafa fyrir því að reyna að þagga niðri í henni fyrir að tjá skoðanir sínar, þá hlýtur hún að vera að segja eitthvað merkilegt.
(Mínar heimildir herma að ÚS sé tal-útvarpsstöð, einskonar non-stop "þjóðarsál," þar sem inn hringja menn sem vilja tala um vísitölur. Hvað er svona stuðandi við það?)
Brotist inn á vef Útvarps Sögu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2015 | 15:55
Um yfirvofandi kosningar í USA
Það eru fleiri í framboði en bara Trump & Hillary.
Demókratar hafa 4 frambjóðendur:
Hillary, Sanders, Lessing & O'Malley.
Hverjir það eru:
Við þekkjum Hillary, hún stendur fyrir stórfyrirtækin í landinu.
Sanders segist vera sósíaldemókrati. Sem þýðir að hann er basically fasisti.
Lessing er... einhver gaur. Ég finn ekkert slæmt um hann, svo... já.
O'Malley er Teflon-búálfurinn. Hann er svona eins og núverandi borgarstjóri RKV þá.
Repúblikanar státa af 15 frambjóðendum: https://en.wikipedia.org/wiki/United_States_presidential_election,_2016#Republican_Party
Þeir þekktustu eru:
Trump: einn ríkasti maður í heimi og alhliða rugludallur.
Rick Santorum: þingmaður. Trúmaður og leftisti.
Rand Paul: hægrimaður.
Georg Pataki: Fyrrv. Borgarstjóry NY. Fyrir Santorum það sem svart er fyrir hvitt.
Huckabee: sjónvarpsmaður á FOX, sem er rás sem er svona svipað áreiðanleg, kannski aðeins áreiðanlegri en íslenskir fjölmiðlar almennt. Á maður að treysta fjölmiðlamönnum?
Bush: Florida-man.
**
Tveir aðrir sem ég tek eftir en enginn hefur heyrt um:
Carly Fiorina: CEO hjá Hewlett Packerd. Sem þýðir hún getur eitthvað. Svolítið Púritönsk.
og:
Ben Carson. læknir. Ef þér líkar ekki við Fiorina, þá er þessi á allt annarri línu.
"Aðrir"
19 manns, þar eru nafnkenndir:
Macafee: þið vitið hver það er.
Rosanne Barr.
Veit ekkert hvað þau standa fyrir. En... líkurnar á að þau komist inn eru litlar.
25.10.2015 | 15:37
Hvaða þjóðarmorð?
25.10.2015 | 15:36
Búast menn ekki við að fólk aðlagist breyttum aðstæðum?
Loftslagsbreytingar næstu áratugi munu ekki aðeins koma illa við efnahag þjóða heimsins heldur mun verðmætasköpun einnig færast frá heitari stöðum á jörðinni til hinna kaldari.
Það, A: gerir ráð fyrir því að þjóðir í heitum löndum aðlagist ekki, af einhverjim orsökum, og B: eru jákvæðar fréttir fyrir okkur.
Rannsakendur [...] fundu [...] út að kjörhitastig fyrir menn til að framleiða vörur, svokallað Gullbrár-hitastig, er 13 gráður.
... allar vörur? Það held ég ekki. Annars yxi fátt í Kína.
Hveiti og bygg, kannski, en ekki allt. Eitthvað er spúkí við þessa útreikninga hjá þeim.
Þegar framtíðarspár um loftslagsbreytingar eru metnar með hliðsjón af þessum upplýsingum,
Sem mig grunar sterklega að séu rangar.
Búist er við að loftslagsbreytingar muni bitna mest á Mið-Austurlöndum, Afríku, Asíu og Suður-Ameríku. Íbúar landa í þessum heimshlutum búa þegar við hita sem er hærri eða jafnhár Gullbrár-hitastiginu. Mun framleiðsla þeirra því aðeins minnka eftir því sem hitastig heimsins hækkar, segja rannsakendur.
Ef þeir fá jafnmikinn raka og áður (sennilega samt meiri, vegna hlýnunar) þá ætti að hlaupa vöxtur í þetta allt hjá þeim, ekki öfugt.
Það kom fyrir í Mið-Ameríku á tímum Mayanna. Allt óx.
En, menn vilja standa á götuhorni með skilti þar sem á stendur "heimsendir er í nánd."
Ísland hagnist mest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2015 | 14:05
Hefur hann verið að fylgjast með okkur?
22.10.2015 | 17:48
Frakkar eru moðhausar
Af hverju má þetta ekki gerast af sjálfu sér?
Ef ríkið hefði ekki verið að vasast í þessu frá upphafi þá væri ekki þetta vesen til að byrja með.
U-beygja gagnvart dísilbílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.10.2015 | 17:42
Veit nú ekki hversu vísindalegur þessi er...
Meira svona tölfræðilegt meðaltal.
Lítur út eins og sambland af Ferrari Dino og Jaguar XJ220, reyndar.
Annars grunar mig að frummyndi hins breska bíls sé Austin 7. Ekkert annað passar með góðu móti á vegina hjá þeim.
Vísindalega góður bíll en hörmulegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2015 | 23:10
Hve mikið af þessu eru hótel?
Bara spyr.
En að öðru:
Man einhver eftir minkaeldinu í gamla daga?
Ekki til íslenskt vinnuafl í þetta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2015 | 18:36
Einföld útskýring
Þeir sem skrifa þessar skýrzlur eru bara vitleysingar.
"Síðasta skýrslan fær ákaflega lága einkunn en hún er talin mun ólæsilegri heldur en t.d. nokkrar lykilritgerðir í eðlisfræði eftir Albert Einstein"
Ég hef lesið fræðigrein eftir hann, og sá texti var með eindæmum auðskilinn.
"Fréttaumfjöllun hefur haldið svipuðum læsileika öll árin en notar talsvert tilfinningaríkara mál til þess að lýsa innihaldi hennar og hefur orðið svartsýnni með tímanum."
Þar er um að kenna hrakandi fagmennsku. Það eiga ekki að vera tilfinningar eða skoðanir í fréttum. Bara staðreyndir.
"Stjórnmálamennirnir sem henni er ætlað að upplýsa eru sjálfir viðriðnir skrif hennar,"
þetta er ekki vísindalegra en það.
Loftslagsskýrslur SÞ ólæsilegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |