31.3.2015 | 17:26
Það eru 500K *fyrir skatt*
Eftir skatt lítur dæmið ekki alveg jafnvel út.
En samt, vel af sér vikið. Þetta eru gaurarnir sem halda ríkinu gangandi. Öllum utanlandsferðunum, öllum blýöntunum sem þarf að naga...
Helmingur með yfir hálfa milljón á mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2015 | 16:26
Menn verða að hafa áhugamál
Annars verður lífið leytt.
En sumum finnst náttúrlega gaman að leiðast. Og mörgum þeirra finnst að öllum öðrum ætti að leiðast með þeim.
Fólk virðist ekki skilja áhugamál. Skrítið.
"Þeir fimmtán repúblikanar sem helst hafa verið nefndir sem mögulegir forsetaframbjóðendur flokksins á næsta ári eiga að minnsta kosti fjörutíu skotvopn samanlagt."
Það er ekki mikið. það gefur bara til kynna svona casual áhuga.
"Nær allir eru þeir alfarið á móti hertum reglum um skotvopnaeign."
Auðvitað. Ef þú værir til dæmis golfari, þá værir þú ekkert að lobbýa fyrir hertum reglum um golf.
"The Washington Post fjallar um skotvopnaeign vonarstjarna Repúblikanaflokksins."
Washington post eru ekki alveg með hlutina á hreinu:
"Former Texas governor Rick Perry is so well-armed, he has a gun for jogging."
Er það skilgreiningin á því að vera vel vopnaður?
Jæja?
Svo kemur þessi gimsteinn hér:
"Real estate tycoon Donald Trump owns two pistols, a Heckler & Koch .45 and a Smith & Wesson .38.
Even though he is Donald Trump, and he often travels with bodyguards."
WP fellur í rökfræði að eilífu.
"Þannig á öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey O. Graham tólf skotvopn, þar á meðal AR-15-hríðskotabyssu..."
AR-15 er varmint-riffill. Alveg nákvæmlega eins og t.d. Tikka T3. Nema Hálf-sjálfvirkir. Herinn notar ekki einu sinni AR-15 sem hríðskotabyssur. Menn fá ekki margar vikna þjálfun til þess að úða blýi út í loftið.
Ólíklegt verður því að teljast að lög um skotvopnaeign verði hert í Bandaríkjunum ef fulltrúi repúblikana sigrar í forsetakosningunum 2016 þrátt fyrir að heitar umræður hafi skapast í landinu eftir fjölda blóði drifinna skotárása í skólum og öðrum opinberum stöðum undanfarin ár.
Skotvopnum fjölgaði gífurlega vegna fjölda skotárása *þar áður,* og það er þekkt (sjá James Holmes) að *hugsamnleg tilvist,* ekki nauðsynlega *raunveruleg* tilvist skotvopna hafi fælt skuggalega menn frá.
Viljiði íslenskt tilvik?
Skansinn, way back in the tyrkjarán. Þar var fallbyssa, og hún var það sem skifti máli. (Það var reyndar enginn við hana, en það vra víst nóg að það væri byssa. Þessir sjóræningjar eru svo hrikalega anti-gun eitthvað.)
Það er það sem kaninn er að hugsa.
Og svo er fólk hér á Íslandi að hafa áhyggjur af því hvað einhverjir menn í USA eiga margar byssur...
Verið bara ekki að plotta nein innbrot hjá þeim, og þá verða engin læti.
Þungvopnaðir frambjóðendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2015 | 18:42
Það er víst mjög auðvelt að leggja fram lög í Kaliforníu
Það eina sem þú þarft er að skila inn nokkrum pappírum og borga 200 dollara.
Hugsum okkur hvernig það væri hér ef það eina sem þyrfti til að leggja fram lög væri smá pappírsvinna og 30.000 kall.
Vill myrða samkynhneigða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2015 | 16:08
Svolítið dýrt kerfi
Maður veltir fyrir sér hvort ríkið kæmi ekki út í plús ef þeir einfaldlega hættu með tollana.
Alveg.
Fagna endurskoðun tollakerfisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2015 | 16:06
Þurfti þess?
Er ekkert "það" í sænsku? Athugum þetta: (google translate) Jú: "det."
Nýju fornafni, sem er hlutlaust hvað varðar kyn,
Á Íslensku:
Nýju fornafni, sem er hvorugkyns,
Þumalputtareglan er: ef þú segir/skrifar "það varðar" þá þarftu að hugsa setninguna aðeins betur. Það gerir hana bara skiljanlega.
Hen má nú nota í stað han eða hon,
"Hen" er líka japanska fyrir "skrítið."
til að vísa til persónu án þess að gefa kyn hennar til kynna.
... þetta þarf vegna þess að...?
Hen var upphaflega kynnt til sögunnar á sjöunda áratug síðustu aldar, m.a. í viðleitni til að einfalda tungumálið. Orðið náði hins vegar aldrei fótfestu.
Auðvitað, þá var svo fátt hvorugkyns fólk. En nú eru vélmenni um allt.
Það gekk í endurnýjun lífdaga um aldamótin, þegar transfólk tók það upp á arma sína og hefur notkun þess aukist mjög síðustu ár.
Og transfólk.
Það má nú finna í opinberum gögnum, dómsúrskurðum, fjölmiðlaumfjöllun og bókmenntum, og hefur tapað þeirri feminísku skýrskotun sem það eitt sinn hafði.
Það var þegar feminismi var ekki blótsyrði sem þýddi "rauðsokka." Sennilega á þeim tæíma þegar "feminismi" var byrjaður að breytast í blótsyrði.
Hen verður ekki eitt nýyrða í orðabókinni sem kemur út 15. apríl nk., en þau verða alls um 13 þúsund talsins.
Hmm... meðal-maðurinn kemst af með kannski 2000 orð. Jafnvel færri.
Kynhlutlaust fornafn í orðabókina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2015 | 07:35
En er eitthvað raunverulegt á bak við ógnina?
Bara spyr. Eðlileg spurning.
En skoðum nánar:
Hryðjuverkaógnin hefur aldrei verið jafn mikil í Frakklandi og nú.
... og hún lýsir sér einhvernvegin, eða hvað?
Ógnin er komin á stig sem hún hefur aldrei farið á áður og er óumflýjanlegt að nýjar árásir verða gerðar.
Já, sagan segir það líka. Spurningin er bara hvað ætla þeir að gera, ef eitthvað?
Ógnin er viðvarandi, segir hann og bætir við að ekki líði sá dagur sem viðvörunarljós kvikna og upplýst er um samtök sem reyna að senda fólk til Sýrlands og Írak.
Það stafar engin hætta af hryðjuverkamönnum sem fara til Sýrlands. Þeir sem fara ekki geta verið skaðlegir, svo og þeir sem koma aftur.
Þeir sem fara eru hinsvegar ekki til stórræðanna á meðan þeir eru ekki á svæðinu.
Hann segir að leyniþjónustan fylgist nú með mun fleirum en áður og hafi fengið ábendingar um tvö eða þrjú þúsund manns sem grunaðir eru að ætla sér að fremja illvirki.
Í Sýrlandi þá?
Hann segir að þetta séu ekki bara leikmenn því margir þeirra eru vel menntaðir atvinnumenn ekki einhverjir sem hafa orðið undir.
Menntaðir í hverju? Skiptir það máli? Ja, það er vissulega töff ef hryðjuverkamenn eru farnir að vera með gáfuðustu bófum.
Sérfræðingar í franska varnarmálaráðuneytinu segja að hryðjuverkamennirnir noti besta dulkóðunarbúnaðinn sem völ er á og tækni sem er sú besta.
Þeir hljóta að hafa dánódað honum af internetinu.
Þeir sem eru slóttugastir koma ekki einu sinni nálægt símum heldur nota þeir skilaboð (messengers).
Orðið sem þú ert að leita að er "sendiboði." Eða "boðberi." Það virkar líka.
AFP hefur eftir yfirmönnum í ráðuneytinu að mesta ógnin sé af þeim 200 sem hafa snúið til baka eftir að hafa verið þjálfunarbúðum eða barist á þeim svæðum sem Ríki íslams ræður yfir í Sýrlandi eða Írak.
Lítið vandamál það.
Ef þeir eru með stæla, þá geta Frakkar alltaf:
Gert eins og í Charlie Hebdo málinu, og sett GIGN í þetta. GIGN er einmitt lang-besta lögreglusérsveit í heimi. Hún kemur þegar terroristarnir hafa lokið sér af, og drepa þá.
Eða:
Þeir geta eytt milljörðum af fé sem þeir ekki eiga til þess að koma upp vopnuðum vörðum úti um allt, sem mæta akkúrat þegar terroristarnir eru að klára sitt thing.
Eða:
Fransmaðurinn á götunni getur bara plaffað á þessa terrorista sjálfur.
Ég sé samt ekki að sú leið verði fyrir valinu. Of líberal fyri frakkann.
Þeir hafa misst allar hömlur varðandi ofbeldi,
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvað þessi setning þýðir. Ég hef vissulega um það kenningar, en þori lítt að tjá mig að svo stöddu.
Ógnin er viðvarandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2015 | 13:43
Hún vann næstum
Það þýðir að hún hefur gríðarlegt fylgi.
Hún ætti bara að prófa aftur.
Segist íhuga stöðu sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.3.2015 | 19:29
Hvernig er þeim beitt?
Við skulum setja upp scenario:
Þú ert ægilegur stríðsherra í afríku, og ætlar að leggja undir þig þorp nágrannanna.
Landið er slétt, með trjám á stangli, og einhverjum runnum hér og þar af handahófi, þar sem hægt væri að fela orrustu-toyotu, en ekki nógu stórir til að fela skriðdreka.
Þorpið er ca 200 metrar í þvermál, nánast kringlótt, allt moldarkofar og einföld skýli, innan girðingar sem er um metri á hæð, gerð úr runnaflækjum.
Þeir hafa 50 menn, allir vopnaðir rifflum af ýmsu taki, aðallega einhverjar útfærzlur af Kalashnikov, en einnig Enfield og Mosin Nagant, og kannski einn og einn FN FAL. Sem enginn kann í raun á neitt meira en úr hvaða enda skotin koma.
Þú hefur úr að moða 250 manna liði, með úrval af allskyns vopnum, sem þú hefur fengið að gjöf frá bandaríkjam0nnum, kínverjum, þjóðverjum, rússum og írönum.
Svo þú getur:
A: keyrt bara yfir þorpið á skriðdreka og hugsað ekkert frekar um það.
B: gert afar skemmtilega árás með breiðfylkingu 20 Hilux jeppa með .50 BMG á pallinum.
C: Látið allt liðið þitt marsera í bæinn með rifflana á lofti, skjótandi allt sem hreyfist.
D: beitt nauðgun. Sem mér er ekki ljóst hvernig er nákvæmlega beitt í þessum tilgangi... eða nokkurnvegin... Ja, það væri hægt að mæta bara með allt liðið og nauðga öllum - en það yrði að gerast eftir að þorpið hefur verið tekið, svo það er eiginlega...
Getur einhver útskýrt hvernig þú beitir nauðgun í einhverjum vitrænum tilgangi?
Nauðgun notuð sem stríðsvopn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.3.2015 | 11:19
Nýtt fólk vill nýtt fólk
Það er ekki nóg af nýju fólki á þingi.
Eða nýjum flokkum ef út í það er farið.
Það eru gamlir flokkar annars vegar, og hinsvegar galmir flokkar með ný nöfn, allir með gömlu fólki.
Við höfum reynzlu af þessu gamla, sumt er stöff of legend.
Við höful litla sem enga reynzlu af því nýja.
Það þarf verulega að hafa fyrir því að vera verra.
38% ungs fólks myndi kjósa Pírata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2015 | 21:40
Dundum okkur við að reikna:
Fyrst finnum við bíl af handahófi, einn sem er hægt að fá hér á landi í gegnum umboð - Skoda?
Notum Skoda.
Ef við hugsum nú um fólk í kringum okkur, þá er kurteislegast að aka ekki um á díselbíl, enda menga þær talsvert verr.
Það er vissulega *minni* mengun, en það er *verri* mengun - þetta er svona eins og munurinn á *mikilli* prumpulykt, sem er vissulega pirrandi, en skaðlaus að mestu, eða *smávegis* sarín-gas ilmi, sem er vissulega ljúfur, en bráðdrepandi.
Nú til dags er það þannig að á langkeyrzlu skiftir vélasstærð litlu. Einu sinni var hún atriði - til dæmis eyddi Suzuki Swift með 1600 vél + sjálfskiftingu talsvert meira á langkeyrzlu en Jeep Cherokee með 4 lítra vél + ss.
Þá miðum við augljóslega við að raunverulegur normal maður af holdi og blóði hafi ekið bílnum í hvort skipti, en ekki einhver ímyndaður ídealmaður þriðja ríkisins.
Skoda Octavia er semsagt fáanleg með annaðhvort 1200 vél, sem er 105 hö, sem er ætlast til að dragi 1300 kg. Þeir ljúga því fullum fetum að þetta farartæki eyði 4.9/100.
Tel ég það lygi, byggt á því að samkvæmt eigin mælingu eyða bæði Suzuki Swift & Fiat 500 8/100.
Svo sú tala er líklega nær raunveruleikanum.
Til þess að fá sama performans út Skoda með 1400 vél þarf svo ekki að pína hann jafn mikið, svo eyðzlan verður trúlega sú sama. Og maður er ekki jafn líklegur til þess að drepa einhvern í tilraun til framúraksturs og í 1200 bílnum.
Verðmunur á slíkum bílum er svo 200.000 kr.
Á mánuði eru menn að borga af svona ~40.000 á mánuði, og borga þá væntanlega 5-10K í tryggingar, og... man ekki hve mikið í bifreiðagjöld, en hvað sem það er er það hverri krónu of mikið.
Þá verður maður að keyra minnst 100 km á dag til þess að bensin verði aðal útgjaldaliðurinn. (MV 220 kr/l.)
Af 4.5 milljón króna bíl væru menn að borga ~50K á mánuði - sem er það sem góður rafbíll kostar.
Það er vissulega auka 10K, sem er nóg til að koma skoda 45 km.
Rafbíll er sem sagt talsvert ódýrari - en leynir aðeins á sér í því.
Sjáum til hve lengi það endist áður en ríkið finnur aðferð til þess að skemma það.
Hóflega vélarstærð skiptir miklu máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |