30.5.2015 | 15:29
Sum þarf ekki að fjarmagna
Þetta með til dæmis að fækka skattþrepum og draga þannig úr skattpíningu á landsmenn er í fyrsta lagi einfaldara, og þar með ódýrara kerfi fyrir ríkið, og í öðru lagi kaupmáttaraukning fyrir fólkið, sem mun koma vel út fyrir ríkiðvegna aukinnar neyzlu.
Beinn kostnaður við aðgerðirnar er talinn níu til ellefu milljarðar króna.
Sem er reiknað hvernig? Hverjar eru forsendurnar?
Hann sagði jafnframt að kjarasamningarnir, sem undirritaðir voru í gær, færu út fyrir þau mörk sem markmið um stöðugleika þola.
Það er misjafnt milli fyrirtækja.
Viðbúið væri að vextir myndu nú hækka.
Það er mannasetning.
Menn mega heldur ekki gleyma því að ríkið er að koma inn með alveg gífurlega miklum aðgerðum og þungum.
Loksins, segi ég bara.
Það er sjaldan sem ríkið hefur komið inn í kjarasamninga með eins afgerandi hætti, sagði Þorsteinn einnig.
Kjaftæði. Málið er að venjulega grefur ríkið undan kaupmætti fólks, með allskyns bulli eins og VSK, olíugjaldi, sykurskatti, tollum osfrv.
Að skattar séu lækkaðir, þó lítið sé, er nýlunda þú það sé keimlíkt inngrip.
Hann sagðist einnig vera sammála Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra um að skattahækkanir hlytu að koma til greina ef sú staða kæmi upp að mæta þurfi verðbólgu og þenslu í hagkerfinu.
Þorsteinn þarf að láta skoða hausinn á sér ef hann heldur að það sé rétt.
Hvar læra þessir menn hagfræði?
Ekki búið að fjármagna aðgerðirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2015 | 13:20
Hve margar lækkanir?
30 "breytingar," aðrar en hækkanir. Sem gæti verið breyting á nafni, þess vegna. Til dæmis tek ég eftir að "Virðisaukaskattur" heitir nú "Matarskattur."
Það er ekki skrítið þó hér sé sáralítill kaupmáttur og fólk sé enn að flytja til Noregs. Alltaf verið að bæta við sköttum og hækka þá.
Svo má ekki fækka sköttunum, vegna þess að það er einhvernvegin ekki hagur þeirra lægst launuðu, segja þeir.
Ég hef aldrei skilið hvað þeir tekjulægstu græða á sífellt hækkandi verðlagi. En það er sífellt tönnlast á því að svo sé.
170 skattabreytingar á 8 árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.5.2015 | 17:33
Það er smekksatriði...
... og að hluta til snobb.
Sumir finna bragð eftir verðmiðanum, sjáið til.
En ástæða þess að vín eru dýrari er oft bara lager-kostnaður. Vínið er eldra. Eldra vín er aðeins öðruvísi á bragðið - sumum finnst það betra, þess vegna hafa menn fyrir því að geyma það.
Flestum finnst nýrra vínið betra, vegna þess að það er ferskara bragð af því, það er ekki eins þurrt.
Eru ódýr vín betri en dýr vín? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2015 | 16:28
Fyrst við þoldum Steingrím & Jóhönnu í 4 ár,
þolum við núverandi stjórnvöld eins lengi. Jafnvel lengur.
Þau komast ekki með tærnar þar sem Jóhanna Hér varð hrun & Steingrímur mistök voru í niðurrifsstarfsemi og fíflagangi.
Fáum við eitthvað betra?
Það eru líklega draumórar. Verra getum við auðveldlega fengið, við værum sennilega heppin að fá jafn-gott/slæmt (hvernig sem þið lítið á það,) en betra fáiði aldrei.
Vegna þess að þið viljið það ekki, ekki í alvöru.
Rífa niður kerfið og byggja nýtt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2015 | 23:05
Býður uppá ódýrari hreindýraveiði
Maður þarf bara að rigga grind með göddum framan á bílinn sinn, og svo bara keyra á þau dýra sem ramba út á veg.
Þau munu þá festast í göddunum, og farast þar, og tolla þar föst þar til maður kemst á hentugan stað til að taka þau í sundur.
Spök hreindýr hætta fyrir ökumenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2015 | 15:00
... ha?
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði [...] að það kæmi til greina að hækka skatta ef samið yrði um launahækkanir í kjaraviðræðum sem ógna stöðugleika.
Já, en, fólk er að heimt launahækkanir vegna þess einmitt meðal annars að allur peningurinn fer í skatta.
Hér er verið að búa til vítahring. Hvar lærði þessi pési eiginlega hagfræði? Já Steingrími J & Jóhönnu hér varð hrun?
Skattahækkanir væru vopn til að bregðast við aukinni þenslu og verðbólgu.
Með því að búa til meiri verðbólgu?
Ég er ekki að boða þetta.
Hvað varstu þá að segja?
Ég er bara að segja að ef við horfum fram á verulega verðbólgu, þá mun auðvitað þurfa að bæta kjör örykja og auka bætur í samræmi við verðlagsþróun, sagði hann.
Eða ekki.
Vinnandi fólk verður að ganga fyrir öryrkjum. Það er vinnandi fólk sem skaffar, ekki öryrkjar.
Ef verðbólga fer af stað, þá felur það í sér aukinn kostnað hjá ríkinu í mörgum stórum málum, eins og í almannatryggingakerfinu, sem þýðir einfaldlega að ríkið þarf meiri tekjur.
Og í þeim tilgangi ætla þeir að búa til meiri verðbólgu?
Ríkið þyrfti jafnframt að hafa hamlandi áhrif á verðbólgu, en ekki ýta frekar undir hana.
Hærri skattar eru ekki leiðin til þess. Seinasta ríkisstjórn (og reyndar allar stjórnir þar á undan) kenndu okkur það, the hard way.
Og fólk lærir ekki...
Hann ítrekaði að hann væri ekki að boða skattahækkanir, þetta væri aðeins ein leið sem hefði verið litið til í gegnum árin til að bregðast við þenslu.
*facepalm*
Ég er ekki að boða þetta
Boðaðu þá eitthvað annað.
Skattahækkanir koma til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2015 | 15:40
Þetta var sem sagt aftansöngur...
Verst að missa af því.
Ég nenni engan vegin að horfa á/hlusta á þetta. Þekki of fáa sem taka þessa keppni eki alvarlega.
Sem er synd, keppnin er eingöngu skemmtileg sem MST3K efni.
Ég söng af mér rassgatið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2015 | 15:38
Betur má ef duga skal
Ef það er rétt sem þeir segja, að gas það sem fyrirfinnst í venjulegu útöndunarlofti spendýra valdi hlýnun, þá er réttast að viðblásum út meira af því.
Vermum heiminn, þar til hann verður eins og hann var ~ 900 AD.
Minni losun dregur ekki úr ábyrgð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.5.2015 | 21:26
Kefið hefur aldrei þjónað fólkinu
Ég held að það hafi reyndar aldrei á að gera það.
"Í dag þjónar kerfið ekki lengur fólkinu, kerfi sem var búið til á einfaldari tímum."
Alltaf þetta "einfaldari tímar" bullshit. Ekkert hefur breyst.
"Okkur er talin trú um það á hverjum degi að við höfum engin völd. Það er lygi,"
Já, og nei. Aldrei lesið "Leviathan?" nei, sennilega ekki... útskýrir allt. Hobbes er mjög fasískur hugsuður, en það er það sem gerir hann alltaf svo viðeigandi.
"Birgitta fjallaði meðal annars um gagnagögn (e. metadata) og sagði hún að stafræn saga fólks væri aðgengileg öllum þeim sem hafa áhuga á henni. Líkti hún stafrænu sögunni við skugga sem eltir manneskjuna alltaf."
Ég hef ástæðu til að ætla að mitt metadata gefi algjörlega ranga mynd af mér - targeted ads benda til þess.
"Við bjuggum til kerfið og við getum því auðveldlega breytt því aftur,"
Aha... reyndu, og sjáðu hve auðvelt það er.
"Bylting, það er uppáhalds orðið mitt. Orðið þýðir breytingar, þróun með ást."
Hefur aðra merkingu fyrir mér: breyting til hins verra, með ofbeldi.
"Í lokin sagði Birgitta að henni þætti afar mikilvægt að gera nýja stjórnarskrá. Það er augljóst að við getum ekki haft hlutina svona áfram, sagði Birgitta."
Af hverju ekki? Þetta þarfnast nánari útskýringar.
"Ef þú vilt lifa í lýðræði verður þú að taka þátt í því. Það er vinna og hún er erfið en hluti af daglegri rútínu okkar, sagði Birgitta."
Þar ratast henni satt orð á munn.
Birgitta: Ég var ljóti andarunginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |