30.8.2015 | 19:38
... talandi um Svíþjóð:
"Mér finnst allt í lagi að við tökum Svíþjóð sem viðmiðunarland, þeir tóku á móti einhverjum 30.000 flóttamönnum í fyrra."
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/08/28/flottafolk_hefur_ahrif_a_fylgi_flokka/
Er einhver til í að reikna út hvað svíum fannst um þetta mál?
Það er hugsanlegt að það sé eitthvað annað, en hvað veit maður?
Gætum tekið við 1500-2000 manns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2015 | 07:13
Ég hef betra nafn fyrir þetta gjald:
Í stað "viðbótargreiðslu og gatnagerðargjald fyrir stækkun og nýbyggingu" ætti þetta að heita: "gjald til að gera húsnæði dýrara."
Aukagjald á íbúðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.8.2015 | 06:20
Vekur til umhugsunar...
Hvað ætli þessi þjófur vilji með líkið?
"Nota" það?
Dansa við það?
Stoppa það upp?
Var hann aknnski bara svangur?
Leita að líki 25 ára konu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.8.2015 | 22:09
Heimur pokemon-spilara er harður
En ekki jafn harður og heimur yu-gi-oh spilara. Þeir þurfa skriðdrekaherdeild og flokk fjarstýrðra sprengjuflugvéla með sér á sín mót.
Að maður nú tali ekki um bridds...
Vopnaðir á Pokémon móti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.8.2015 | 07:25
... og ekki það sem hann heldur.
Ég hef alla tíð verið sósíalisti en merkingin er orðin útþynnt í dag. Ég veit ekki hvað það þýðir lengur.
Vissi hann það nokkurntíma? Skoðum:
Ég tel að verðmætasköpun eigi að vera í höndum einkaðila,
Það er ekki sósíalismi.
ríkið á ekki að vera í miklum rekstri.
Ekki sósíalismi heldur.
Ríkið á þó að sjá um margt, meðal annars heilbrigðiskerfið, almenningssamgöngur og fleira,
Þetta er bara standard system allra lýðræðisþjóða. Annars, hvað er þetta "fleira?"
Spurður út í þá staðreynd að fjármagnstekjuskattur sé lægri en tekjuskattur sagði Kári: Ég á í erfiðleikum með að skilja hvers vegna skattur á eignir eigi að vera minni en skattur af vinnu, sérstaklega þar sem tekjur af eignum eru tekjur sem koma eingöngu til þeirra sem eiga eignir.
Ég held þetta sé hugsað til þess að fá fólk með auka-tekjur til að fjárfesta. Það er samt eiginlega of vitræn hugmynd til þess að vera ástæðan fyrir þessu...
Röksemdin um endurfjárfestingu hefur verið notuð og að ef fjármagnstekjuskattur er hækkaður verði það til þess að fólk myndi flytja úr landi.
Eða það stofnar skúffufyrirtæki. Annað eins er algengt.
Það er líka tími til að velta fyrir sér hvernig við tökum á þeim sem búa á Íslandi og stunda atvinnustarfsemi á Íslandi en greiða opinber gjöld sín annars staðar.
Já... hvernig virkar það? Gæti ég til dæmis borgað skatta til Rússlands þar sem tekjuskatturinn er umtalsvert lægri, en ekki hingað?
Það væru alveg nytsamlegar upplýsingar fyrir pöpulinn.
Sósíalisti útþynnt hugtak í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.8.2015 | 14:41
Þeir ku vera að smygla matvælum og annarri nauðsynjavöru inn í landið
23.8.2015 | 13:34
Sparar vinnu, líklega
Er meiri eða minni pappírsvinna við að bösta gaur sem keyrir fullur ef hann er leyfislaus?
Það þarf jú ekki að svifta hann réttindum - er reyndar ómögulegt.
Það sparar náttúrlega vesen fyrir brotamann sjálfann, að þurfa þá ekki að hafa áhyggjur af einhverjum breytingum á högum sínum.
Ölvaður að keyra en aldrei tekið prófið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.8.2015 | 13:26
Hystería er þetta í fólki
Þessir gaurar *vinna við að keyra,* og birta af sér myndir við þá iðju á hverjum degi. Og á hverjum degi deyr fjöldi fólks í bílslysum. Og aðstandendur þeirra fá að sjá menn *keyra bílum!* Shock! Horror!
Og aldrei heyrist múkk í neinum.
Hystería og ekkert annað.
Hamilton og vélbyssan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.8.2015 | 20:39
Er þurrkur ekki loftslagsbreyting?
Eða er loftraki, og úrkoma almennt kannski ekki tekin sem loftslag?
Hvers vegna?
Hnattræn hlýnun af völdum losunar manna á gróðurhúsalofttegundum hefur að líkindum gert þurrkinn í Kaliforníu 15-20% verri en ella,
Bara hlýnun sem á að vera af völdum mannanna verka?
Hvernig þekkja þeir hana frá?
Þetta er niðurstaða vísindamanna við Columbia-háskóla sem segja að þurrkar framtíðarinnar eigi nær áreiðanlega eftir að verða verri vegna hlýnunarinnar.
Af hverju ætti öll þessi hlýnun ekki að valda meiri úrkomu? vegna þess að vatn á það jú til að gufa upp í hita, og svo óhjákvæmilega þéttist rakinn, með tilheyrandi rigningu.
Eða er það ekki þannig sem hlýnun af völdum manna virkar?
Loftslagsvísindamenn
Ég man þegar þeir voru kallaðir veðurfræðingar.
Hlýrra loftslag hafi gert það að verkum að jarðvegurinn þornar hraðar og vatn í lónum og ám gufar hraðar upp en annars. Áhrifin sem hlýnunin hafi haft á uppþornun jarðvegsins nemi um 15-20%.
Greinilega ekki mikill gróður þarna. Hvert fór hann?
Haldi mannkynið áfram á sömu braut í losun gróðurhúsalofttegunda má búast við því að loftslag í Kaliforníu og annars staðar á jörðinni haldi áfram að hlýna.
Gott fyrir okkur. Kalíforniubúar verða bara að taka því.
Sú hlýnun gæti breytt jafnvel hóflegri þurrkatíð í þurrka af stærðargráðu sem ekki hafa þekkst áður.
Aftur, með leyfri aðs pyrja: hvert halda þeir að rakinn fari?
Allt vatnskerfið sem við höfum í Kaliforníu var hannað fyrir gamla loftslagið.
Breytið því þá. Það er ódýrara en að vesenast í að reyna að breyta heiminum.
Þurrkurinn verri vegna loftslagsbreytinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2015 | 20:56
... hvernig á þetta að virka?
Nú skulda flestir vinnandi menn, og gott ef ekki flest fyrirtæki. Hvernig á það *draga úr* verðbólgu að *hækka* vextina?
Ef vextirnir hækka, þá fer meiri peningur í þessi lán, og menn þurfa meiri pening, og fyrirtæki þurfa að auka álagningu, sem veldur verðbólgu.
Svo... hvernig lækkar verðbólgan við verðbólguhvetjandi framkvæmd?
Ég veit ekki meir.
Vaxtahækkunartónninn mildaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |