28.9.2015 | 15:21
Er það ekki einmitt tilgangurinn?
Ritskoðun, án þess að stunda ritskoðun.
„Myndi slökkva á ÍNN“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2015 | 14:05
Til skemmtunar, googlum: "reiði vegna skopmyndar"
Og þetta er það fyrsta sem birtist:
Múslimar eru víst ekkert einir um að vera móðgunargjarnir, jafnvel ofsafengnir í sinni móðgunargirni.
Fólk *segir* að það styðji málfrelsi, en gerir það ekki. Fólk *segir* að aðrir megi hafa aðrar skoðanir en það sjálft, en...
Fólk sér hlutina með sömu augum og Íslamskir öfgamenn, en vill ekki horfast í augu við það og viðurkenna það.
Eins og AA segir: fyrsta skrefið til að laga vandann er að viðurkenna að það er vandi.
Ég sé það ekkert ske í framtíðinni.
Finnur ekki til eftirsjár, aðeins reiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2015 | 16:45
Heimurinn væri verri án Japana
Fyrirtækið sem framleiddi málglaða vélmennið Pepper sér ástæðu til að minna viðskiptavini sína á að þeir megi ekki stunda kynlíf með vélmenninu.
Regla 34. þeir þekkja hana.
Þrátt fyrir ærinn tilkostnað er ekki hægt að nota þetta 120 sentímetra háa vélmenni utandyra eða til að valda fólki skaða.
Er ekki hægt að henda því í fólk eða nota það fyrir barefli?
Jú víst, held ég.
Aðrar greinar notendaskilmálanna banna að vélmennið sé notað til að senda ruslpóst en kynlífsbannið er það sem hefur vakið mesta undrun...
Aftur, regla 34.
Hafa ber í huga að margir Japanir hafa séð Chobits... og sennilega Cherry 2000 líka.
Fyrirtækið segir að sóðaleg hegðun gagnvart vélmenninu gæti haft í för með sér refsiaðgerðir,
... þær eiga eftir að vera brilljant.
Talsmaður fyrirtækisins sagði engu að síður að það væri alveg stranglega bannað að breyta rödd vélmennisins þannig að hún væri meira kynæsandi.
Fyrir suma þarf engu að breyta. Regla 34.
Mega ekki stunda kynlíf með vélmenninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2015 | 16:32
Hönd guðs?
25.9.2015 | 16:11
Var Hanna Birna ekki fordæmi?
23.9.2015 | 18:53
Annað hvort mengar bíllinn lítið, eða eyðir litlu
VW fann greinilega leið til að gera bæði: menga lítið fyrir eftirlitið, eyða litlu fyrir eigandann.
Þetta virkaði vegna þess að eftirlitið mældi bara vissan hluta mengunarinnar.
(Þetta er hægt.)
Winterkorn segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2015 | 18:49
Hvalveiðiskoðun!
Góð hugmynd, loksins að einhver framkvæmdi hana.
Stoppuðu hvalveiðibát með farþega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2015 | 17:43
Má ekki hafa þjóðaratkvæðagreiðzlu um það?
Það er ótækt að eitthverjir minnihlutahópar stjóri öllu.
Vilja að stjórnvöld taki á móti fleirum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2015 | 17:40
Jú víst.
Pönslænið er: "... en vesturbakkinn..." eða eitthvað þvaður sem kemur RKV ekkert við.
Alveg sama hvað:
Mál dagsins: "Við þurfum að moka snjó af götunum."
Svar: "...en vesturbakkinn?"
Mál dagsins: "Reykjavík er að verða gjaldþrota!"
Svar: "Börn deyja í Palestínu!"
Mál dagsins: "Fólk kvartar vegna þess að sorp er ekki fjarlægt nógu oft."
Svar: "stjórnmál er stundum dauðans alvara eins og og á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni."
Stjórnmál ekki grínþáttur eða uppistand | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2015 | 17:31
Hlaut að koma að því
Á endanum getum við ekki stundað viðskipti við neinn.
Ekki einu sinni Færeyinga, vegna þess að þeir stunda hrefnuveiðar, og þær eru móðgun við góðvini okkar, Sea Shepherd samtökin.
Vill sniðganga vörur frá Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |