Vitiði hvernig Vanderbilt varð ríkur?

Með því að bjóða uppá ókeypis ferjusiglingar.

... það var bar um borð.


Hvaða áhrif hefur lítil mæting?

Ef einhver?

Hverjir mæta frekar?

Þeir sem mæta ráða.


mbl.is 35,82% hafa kosið í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá þeim koma stundum góðar fréttir

Eins og ég hafði nú litla trú á þeim í upphafi.

Og fólk heldur að hag sínum sé betur borgið með öðrum...


mbl.is Álögur lækka um 13 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til átu, já

Það er bæði orku og næringarríkt.

Spreniefni er einingus orkuríkt.  Frekar eitrað leggi menn sér það til munns.  Dínamít er til dæmis alveg bráð-drepandi.


mbl.is Hnetusmjör er betra en sprengjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir væru ekki nothæfir ef þeir gætu varið sig

Þú getur ekki notað mann sem tekur sig til og skýtur á móti sem mannlegan skjöld.  Ef þú getur það þá þarftu ekki mannlegan skjöld.  Eða nokkurn annan skjöld.

"Þeir gætu einnig ein­fald­lega verið að íhuga að drepa þá frek­ar en að leyfa þeim að njóta frels­is."

'Nam flashback.


mbl.is Nota varnarlausa sem mannlega skildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betri hugmyndir

  • Hag­ur millistétt­ar­inn­ar verði bætt­ur enn frek­ar; neðra skattþrep verði lækkað veru­lega og per­sónu­afslátt­ur verði út­greiðan­leg­ur

Hvað með: engin skattþrep?  Fólk fær bara öll launin útborguð, og ríkið getur takið VSK í staðinn.  Hann má þá alveg vera 20-25%, vegna þess að allir eru skyndilega með 70-80% hærri útborguð laun.

  • Pen­inga­stefn­una skal end­ur­skoða, raun­vext­ir á Íslandi þurfa að end­ur­spegla breytt­an efna­hags­leg­an veru­leika

Einmitt.  Þegar vextir eða peningastefna á Íslandi fara að endurspegla einhverja þekkjanlega útgáfu af raunveruleikanum þá verð ég ansi hissa.

  • Lág­marks­líf­eyr­ir aldraðra verði 300 þúsund krón­ur á mánuði og fylgi lág­marks­laun­um á al­menn­um vinnu­markaði

Hver er hann nú?

  • Byggður verði nýr Land­spít­ali á nýj­um stað og fram­lög til heil­brigðis­stofn­ana um allt land auk­in

Hann þarf að vera skammt frá flugvellinum.  Verður slæmt ef völlurinn verður fluttur (og dýrt.  Peningsr til þess að færa flugvelli rigna víst af himnum ofen, er mér sagt.)

Heilbrigðiskerfið þarf svo bara að reka betur.

Man einhver hvernig Landakot var sett á hausinn?  (Eða veit það?)

  • Tann­lækn­ing­ar aldraðra verði gjald­frjáls­ar og hjúkr­un­ar­rým­um fjölgað um allt land

Menn byrjaðir að taka eftir að aldraðir halda tönnunum lengur?

  • Taka skal upp komu­gjald á ferðamenn sem nýtt verður til innviða

Sjá púnt 1 hér að ofan: ferðamenn geta bara borgar VSK eins og allir aðrir.  Þeir munu vera talsvert fleiri en innfæddir, og ættu því að skila inn ansi miklum arði, þó ekkert verði heimtað af þeim sérstaklega.

  • Fæðing­ar­or­lof verði 12 mánuðir og greiðsluþak hækkað í 600 þúsund krón­ur, barna­bæt­ur hækkaðar og barna­föt verði án virðis­auka­skatts

"Greiðzluþak?"

  • Hluta náms­lána verði breytt í styrk og sér­stök áhersla lögð á að styrkja iðn- og verk­nám

Sjáum til hvernig það gengur.

  • Skoðað verði hvort beita megi skattaí­viln­un­um til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga á efna­hags­lega veik­um svæðum á lands­byggðinni

Það er hægt að gera þetta á ódýran, praktískan hátt.  Glætan að það verði raunin.

  • Unnið skal eft­ir sókn­aráætl­un í lofts­lags­mál­um sem er að fullu fjár­mögnuð til næstu þriggja ára í sam­ræmi við skuld­bind­ing­ar Íslands í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu

Illa lýst mér á þá hugmynd.  Sem bendir eindregið til að hún sé sú líklegasta til að ganga í gegn af öllum þessum hér að ofan.

Þetta verður íþyngjandi fyrir alla og mun trúlegast búa til áður óþekkta mengun handa okkur líka.

Svipað eins og þessar ívilnanir vegna dísel.

  • Aðstoða ungt fólk með úrræðinu Fyrsta fast­eign og öðrum aðgerðum í hús­næðismál­um – leigu­íbúðir og fjölg­un náms­mann­a­í­búða

Þetta væri auðveldara og áhrifaríkara að gera með því einu að vinda ofanaf ofreglingi sem gerir það flókið og dýrt að smíða.

Þannig lagast þetta af sjálfu sér.

Vandinn verður ekki leystur af ríkinu, vandinn *er* ríkið.


mbl.is Til í samstarf á grunni félagshyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfa lög allt í einu að vera siðleg?

Með hliðsjón af siðferði hvers?

"Birgitta Jóns­dótt­ir, þingmaður Pírata, seg­ir að það væri furðulegt að ætla að taka á spill­ingu í sam­fé­lag­inu með flokk­um sem hafa verið tengd­ir við spill­ingu gegn­um tíðina..."

Það mun reynast erfitt, ef ekki ómögulegt að finna flokk sem er ekki verið viðriðinn spillingu, eða hefur í sínum röðum engan sem hefur verið viðriðinn spillingu.

Mikla eða litla.

"...að at­hæfi fjár­málaráðherra í tengsl­um við af­l­ands­fé­lög væri í öðrum lönd­um talið siðlaust." 

Það er svo margt öðruvísi í öðrum löndum.  Til dæmis löndunum sem við berum okkur saman við.

"við vilj­um að al­mennn­ing­ur viti að hverju hann geng­ur,“ sagði Birgitta Jóns­dótt­ir."

Jákvætt, held ég.  En græðir hún á því?  Veit ekki.

En kjósendur?

Mín spá: þeir verða sviknir eftirá, eins og alltaf.  Það er hefð fyrir því, sko.

„Fyr­ir mína parta þá finnst mér skrýtið að fjár­málaráðherra sitji enn þá í því embætti, ekki vegna þess að hann hafi gert eitt­hvað ólög­legt held­ur vegna þess að í öðrum lönd­um væri litið á þetta sem siðlaust.“ 

Ef það er löglegt þá er ekki við hann að sakast.  Ekki hér, ekki í útlöndum.

Breytið lögunum fyrst.

Það verður samt að breyta ansi miklu af lögunum - heilu lagabálkunum.  Vegna þess að það er ástæða fyrir viðskiftum gegnum aflandsfélög.

Menn eru að reyna að græða á bisness.  Það væri verra ef allt færi á hausinn og þyfrti ríkisstyrk...

... eða hvað?


mbl.is Segir athæfi Bjarna löglegt en siðlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er hægt að gera óvirkt með spreyi

Mér sýnist svart lakk sé vitið - þá fattast skemmdarverkin ekki alveg strax, sérstaklega ekki ef menn eru sniðugir og nota líka límband til að sulla ekki út fyrir.

Annars er ágætt til þess að vita að frakkar þurfi svona skotheldar hraðamyndavélar.

Maður hefur kannski verið að vanmeta frakkana allan þennan tíma?


mbl.is Skotheldar hraðasjár birtast að óvörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þessu prófi er falleinkun jákvæð

Á prófinu fá þeir plús stig ef þeir hyggjast leggja á okkur borgarana nýjar álögur, gjöld og skatta.

Svo...

Sjálfstæðisflokkur & framsókn koma bara mjög vel út á þessu.

Áfram þeir.

Alltaf að brillera miðað við allta annað sem býðst.


mbl.is Telja þrjá flokka standast loftslagspróf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru utan úr geimnum

Sjáið bara:


mbl.is Morð-trúðarnir komnir til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband