29.4.2016 | 15:29
Fólk lærir aldrei
Það er hægt að banna hvað sem er: eiturlyf, köngulær, súrefni... allt.
Að framfylgja banninu er annað mál.
Vill algjört bann á sölu fílabeins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2016 | 15:47
Göfugt markmið, það.
Annað er hvort bannið sem um ræðir er svo fáráðlegt:
*Frumvarp til laga um brottfall laga um helgidagafrið*
Allt til þess að mega spila Bingó á Föstudaginn langa. Mörg bönn eru nú við lýði á íslandi, en þetta er það eina sem ég man eftir í svipinn sem veitir okkur frið, en ekki vesen, bögg og fjárútlát.
*Helgi Hrafn segir að upp hafi komið sú umræða um hvort breyting á lögunum kæmi niður á réttindum fólks á vinnumarkaði, en svo segir hann ekki vera.*
Það væri eins gott. Það var tilgangurinn með því að taka upp kristni til að byrja mneð að fá frí einu sinni í viku.
... en ekki hvað?
*Helgi Hrafn segir að í fyrstu hafi verið erfitt að leita meðflutningsmanna vegna þess að við fyrstu sýn fái fólk það á tilfinninguna að verið sé að hræra í réttindum vinnufólks.*
Og ég skil þá sýn. Það er ekki eins og fólk treysti ríkinu. Það er alltaf eitthvað slæmt á bakvið.
Það er ekki markmiðið, heldur að afnema þessi fáránlegu bönn.
Bönn. Fleirtala. Hvað annað?
Jákvætt ef svo er. Færir hann okkur góðar fréttír í framtíðinni kannski?
Markmiðið að afnema fáránleg bönn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2016 | 15:39
Heimsins elsta barn?
14 ára, og enn barn.
Allir vinir hans munu gera grín að honum að eilífu.
Barn missti framan af fingri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2016 | 15:37
Þettur þeim ekki í hug að túristar hunsi bara skiltin?
23.4.2016 | 18:13
Svona er að eiga ekki reikning í skattaskjóli
Það er eins og kallinn sagði: það er erfitt að eiga peninga á íslandi.
Skatturinn hærri en tekjurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2016 | 18:19
Hljómar eins og Parmenídes
"Loftslagsafneitar?"
Það er ekki eins og maðurinn sem um ræðir neiti að viðurkenna að loftslag sé. Hér er annað á seyði.
"Vísindagaurinn Bill Nye, einn þekktasti vísindamiðlari Bandaríkjanna, hefur skorað á veðurfræðing sem afneitar staðreyndum um loftslagsbreytingar..."
Skoðum aðeins þessar staðreyndir:
"Veðurfræðingurinn Joe Bastardi skrifaði grein í blaðið The Patriot Post í fyrra þar sem hann sagði Nye ekki vísindamann heldur leikara. Skoraði hann jafnframt á Nye að sýna fram á að tengsl væri á milli styrks koltvísýrings í lofthjúpi jarðar en einnig spá fyrir um þróun hitastigs jarðar næstu fimm árin."
Á góðri íslensku: Þetta meikar engan sens. Hér vantar inní. Það er líklega gamla tuggan, um tenglz koltvísýrings og hlýnunar.
Það er ekki staðreynd. Þar er bara verið að rugla saman "corrleation" og "causation." Algeng rökvilla það.
"að taka 10.000 dollara veðmáli um að árið í ár verði eitt af tíu heitustu árum frá því mælingar hófust. Annar þekktur afneitari hefur þegar hafnað slíku veðmáli."
Auðvitað neitar maðurinn að taka veðmálinu. Það er að hlýna.
Maður veltir fyrir sér greind Vísindagaursins Nye, að sjá þetta ekki, og að sjá ekki að aðrir sjá þetta, og að fatta ekki að það er ekki það sem málið snýst um.
"Spáir vísindagaurinn því að árið í ár verði eitt tíu heitastu ára frá því að mælingar hófust og að þessi áratugur verði sá heitasti í sögunni. Leggur hann 20.000 dollara undir."
En hvað með fyrri hluta veðmálsins? En heppilegt að gleyma honum.
"Benti Nye jafnframt á rangfærslur í gröfum sem Bastardi birti í grein sinni og gaf í skyn að jarðefnaeldsneytisfyrirtæki hafi greitt honum fyrir að tala máli þeirra."
Önnur rökvilla: *Poisoning the well.*
Hverskonar vísindamaður er þetta eiginlega?
Veðjar við loftslagsafneitara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2016 | 18:01
4100?
Ekki hafa þeir þá mikinn mannskap þarna.
Þyrlurnar eru líklega til þess að spara. Það kostar miklu minna að skjóta þessa óþokka þarna með vélbyssu neðaná einhverri þyrlu en að skjóta eldflaug úr fjarstýrðri rellu.
Svo voru þeir lík að verða uppiskroppa með þessar eldflaugar - eða réttara sagt, Raytheon hefur ekki undan að framleiða þær.
Af hverju framleiðum við ekki eldflaugar?
Fjölga hermönnum í Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2016 | 23:55
Þetta lét aldeilis bíða eftir sér.
16.4.2016 | 16:40
Ef maður stendur fyrir utan Lundann eina helgi....
Sagði lögreglustjórinn nauðsynlegt að stöðva brotahrinu kærða en hann hafi átt samfellda brotahrinu líkamsárása frá því sumarið 2015.
Hef heyrt af kauða, og skil ekki af hverju hann hefur ekki sjálfur verið barinn.
Hann á það inni.
Merkilegra er að honum var ekki stungið inn strax, en... þannig er þetta bara gert hér á landi.
Svo er þessi setning: "Átti kærði eitthvað sökótt við vin drengsins vegna líkamsárásar gegn honum sem átti sér stað á síðasta ári en málið er í ákærumeðferð."
Vegna þess að, ja, næturlífið er eins og það er, þá veit ég ekki:
"Átti kærði eitthvað sökótt við vin drengsins vegna líkamsárásar gegn honum"
Af hverju átti ækærði eitthvað sökótt við vin drengsins vegna þess að þessi vinur hafði ráðist á þennan dreng?
Eða... átti hann eitthvað sökótt við þennan vin vegna þess að vinurinn hafði ráðist á kærða sjálfan?
Eða... átti kærði sökótt við vininn sem hann, kærði, hafði sjálfur ráðist á, en ekki fullnað þann verknað sér að skapi?
Ég veit ekki.
Og nei, þetta eru ekki útúrsnúningar. Ég hef séð miklu furðulegri hluti.
Stöðvi árslanga hrinu líkamsárása | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2016 | 13:35
Þetta er tortyggilegt
"Kristján Guy Burgess, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segir að verið sé að reyna að varpa upp sem mestum reyk með því að gera eignarhald á huldufélaginu sem á húsnæðið að Hallveigarstíg 1 sem Samfylkingin leigir tortryggilegt."
Hvað er ekki tortyggilegt við það?
1: það er huldufélag.
2: formaður Samfó segist ekkert vita hver á það.
3: Það er skráð í útlöndum.
4: það er ekki til á skrá hjá ríkisskatsjóra.
(Q: "Fram kom í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu á föstudag að Fjalar og Fjölnir eru skráð með erlendar kennitölur og heimili í öðrum löndum. Þá fengust þær upplýsingar hjá Ríkisskattstjóra að félögin fyndust ekki í skrám embættisins.)
Var ekki mikið moldviðri um daginn vegna þess að einhver embættismaður átti einu sinni eignir í skattaskjóli? Eignir sem voru þó gefnar upp?
Þetta er miklu grunsamlegra,
"Spurður í Vikulokunum á Rás 2 um eigendur félagsins sem á húsnæðið sem Samfylkingin leigir segist Kristján Guy ekki þekkja það nákvæmlega."
Hann ekki heldur?
"Sagði Friðjón Óttar Ingvarsson, hrl. og stjórnarmann í Alþýðuhúsi Reykjavíkur, vera fyrrverandi miðstjórnarmann í Alþýðuflokknum og gaf hann því lítið fyrir skýringar Kristjáns Guy um að félagið væri ótengt Samfylkingunni líkt og Kristján hélt fram."
Hmm...
Málið verður grunsamlegra með hverri málsgrein.
"Kristján Guy sagði þá félagið óháð flokknum í sambandi um lög um stjórnmálasamtök." (sic)
"Þetta er löglegt" útskýringin dugði ekki fyrir Sigmund. (Reyndar er mig farið að gruna að hér séu ólöglegir hlutir á seyði. En það eru náttúrlega bara grunsemdir, byggðar á hve leynilegt þetta allt er.)
"Hann segist hafa orð eigenda hússins að félögin séu ekki skráð á Tortola. Ég hef orð þessara manna og hef ekki ástæðu til að rengja þau."
En á Panama? Delaware? Lúxemborg? Sviss? Cayman eyjum? London? Írlandi? Bermúda? Singapore? Eða Belgíu?
Allt vel þekkt skattaskjól.
Flettið því upp.
Segir félagið tengt Samfylkingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |