28.9.2016 | 16:32
Lausn: notið blýant
Tæknin, hún er geggjuð.
Hér, ég get alveg sett inn broddstaf:
Broddstafavandinn óleystur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2016 | 15:09
Ég hugsa frekar að það sé 100% of hátt.
Allt dettur mönnum í hug að skattleggja.
Það þarf að stoppa allar svona hugmyndir.
Kolefnisgjald 80% of lágt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2016 | 15:08
Hefur ISIS lýst yfir ábyrgð?
26.9.2016 | 22:31
Þetta er hér í heild sinni:
http://kvennabladid.is/2016/09/26/eldhusdagur-2016-tryggjum-rettlata-dreifingu-ards-af-audlindum/
Skoðum nánar, til skemmtunar og yndisauka:
Við lifum á umbrotatímum, [...] við okkur blasir flókin og ógnvænleg heimsmynd...
"Scaremongering."
...þar sem öfgar og populismi er orðin yfirþyrmandi veruleiki sem ógnar tilveru okkar allra.
Hvað nákvæmlega er það við popúlisma sem við eigum öll að vera svo hrædd við?
Menn orðnir leiðir á að reyna að hræða okkur með kolsýru?
Því er það svo mikilvægt að gera sig meðvitaðan um aðferðafræði þeirra sem etja ólíkum hópum gegn hvor öðrum til að komast til valda.
Hmm... svo kemur þetta:
"Ástæðan byggir fyrst og fremst á þeirri staðreynd að auði þjóðar er ekki skipt jafnt og þeir sem græða mest á auðlindum þjóðarinnar eru jafnframt að gera það á kostnað þeirra gömlu, fátæku og veiku."
Hún vill semsagt stilla á mót hvort öðru þeim sem framleiða, vs þeim sem eru á bótum, +a þeirri forsendu að framleiðednur séu "að græða á kostnað *þeirra gömlu, fátæku og veiku.*" (Ekki er mér ljóst hvernig það fer fram. Ekki útskýrt.)
Það er mikilvægt að við gerum okkur meðvituð um þetta.
Síðan Píratar urðu til hefur okkur áunnist mikið traust meðal þjóðarinnar.
Er það traust, eða fljóta eir bara vegna þess að þeir eru *ekki hinir?* Sem mig grunar sterklega.
Það er frábært að skynja hve margir eru tilbúnir til að vera með í þessari valdeflingu og valddreifingu sem raun ber vitni.
Tíminn mun leiða i ljós hversu mikil valddreifing það er.
Miðað við mína reynzlu af pólitík: það verður engin valddreifing.
En sjáum.
Það er hægt með raunsæum kerfisbreytinum, þar sem úrelt, flókin og oft mannfjandsamleg kerfi verða sett til hliðar, með nútímalegri stjórnarháttum.
Ég mun ekki halda niðri í mér andanum.
Ef okkur tækist til að mynda að fá aðra flokka með okkur í lið, um að gera með sér samkomulag, um að FYRIR kosningar lægu fyrir drög að stjórnarsáttmála þeirra sem vilja vinna saman eftir kosningar, þá myndi það breyta stjórnmálunum til langtíma og verða vonandi til þess að fólk fái á ný aukið traust á Alþingi.
Hahaha!
Okkar helstu markmið fyrir næsta kjörtímabil eru eftirfarandi
Í fyrsta lagi: Uppfærum Ísland með nýju stjórnarskránni,
Þeir tönnlast á að það sé nauðsyn. Þau drög sem ég hef séð gera bara ráð fyrir endurorðun með lengri, flóknari setningum sem gefa betra færi á einhverju svindli.
í öðru lagi: Tryggjum réttláta dreifingu arðs af auðlindum
Var það ekki reynt 2009-2013? Það var dísaster. Gerði ekkert annað en að fækka eignamönnum: auka við eignir stærstu fyrirtækjanna og fjarlægja minni spilara.
Það mál þarf að hugsa vel.
Eru þau fólk í það?
í þriðja lagi Endurreisum gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu
Til þess að hafa efni á því þurfum við að koma á markaðshagkerfi, eins og norðurlöndin.
í fjórða lagi: Eflum aðkomu almennings að ákvarðanatöku
Önnur hugmynd: hættið að skifta ykkur af hlutum sem koma ríkinu ekkert við.
og í fimmta lagi Endurvekjum traust og tæklum spillingu
Það þarf enga kristalskúlu til þess að sjá það plan verða að engu.
Við erum rík þjóð...
Því við erum svo fá. Hefurðu séð við hvað við vinnum? Hvaðan peingarnir koma? Það er ekki alvöru monný í þessu.
... því er það algerlega óásættanlegt hve margir lifa við fátækt og óvissu um velferð sína.
Miðað við normaldreifingu, hvað er hlutfallið?
Spyr ég, of raunsær til þess að fólk höndli mig..
Við teljum það nauðsynlegt að valdefla hjarta lýðræðisins sem á að slá á Alþingi í öllum sínum fjölbreytileika.
Þetta er kosmískt.
Orð eru mögnuð, sér í lagi orð í lagatexta.
Sumt fólk heldur að lög feli í sér galdramátt.
Það er tóm þvæla, veit ekki hvar fólk fær svoleiðis hugmyndir.
Skotgrafir gamla Íslands eru bæði tilgangslausar og hundleiðinlegar.
Svo ég vitni í nokkra sem ég hef rætt við undanfarið: "hlustar þú nokkuð á útvarp sögu?"
Þú fyrst.
Ef við viljum stöðva flæði fólks frá landinu, þá þurfum við að nútímavæða landið og gefa ungu fólki tilfinningu fyrir því að hér sé mögulegt að búa án þess að vera skuldaþræll.
Nútímavæða? Landið má vera 19. aldar. Það sem þarf er að leyfa fólki. Ekki banna því.
Og borga því.
... Ísland má alveg vera í fararbroddi með eitthvað annað samfélagslegt en útrásarvíkinga og heimsmet í sitjandi ráðherrum með eignir í skattaskjólum.
En veistu af hverju menn eru með eignir í skattaskjólum?
Það er lykillinn að öllu saman.
Bara heitt loft, hugsa ég.
Óásættanlegt hve margir lifa við fátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2016 | 16:50
Nær ekki einu sinni inná topp 100
Samt er alltaf verið að velta sér uppúr þessu.
15.696 morð í Bandaríkjunum 2015 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2016 | 17:08
... fyrir hvað?
"Hælisleitendur er annar flokkur flóttamanna sem stöðugt sækir til landsins og er samansettur mest af ungum karlmönnum sem koma hingað vegabréfalausir. Með nýsamþykktum lögum útlendinga eru skilaboð Alþingis skýr til þessa hóps og er að skila sér. Árið 2014 var fjöldi hælisleitenda 175 en áætlaður fjöldi hælisleitenda verður 700 á yfirstandandi ári, eða 98% aukning frá fyrra ári. Dvalargjöld hælisleitenda, sem ekki fær úrlausn mála sinna, er 7.800 krónur á dag, eða 234.000 krónur á mánuði. 2,8 milljónir á ári. En lágmarksellilífeyrir er þessa dagana 212.766 krónur, sagði Ásmundur.
Þá heyrðist hrópað úr þingsal: Skammastu þín!"
Hvað er svo skammarlegt við að benda á þetta? Vissu þetta ekki allir? Var þetta eitthvað til þess að pukrast með?
Hvers vegna?
Eða má bara almennt ekki ræða svona fyrir frama sumt fólk?
Sem er hið versta mál, því þetta er *ríkis* mál. Það er svolítið mikið hörmulegt ef ríkið má ekki fjalla um málefni ríkisins opinberlega.
Flestir aðlagast vel og mikilvægt að fólk aðlagist samfélaginu og verði þátttakendur í atvinnu- og menningarlífi, sagði þingmaðurinn.
Það eru náttúrlega bara einhverjir hægri-öfgamenn sem hafa slíkar vonir.
Eða hvað?
Virðulegur forseti, eitt þúsund og tvö hundruð milljónir er það sem myndi kosta að reka skurðstofu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum, en þar er engin skurðstofa eða fæðingarhjálp að hafa, sagði Ásmundur, en ljóst var að margir þingmenn í salnum voru ósáttir við málflutning Ásmundar.
Sumir þurfa að skammast sín, og það er ekki Ási Friðriks.
Steingrímur J. Sigfússon[...]: Maður spyr sig, hvaða tilgangi á svona málflutningur að þjóna. Útmála það hversu hratt útgjöld séu að aukast vegna þess að við - að okkar litla leyti - erum að takast á við þann risavaxna vanda sem við er að glíma varðandi flóttamenn og landlaust fólk um veröld víða,
Auðvitað er honum drullusama um ríkisútgjöld, hans velferð er tryggð af ríkinu þó skattgreiðendanna sé það ekki.
...sagði Steingrímur og spurði hvort Ásmundur væri nýr talsmaður Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki í kjölfar sigurs í prófkjöri í Suðurkjördæmi.
Við getum bara vonað.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, gagnrýndi Ásmund einnig harðlega. Enginn málflutningur er eins ömurlegur og forsmár eins og að stilla saman tveimur hópum samfélagsins gegn hvor öðrum í stað þess að horfast í augun við, að það er ástæða fyrir því að þeir sem eru aldraðir, veikir eða öryrkjar þurfa að búa við erfið kjör, sagði Birgitta.
Síðan hvernær eru hælisleitendur "hópur samfélagsins?" Og afhverju eiga þeir, algjörlega utanaðkomandi og óviðkomandi, að búa við betri kjör en aldraðir, veikir eða öryrkjar?
Hans málflutningur [Ásmundar] er nákvæmlega eins og málflutningur þeirra sem vildi ekki taka á móti gyðingum í neyð og sendu þá til baka.
Einn tveir og... GODWIN!
Skammastu þín! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2016 | 16:16
Hann vill bara að Hillary og co séu samkvæm sjálfum sér
Verk fylgi orðum, og fólk sýni fordæmi.
Það væri allstaðar til eftrbreytni.
Vill að lífverðir Clinton afvopnist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2016 | 18:43
Sigmundur Davíð haldi sig þar sem hann er
Helst aftur á þing.
Mér er skemmt yfir hversu mikið hann fer í taugarnar á fólki. Vegna þess hvaða fólk þetta er sem hann fer í taugarnar á.
Sigmundur Davíð víki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2016 | 18:41
Lögreglan getur ekkert verið allstaðar
Af hverju ætti lögreglan líka að vera allstaðar? Það væri ekkert vit í því. Það væri bæði þrúgandi og dýrt í rekstri. (Að ekki sé talað um beinlínis ómögulegt í framkvæmd vegna þeirrar manngerðar sem þarf í þetta djobb.)
Fólk verður bara að geta bjargað sér sjálft stundum.
Kunna ekki margir fyrstu hjálp?
Við það verður ekki búið lengur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |