31.3.2017 | 18:14
Allt mjög áhugavert
"Með því að hækka flestar tegundir ferðaþjónustu í efra þrep virðisaukaskattskerfisins þann 1. júlí 2018 verður til svigrúm til að lækka þetta almenna þrep úr 24% niður í 22,5% 1. janúar 2019."
Gefið að ferðaþjónustan gefi allt upp. Sennliega dregur úr því frekar en hitt.
En Ríkið hefur ekki átt það til að vera jafn kaldhæðið og ég.
"Áætlað er að vísitala neysluverðs lækki um 0,4% vegna þessa."
Það er nú ekki mikið. En eitthvað. Gefið að kaupmenn hækki ekki bara verð í samræmi - en þá er náttúrlega Costco.
Samkeppni heldur verðinu niðri.
"Samtímis verður litið til þess að lækka tryggingagjald eftir því sem svigrúm verður til, að því er segir í tilkynningunni."
Kannski, semsagt.
"Kolefnisgjald verður tvöfaldað samkvæmt fjármálaáætluninni. Þá verður vörugjald sett á bílaleigubíla og lækkun á bankaskatti."
Þeir ætla ekki að gera okkur þann greiða að fjarlægja það mikla böl?
Þetta er skattur sem leggst mest á þá sem minnst hafa.
VSK lækkaður úr 24% niður í 22,5% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2017 | 23:44
Ég væri til í ef hlýnun væri af mannavöldum
Það þýddi að mannkyn gæti gert jörðina hlýrri. Vistlegri, sem sagt.
Sparar milljarða í kyndingu, snjómokstri og allskyns veseni.
Hlýnun jarðar ekki af mannavöldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2017 | 18:18
Gera bara það sama og venjulega
Svíkja undan skatti. Það er ekkert nýtt (reyndar er ég hálf hiss að nokkur í ferðaþjónusti skili VSK, svona almennt.)
Cash only. Greitt með hvaða gjaldmiðli sem er.
Neyðarfundur vegna skattahækkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2017 | 16:24
Loksins, góðar fréttir.
28.3.2017 | 18:43
"Castle doctrine" gengur líklega betur
Tveir hinna myrtu voru yngri en 17 ára og einn 18 ára. Maðurinn skaut þá eftir snörp orðaskipti eftir að piltarnir höfðu brotist hinn.
1: Ekki myrtir. Drepnir. Það er munur. 2: Þeir voru þrír, hann einn. 3: Þeir *brutust inn* í hús þar sem *einhver var heima.* Einbeittur brotavilji, það.
Það sem ég velti fyrir mér... er þetta met? Finn ekkert á google nema eitthvað um lög.
Skaut þrjá innbrotsþjófa til bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2017 | 21:07
Hafið lítur ekki við mér
Hvað hafið sér, enginn veit.
Hvað hafið veit, enginn skilur.
En blautt er það, og fullt af fiskum.
Hafið leit að 20 börnum í mars | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2017 | 01:10
Orðið svona?
Ástandið hefur orðið friðsælla ef eitthvað er.
Það dró talsvert úr eftir 1994, til dæmis.
Kýld í gólfið og lenti á slysó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2017 | 01:09
Strategísk mistök ollu því
Hefði hann gert þetta þar sem helmingurinn af lögregluliði London var *ekki,* hefði hann getað grasserað lengur.
Árásin tók aðeins 82 sekúndur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2017 | 23:35
Svo margt rangt...
Og ekki bara málfarið. Það er efni í lærða ritgerð.
"Stærð dýra gæti farið að minnka vegna hlýnunar jarðar að mati vísindamanna. Sú ályktun er dregin af rannsóknum sem sýna að stærð spendýra hafi dregist saman þegar hliðstæðar loftlagsbreytingar áttu sér stað fyrir rúmlega 50 milljón árum síðan."
Hmm... lítum á jörðina nú. Stærstu dýrin er vissulega að finna í frosthörkum Afríku. Gírafar og Fílar og slíkt. Hér á funheita fráni eru bara lítil dýr eins og refir.
"Fjallað er um uppgötvunina á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph en þar segir að steingervingafræðingar hafi við rannsóknina fundið steingerða tönn forföður nútímahesta sem og steingert spendýr á stærð við kanínu með hófa."
Dettur þeim ekki í hug að aðrar ástæður valdi?
"Hugsanlegt er talið að stærð dýra hafi minnkað vegna þess að aðgangur að næringu hafi dregist saman vegna hlýnandi veðurfars."
Hvarf allur sandurinn sem þessi dýr borðuðu undir mold og gróður?
Minni dýr vegna hlýnunar jarðar? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2017 | 23:18
Bílar eru hentug vopn
Þeir eru útum allt.
Vissulega eru þeir talsvert flóknari í notkun en Kalashnikov-riffill - bara takkinn til að stilla rúðuþurrkurnar er flóknari í notkun og þarfnast meiri þjálfunar - og það er ætlast til að menn geti beitt þeim grip á ferð.
En á móti þykja bílar eðlilegur hluti af umhverfinu, á meðan Kalashnikov riffill myndi vekja eftirtekt.
Stealth!
Þegar maður hefur ekið einhvern niður á bíl, þá er hægt að búa til mikla vegalengd milli sín og fórnarlambsins.
Kalashnikov riffill er erfiður í notkun af meira en 100 metra færi. (Sigtin eru furðuleg. Enginn skilur þau.)
Þú getur enn keyrt yfir helling af fólki á meðan löggan/herinn er að skjóta á þig. Meðan þú ert að plaffa á fólk með riffli hverfur einbeitingin oftast.
Það er ekki hægt að banna bíla...
Bíll sem vopn: Hvers vegna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |