11.10.2014 | 19:12
Borðar þú útréttan arm?
11.10.2014 | 19:11
Viðeigandi, finnst mér
IS fyrir Islam.
Auðvitað.
Hey, það er ekkert langt síðan íslensk stjórnvöld gáfu islömskum öfgamönnum 135 milljónir - það var reyndar samfó, en samt...
Íslamska ríkið með .is lén | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2014 | 19:08
Flestir íslendingar eru fasistar
Strangt til tekið, grunar mig.
En:
Öfl fordóma, þjóðernishyggju og haturs teygja sig sífellt nær okkar eigin samfélagi.
Það er sam-mannlegt.
Og í vor var sakleysi íslenskra stjórnmála spillt.
Í vor? Hvar hefur þessi gaur verið alla sína æfi? Eða var honum hleypt út úr útúngunarklefanum í fyrra? Eða í gær?
Mín skoðun er sú að með kæruleysi, tækifærismennsku og lýðskrumi hafa íslenskir stjórnmálamenn fært okkur að forgarði fasismans,
Hans skoðun. Staðreyndin er sú að þetta fer vel í fólkið.
Stefán Rafn Sigurbjörnsson, formaður Ungra jafnaðarmanna
Ah... hehehehe...
Svo fer hann eithvað að nöldra út af framsókn.
Hann telur verk núverandi ríkisstjórnar hafa verið verri en nokkurn óraði.
Feh. Tek hana fram yfir stjórn Jóhönnu & Steingríms any day.
Alþingiskosningarnar voru okkur bitur reynsla þar sem stjórn félagshyggju var látin víkja fyrir íhaldsstjórn
Reyndar vék félagshyggjan bara fyrir aðeisn frjálslyndari félagshyggju, en... whatever. Þeir lifa í sínum draumaheimi,og ég get ekki breytt því.
Það kom okkur ekki á óvart að vinstristjórnin skuli hafa vikið eftir erfið fjögur ár en það sem tók við var í raun verra en okkur óraði, sagði Stefán.
Hvernig þá? Hann ætti að vera ánægður, núverandi stjórn er að leggja af matarskatt sem fyrri stjórn lagði á, lækka kolefnisgjaldið, sem fyrri stjórn lagði á, og seinst þegar ég tékkaði ætluðu þeir að lækka tekjuskattinn eitthvað smá.
Allt hlutir sem koma alþýðunni vel.
Á móti ætti hann kannski að vera sáttur við að núverandi stjórn er vissulega mjög stjórnsöm og fasísk, alveg eins og stjórnin á undan. Bara minna.
Alveg...
Íslensk stjórnmálaumræða: fasistar að furða sig á því af hverju fasistar hegða sér eins og fasistar, og eru fúlir út af því að þeir eru það sem þeir eru.
Hafa fært okkur að forgarði fasismans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2014 | 18:58
Af hverju er hann á móti þessu?
Er hann skyndilega orðinn þjóðernissósíalisti eða hvað?
Eða er hann bara á móti þessum aðal-andstæðingum frjálshyggju í heiminum í dag? Það væri vissulega uppörvandi.
Líklegasta skýringin er samt popúlismi.
Fólk er á móti ISIS vegna þess að þeim er sagt að vera á móti ISIS, svo Ömmi verður víst að vera það líka.
Hægt að banna notkun lénsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2014 | 18:28
Samnýtið bara
Typpið á milli okkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2014 | 18:20
Við skulum fara yfir þetta
Tekin verða upp strangari skilyrði fyrir innflutningi og verslun með skotelda, hæfnisskilyrði fyrir framleiðslu skotvopna og skotfæra verða aukin og strangari kröfur gerðar til geymslu skotvopna í læstum skápum, verði nýtt frumvarp um breytingu á vopnalögum að veruleika,....
Til hvers? Það þarf að fara ansi langt til að finna strangari lög en hér. Til Bretlands fyrst, annars út fyrir evrópu.
Samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu er þessum breytingum, auk annarra sem eru í frumvarpinu, ætlað að stuðla að auknu almannaöryggi á einn eða annan hátt,
Hvað meina þeir með almannaöryggi?
um leið eru tvær Evróputilskipanir leiddar í íslensk lög.
... sem eru? Og hvernig koma þær okkur við?
Þá eru ákvæði í frumvarpinu, sem ætlað er að aðlaga íslenskan rétt að ýmsum samningum sem ríkið hefur undirgengist, eins og til dæmis Chicago-samninginn um flugmál, en samkvæmt honum munu flugrekendur fá heimild til þess að eignast hand- og fótajárn til þess að nota vegna hugsanlegra óláta farþega.
Reip-teip hefur nú oft reynst vel, hef ég heyrt.
Þær tilskipanir Evrópusambandsins sem leiða á í íslensk lög snúa annars vegar að tilskipun um CE-merkingu skotelda, og hins vegar að tilskipun um kerfi til þess að auðkenna og rekja sprengiefni til almennra nota.
Til hvers? Og hvaða not eru af því?
Markmiðið með CE-merkingu skotelda er að koma á frjálsum flutningum á flugeldavörum á innri markaðinum
Þetta er lýgi. Þeir ætla að útiloka kínverja frá markaðnum.
Þá er í frumvarpinu kveðið á um það að sá sem framleiði, flytji inn eða versli með sprengiefni skuli sjá til þess að það, þar með talið smæstu einingar þess, sé sérstaklega auðkennt og að upplýsingar um efnin séu skráðar þannig að rekja megi feril þess.
... til hvers? Mín ágiskun: til þess að stækka opinbera kerfið, og gera það dýrara og þyngra í vöfum.
Samkvæmt ákvæðum frumvarpsins verður byssusmiðum skylt að setja auðkennisstafina IS, framleiðslunúmer og -ár, og auðkenni á þau skotvopn sem framleidd eru.
Það þjónar engum tilgangi.
Þurfa þeir einnig að skrá þau í skotvopnaská þegar smíði þeirra er lokið.
Það, eins og allt vopnaskráningakerfið er bara persónunjósnir.
Sömuleiðis verður skylda að setja eintaksnúmer á innflutt skotvopn sem skortir slík númer.
Aftur: tilgangslaust nema til njósna ríkisins.
Hins vegar er lagt til að skilyrðin sem uppfylla þarf til þess að fá undanþágu á innflutningi vopna til landsins vegna söfnunargildis þeirra verði hert, þannig að vopn þurfi bæði að vera gömul og hafa ótvíræð tengsl við sögu landsins, en áður dugði annað hvort skilyrðið.
Bara til þess að fækka hobbíum á landinu. Vegna þess að alkóhólismi á að vera nóg fyrir alla, eins og hann hefur alltaf verið.
(Byssur eru eitt af þessu fáa sem er beinlínis skaðlegt með alkóhóli, ólíkt til dæmis fótbolta, sem er alltaf skaðlegur, eða pílukasti, þar sem sportið verður bara meira spennandi eftir 4 bjóra.)
Þá er ákvæðum eldri laga, þar sem innflutningur og framleiðsla á eftirlíkingum vopna er bannað, breytt þannig að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu geti ákveðið að víkja frá þessu skilyrði, sé vopnið ætlað til nota við leiksýningar og kvikmyndagerð.
Man eftir því að í Japan var mjög auðvelt að redda nákvæmum eftirlýkingum af allskyns vopnum á sérstakra leyfa. Þau voru til úti á götuhornum þess vegna. Ég hefði geta fyllt töskuna af þeim.
Þetta var fyrir safnara.
Mér hefur enn þótt mjög spes að Japanir skuli vera frjálslyndari í þessu...
Þá bætast að lokum tvö skilyrði við útgáfu skotvopnaleyfa hérlendis. Sá sem vill fá slíkt leyfi verður samkvæmt frumvarpinu að leyfa könnun lögreglustjóra á hæfi sínu, og má að auki ekki vera meðlimur í eða í nánum tengslum við samtök sem teljast til skipulagðra brotasamtaka.
Uhm... ÞETTA VAR SVONA!
Í millitíðinni höfðu hinir voveiflegu atburðir í Útey og miðborg Óslóar gerst, en þar var notast við mikið magn sprengiefna og hálfsjálfvirk skotvopn.
Hugsið ykkur hve miklu færri morð Breivik hefði geta framið ef eitthvað af þessu Úteyjarliði hefði verið með byssu.
... kannski er ríkið að plotta eitthvað?
Ég meina... á maður að fara eitthvað að treysta yfirvöldum? Halda að þau vilji okkur vel eða hvað?
Í greinargerðinni eru nefndir nokkrir þættir sem hafi leitt til þess að auðveldara sé að nálgast vopn og sprengiefni, og eru velmegun, tækniþróun, greiðar samgöngur og frjálsræði í viðskiptum á meðal þeirra.
Aðgangur að matvöru og hreinsiefnum, það gefur okkur sprengiefni. Ef enginn er með byssu, þá er frekar auðvelt að kála öllum með hníf. Eða bara nota eitur. Það er auðvelt að fá, stela, búa til....
Hvar er ímyndunaraflið?
Ríkið, standandi gegn almannahag síðan 1944. Ef ekki fyrr.
Vopnalög þrengd í þágu almannahags | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2014 | 18:00
Heldur þessi dama að ríkið sé eitthvað þjónustufyrirtæki fyrir hana?
Svo er ekki.
Munið það. Tilgangurinn með ríkinu er annar.
Tölvan segir nei! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2014 | 00:36
Sandur
Þetta meiriháttar mega tjón sem menn eiga að hafa valdið þarna jafnar sig líklega á gríðarlöngum tíma, eða allta að viku.
Eða mánuði - fer eftir vindum.
Þeir eru bara að leika sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |