Merkilegt að þeir þó endist

Það er svo margt í boði sem er í raun ætt.
mbl.is Hagnaður McDonald's hríðfellur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju erum við, borgararnir, bætt, með þetta?

Ég spyr.  Ég satt að segja býst ekki í alvöru við að fá svör, en hugsum aðeins um þetta:

„Þjálf­un lög­reglu­manna í meðferð skot­vopna hef­ur lengst af verið í mý­flugu­mynd og að mínu mati ekki verið í sam­ræmi við þann veru­leika sem við búum við í dag,“ seg­ir Gunn­steinn R. Sig­fús­son

Við hvaða veruleika býr hann?  Annan en minn, greinilega. 

Gunn­steinn legg­ur áherslu á að það sé ekk­ert nýtt að lög­regl­an hér á landi búi yfir vopn­um.

Það gerir það ekki rétt.  (Og ekki rangt heldur.  Þetta er bara eins og að benda á að vatn sé blautt.  (ég geri það oft)) 

Dæmi væru fyr­ir vikið um að óvopnaðir lög­reglu­menn hafi verið send­ir á vett­vang þar sem skot­vopn hafi komið við sögu

Dóu þeir mikið? 

og nefn­ir hann sér­stak­lega eitt slíkt í Reykja­vík fyr­ir nokkr­um árum þar sem maður hafi verið skot­inn til bana. Gunn­steinn seg­ist þeirr­ar skoðunar að í slík­um til­fell­um þyrftu venju­leg­ir lög­reglu­menn að geta haft vopn við hönd­ina.

Hefði sá látni orðið minna látinn fyrir vikið?  Hvað hefðu þeir annars þurft að skjóta marga?

„Ef að út­kall sem þetta kem­ur t.d. upp á höfuðborg­ar­svæðinu get­ur staðan verið sú að vakt­haf­andi sér­sveit­ar­menn séu stadd­ir í Kefla­vík, Sel­fossi eða ann­ars staðar og því ekki í seil­ing­ar­fjar­lægð ef bregðast þarf skjótt við. Eins get­ur staðan verið sú í víðfeðmum embætt­um lög­reglu á lands­byggðinni að lög­reglu­menn séu stadd­ir í tug­kíló­metra fjar­lægð frá lög­reglu­stöð ef og þegar vopna­mál kem­ur upp. Þá er spurn­ing­in hvernig þeir eiga að bregðast við í slík­um til­vik­um?“ seg­ir hann.

Þetta vekur upp spurningu:

Þurfa borgararnir þá ekki að vera vopnaðir líka?

Ég meina, í núverandi stöðu lítur dæmið svona út:

Þú ert bara heima hjá þér að tjilla, þegar nokkrir vopnaðir menn brjótast inn, vopnaðir haglabyssum, og byrja að plaffa á þig.

Þú nærð kannski að fela þig inni í herbergi og hringja í lögguna.

Nú hafa glæponarnir að meðaltali korter til að skjóta þig í gegnum hurð, eins og Pistorius, og löggan kemur að þér dauðum.  Hvort sem löggen hefur vélbyssur eða ekki, þá er niðurstaðan: þú: dauður. 

Ef þú nærð ekki að hringja finnur löggan þig kannski á morgun, kannski eftir viku.  Dauðan.

Lögreglan gæti verið búin árásarþyrlum og skriðdrekum, en þú myndir samt enda dauður. 

Vegna þess að þú getur ekki skotið á móti. 

Bend­ir hann á að fyr­ir ör­fá­um árum hefði tal­ist óhugs­andi að vopnaður maður myrti tugi mann­eskja í Nor­egi.

Og engin þeirra skaut á móti. 

Ekki sé úti­lokað að hingað til lands gætu komið ein­stak­ling­ar í þeim til­gangi að fremja hryðju­verk.

Það bitnar fyrst á borgurunum.  Svo, þegar hryðjuverkamennirnir eru orðnir skotfæralausir, þá mætir löggan.

Það er huggun harmi gegn að þeir munu virka mjög skömmustulegir þegar þeir verða sendir aftur heim til sín.  

Komið hafi verið í veg fyr­ir ým­is­legt af þeim toga á hinum Norður­lönd­un­um.

Að sögn. 

Hins veg­ar spyr hann að lok­um hvað eigi að gera ef það sem talið er óhugs­andi ger­ist. 

Ja, það sem gerist: fullt af óvopnuðu fólki sem getur ekkert varið sig deyr.  Þegar það er búið mætir löggan.

Ríkið segir að það eigi að vera þannig. 


mbl.is Þurfa að geta gripið til vopna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. október 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband