Önnur auglýsing fyrir sjálfstæðisflokkinn

Árni Páll Árna­son, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar seg­ir rík­is­stjórn­ina standa fyr­ir skipu­legri aðför að al­mannaþjón­ustu.

Bara sama og á síðasta kjörtímabili þá?  Enginn munur?

Ja hérna, hissa er ég... 

Í ræðu sinni á flokks­fundi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í dag sagði hann gjald­töku hafa verið aukna hvarvetna og nefndi hann þær hækk­un á komu­gjaldi í al­mennri heil­brigðisþjón­ustu, aukna hlut­deild sjúk­linga í lyfja­kostnaði, hærri gjöld í op­in­bera há­skóla og áform um að hækka gjöld fyr­ir fólk yfir 25 ára aldri í fram­halds­skól­um lands­ins.

2 spurningar:

1: er þetta ekki það sama og öll ár á undan?  Ég man eftir þessu frá því ég fór í háskóla.

2: af hverju er fólk að fara í framhaldsskóla eftir 25 ára aldur?  Hvers vegna tekur það ekki bara upptökuprófið og fer í háskóla?

Var einhverju breytt á meðan ég var ekki að horfa? 

„Aðferð rík­is­stjórn­ar­inn­ar er ein­föld: Létta skött­um af þeim best settu og láta venju­legt fólk bera skatt­byrðina af full­um þunga,“

Já, setjum sykurskatt á þá - sem leggst af einhverjum orsökum á kaffi... setjum á kolefnisgjald, sem fer allsekkert út í vístölu og hækkar húsnæðíslánin ekki neitt, og hækkum VSK úr 24.5 í 25.5%, vegna þess að það gerir allt ódýrara.

... eða hvað? 

Árni sagði Bjarna jafn­framt koma upp um sig þegar hann segðist vera á móti því að taka lán til upp­bygg­ing­ar hjúkr­un­ar­heim­ili en færi á sama tíma ráns­hendi um Fram­kvæmda­sjóð aldraðra og tæki þaðan fé til að reka hjúkr­un­ar­heim­ili sem þegar hafa verið byggð.

... er framkvæmdasjóður aldraðra ekki til þess að reka hjúkrunarheimilin?

Er eitthvað markmið að steypa öldruðum í skuldir?  Til hvers? 

„Ef menn vilja ekki taka lán til að byggja hjúkr­un­ar­heim­ili þarf að safna fé til að byggja þau.

Meikar sens.

Árni er mikill stuðningsmaður Bjarna Ben.  Hann lætur manninn virka skynsaman.


mbl.is Markmiðið er að skemma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur út á eitt fyrir manninn á götunni

Ég er alltaf að benda á þetta:

Ef morðingi mætir þér á förnum vegi og drepur þig með frjálsri aðferð, hverju ertu bættari með að löggan finni þig fyrr en síðar?  Hvernig er betra að löggan finni líkið af þér vel vopnuð?


mbl.is 260 kílómetrar í næsta sérsveitarmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. nóvember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband