Darwin verlaunahafi?

Kannski.


mbl.is Lést úr áfengiseitrun á afmælisdaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt óttaleg smámál

Hann segir ekki orð um mestu vandamálin:

1: Það er ekki hægt að safna pening til elliáranna, vegna þess að: A: verðbólga étur hann upp á nó tæm, B: kerfið á til að hrynja með óreglulegu millibili, sem leiðir oftar en ekki til A, og C: ríkið er víst til að stela bæði fé & eignum ef svo ber undir.

2: Þú getur gengið að því sem vísu að allt er bannað.  Ef það er ekki þegar bannað, þá verður það bannað þegar ríkið kemst að því að það er til.

3: Þú ert álitinn vangefinn af ríkinu og borgurunum.  Það er virðingin sem ríkið ber fyir þér.  Það er virðingin sem fólk ber fyrir hvort öðru.  Þetta er aðal ástæða atriðis nr 2.

4: þú verður ekki metinn að verðleikum, heldur eftir klíkunni sem þú ert í.

5: fólk virðist vilja hafa þetta svona.


mbl.is Ísland, ekki svo best í heimi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt lítið skref í átt að frjálshyggju

Sem hefur verið óþekkt fyrirbæri á íslandi síðan land byggðist.

Manna­nafna­nefnd verður lögð niður og for­eldr­um gefið fullt frelsi til þess að ákveða nöfn barna sinna

Það sparar örugglega stórfé.

Þá verður enn­frem­ur heim­ilt að taka upp ný ætt­ar­nöfn en það hef­ur til þessa ekki verið heim­ilt.

Þá geta menn kennt sig við heimili sín, eins og þekkist í þýzkalandi, og menn heitið til dæmis Jón Reykvíkingur, Eiríkur Kópavogsbúi, og svo framvegis, nú eða menn geta heitið starfsheitum sínum, eins og þekkist víða, td í Bretlandi, og menn heitið Alfreð Bensínafgreiðzlumaður eða Finnur Hellulagningamaður.

... fyrsti flutn­ings­maður þess er Ótt­arr Proppé,

Viðeigandi.

Þar seg­ir enn­frem­ur að meg­in­mark­mið frum­varps­ins sé „að und­ir­strika þá meg­in­reglu varðandi nöfn og nafn­gift­ir að al­mennt skuli gert ráð fyr­ir því að nöfn séu leyfð, að for­eldr­um sé treyst til að velja börn­um sín­um nafn og að jafn­ræðis­regla stjórn­ar­skrár­inn­ar sé virt.“

Þeir eru á réttrí leið.

Hags­mun­ir al­menn­ings af því að búa í frjálsu sam­fé­lagi þar sem jafn­ræði er tryggt er mun rík­ari en hags­mun­ir niðja þeirra fáu sem fengu í krafti for­rétt­inda eða fjár­hags­legr­ar stöðu sinn­ar að halda og eða velja sér ætt­ar­nöfn á síðustu öld,“ seg­ir enn­frem­ur.

Þetta þarf að víkka út svo það gildi um meira en bara nöfn.  Menn sem heita Guð Almáttugur eru engu bættari með það ef þeir verða samt settir í djeilið fyrir að flytja inn ólöglega brauðrist.

Þá sé það tíma­skekkja að gera þá kröfu að dreng­ir beri karl­manns­nöfn og stúlk­ur kven­manns­nöfn sem þurfi að leiðrétta.

Hafa þetta eins og í Mexíkó þá?  Þar heitir annar hver maður María, óháð kyni.

Nær þetta í gegn?  Hver veit.

Það má alveg draga úr forræðishyggjunni hérna.  Á fleiri sviðum.


mbl.is Allir fái að bera ættarnöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. nóvember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband