7.11.2014 | 15:34
Ekki algengt, en gerist
Minnir á Issei Sagawa.
http://en.wikipedia.org/wiki/Issei_Sagawa
Hann er víst veitingahúsagagnrýnandi í japan núna...
Já...
Át auga konunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2014 | 13:46
Jákvætt og neikvætt
Það felst viss sparnaður í því fyrir þjóðina sem heild að vera ekki að eyða of miklum gjaldeyri í bíla. Við framleiðum þá ekki, og nútíma-bíll á að endast vel yfir 15 ár, ef menn muna að fara alltaf reglulega og skifta um olíu.
Það er ekkert að því að vera á gömlum bíl.
Á móti gæti verið að bílum sé að fækka, sem getur bent til fátæktar -að fólk hafi bara ekki efni á að reka bíl- eða það sem verra er: að færri séu að fá bílpróf.
Bílpróf er dýrt. Miklu dýrara en það þarf að vera.
Þið komið ekki auga á vandamálið alveg strax. Ekki fyrr en viss hluti lágstéttarinnar (og hún mun verða til) þekkist á því að hún er ekki með slík réttindi.
Svona líkt og tekjulágt fólk þekkist núorðið á reykingium.
Þetta dregur úr möguleika þeirra til þess að fá vinnu, vegna þess að sum vinna felur í sér akstur.
Þetta verður svona í framtíðinni, vitiði til.
Og þið munið ekkert pæla í af hverju sumt fólk er svona útilokað frá vinnu, og þið munið ekkert gera til að laga þetta.
Bílaflotinn úreldist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2014 | 12:50
Ég man þegar það hét þrælkun...
Ég er ekki að fíla þetta newspeak.
Björguðu 11 börnum úr mansali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2014 | 12:28
Þetta þarf að dreifast betur
Svona fólk, farið að safna.
Löggan segir okkur að von sé á stórhættulegum gangsterum frá útlöndum, innanríkisráðuneytið býst við hryðjuverkamönnum og hefur ekkert lært af atburðum útey eða neinum öðrum stað, og í ofanálag eru kommúnistar farnir að stunda undiróður, og við vitum allt um þá og þeirra hetjur.
Che, einhver?
Og það er þegar vitað að það eru alltaf minnst 5 mínútur í lögregluna.
*Þið* þurfið vopn. Á ykkur. Alltaf.
Mogginn segir það.
Fimm eiga meira en 100 skotvopn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |