Hvernig brýtur maður hest?

Ég velti því fyrir mér.

Helst dettur mér í hug að best væri að heilfrysta kvikyndið í fljótandi köfnunarefni, og lemja það svo með sleggju, eða bara láta það detta í gólfið úr sæmilegri hæð.

Þá mun hesturinn vissulega brotna í marga mola.


mbl.is Sögð hafa „brotið“ hest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er sandur

Hvað eru menn að æsa sig?


mbl.is Sandurinn allur í hjólförum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér líst vel á þennan kött

Grænt fer honum vel.

Hann væri góður með bláa kettinum í kattamatarauglýsingunni þarna.

Ekki veit ég af hverju kettir mega vera bláir í friði, en ekki grænir.


mbl.is Allt vitlaust útaf græna kettinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langar ekki í svona

Þeir eru ekki marg­ir jepp­arn­ir sem gera jafn­ríkt til­kall til nafn­bót­ar­inn­ar „Kon­ung­ur jepp­anna“ og Toyota Land Cruiser 200.

Willys CJ.  Allt annað er bara eftirherma.  Betri eða verri, bara eftirherma.

Vin­sæld­ir Land Cruiser hér á landi renna stoðum und­ir nafn­bót­ina

Eða plebbaskap.

Þessi vold­ugi jeppi er kafli út af fyr­ir sig í jeppa­flóru lands­manna.

Hvernig?

2014-gerðin virðist ef til vill ekki mikið breytt við fyrstu sýn...

Það verður alltef að breyta einhverjum smáatriðum til þess að menn nenni að skifta um.  Þetta er jú stöðutákn.

Þeir lærðu það way back in the sixties hjá Lincoln að það þarf að breyta útlitinu öðru hvoru.

Það fyrsta sem slær mann þegar sest er und­ir stýri er inn­an­rýmið.

Ef þessi bíll er stærri að innan en 198X Chevy Blazer verð ég hissa.

Þá er gam­an að því hve hátt er setið í bíln­um,

Auðvelt er að skemmta þér þá.

...inn­stigið er frek­ar hátt.

Á íslensku: það þarf að príla uppí þetta bákn.

Eins og hefðin seg­ir til um

... hvað.

Meira að segja gaum­hljóðið í stefnu­ljós­inu er fag­legt á að hlýða,

HAHAHA!

Það er tekið eft­ir Land Cruiser 200 á göt­um úti,

Man ekki eftir að hafa séð neinn í svipinn.  Þó veit ég að einn gaur á eyjunni á svona.  Þeir eru í raun ekki mjög ólíkir 150 bílunum.

Hann vigt­ar enda tvö og hálft tonn

Innbyggð vigt?  Sniðugt.

Dísil­vél­in sem prófuð var tog­ar nefni­lega 650 Nm milli 1600 og 2800 snún­inga og það er hrein unun að botna þenn­an til­komu­mikla dreka.

Það er enginn lúxus í að aka einhverju með ljósavél úr einhverjum togara.

...þegar vél­in rym­ur af stað skil­ar hljóðið sér samt til öku­manns, og það er bara hluti af lúxusn­um.

Það er ekki lúxus.

200-bíll­inn er skemmti­lega rás­fast­ur

Svona langir bílar á grind eru það oftast.

og fjöðrun­in er hreint framúrsk­ar­andi

Fyrir þennan pening er það eins gott.

Sjálf­skipt­ing­in er að sama skapi þýðgeng

Sjálfskiftingar eru aldrei "þýðgengar."

... ákveðið af­rek að hún sé jafnþrepa­laus í akstri, að kalla, fyr­ir svo stór­an bíl.

Hvað kemur það stærð ökutækisins við hvernig sjálfskiftingin virkar?

Þegar á fram­an­greint er litið kem­ur það ræki­lega á óvart að Land Cruiser 200 sé með und­ir tíu lítra eyðslu á hundraðið en það er til­fellið með díselút­gáf­una – 9,5 lítr­ar.

Á langkeyrzlu kannski, og þá á stöðugum 90 km hraða.  Innanbæjar, dream on.

Þegar á allt er litið er erfitt að tína til galla á Land Cruiser 200.

Auðvelt: Stór, þungur, ljótur, dísel, allt of dýr, frumstæður.

Tutt­ugu millj­ón­ir eru auðvitað tölu­verður pen­ing­ur en, eins og þar stend­ur, þetta er frá­bær bíll – ef þú hef­ur efni á hon­um.

Ef ég ætti 20 millur, myndi ég sennilega kaupa eitthvað annað.

Fyr­ir þá sem kjósa rúm­góða og vel búna lúxusjeppa eru keppi­naut­ar Land Cruiser 200 ekki marg­ir.

Fyrir þá sem hafa efni á þessu, þá er mikið framboð: Range Rover, fyrir þá sem vilja extra góðan bíl.  Lincoln eða Cadillac fyrir þá sem taka þægindi og "presence" fram yfir allt annað.  Benz.  Porche, fyrir þá sem vilja aka mjög hratt.  Svo er náttúrlega þetta: http://www.conquestvehicles.com/index.html

Fyrir hina sem vilja bara bíl sem er gaman að keyra og treystandi fyrir allskyns torfærum: Hilux.  Það er eina góða Toyotan.  Verst með vélarnar... en hey, ekki verður á allt kosið.


mbl.is Lystisnekkja á hjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. desember 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband