5.12.2014 | 16:34
Sniðugt
Nú verður létt verk að taka framdrifið úr sambandi, henda öllu þessu óþolandi spólvarnar og skriðvarnar drasli út á hafsauga, og aka um á almennilegum bíl.
Fjórdrifinn bíll sem beðið er eftir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2014 | 16:33
Ný-fasískur?
Hvað þýðir það?
Ja, ef maður miðir við málnotkun undanfarin ár, þá þýðir forskeitið "ný" það sama og rökfræðitáknið ~.
Flettið því upp.
Þetta er semsagt voða nýstárlegur og öðruvísi flokkur sem er þarna á ferðinni.
Svíþjóðardemókratar nýfasískur flokkur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2014 | 16:29
Það tók þá 25 ár að taka við sér
Ég vissi af þessari auka-mengun fyrir 20 árum. Franska ríkið tók eftir henni í hitt-í fyrra. Og bregst við henni einhverntíma í framtíðinni.
Það er ég viss um að Íslenska ríkið tekur eftir þessu eftir 20 ár.
"Um er að ræða nýtt flokkunarkerfi á dísilbílum..."
Það hljómar mjög flókið og bjúrókratískt.
"Með því er ætlunin að draga fram í dagsljósið helstu mengunarbílana..."
... ha?
"Meðal annars með því að hætta smátt og smátt sölu á dísilolíu til einkabílsins."
Vegna þess að menn aka ekki bílum, heldur ferðast þeir alfarið sjálfala. Vegna þess að þannig er Frakkland bara.
Annars langar mig í svona mengunarbíl. Hljómar vel. Hvar fæ ég svoleiðis?
Frakkar ætla að útrýma dísilbílum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |