Bítur aftur

Hann hefur ekki bitið látlaust síðan hann læsti tönnunum í sitt fyrsta fórnarlamb.
mbl.is Luis Suárez enn að bíta - myndband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðið er "afturkallaði"

"Sneri við" þýðir svolítið annað.
mbl.is Sneri við dauðadómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt þarna sem vert er að skoða nánar:

"...á und­an Banda­ríkj­un­um, sem eru í 21. sæti. Fyr­ir utan Nýja Sjá­land skipa Evr­ópu­lönd tíu efstu sæt­in og eru einnig fjöl­mörg þar á eft­ir."

Svo að skilja, að á lista þar sem eru fleiri en 21 hlutur, eru margir hlutir á eftir þeim fyrstu 10? 

"...að finna út hvað það sé sem fólk sæk­ist eft­ir í gjörðum og fram­komu ákveðinni landa."

Gjörðum og framkvæmdum landa?  Það var og. 

"Vanda­málið við út­reikn­ing vísi­töl­unn­ar er að hún not­ast við ákveðinn fjölda gagna­safna sem ná bara til ákveðinna mála­flokka.

Alltaf vandamál, en það verður að halda tölunum viðráðanlegum.

" Þannig dett­ur Ísland niður um þónokkuð mörg sæti þegar kem­ur að framtíðar­horf­um ..."

Pet peeve, ég veit, en hvað er alltaf að koma að öllu?

"Það skil­ar okk­ur í 101. sæti al­mennt varðandi framtíðar­horf­ur..."

Þetta er ekki góður stíll.

"í heild erum við í efsta sæti þegar kem­ur að nátt­úru og lofts­lagi..."

Hvað kemur að náttúrunni og loftslaginu? 

"...og í 15. sæti yfir aðkomu að stöðug­leika í heim­in­um.

Hvað þýðir það eiginlega?  Ég er ekki viss um að þetta sé á neinu mennsku máli:

"Aðkoma að stöðugleika?"  Er heimkeyrzla að honum?  Kannski bílastæði fyrir framan hann?

"15. sæti yfir..." hef ekki heyrt þá málnotkun áður.

Nei, ég hef ekki hugmynd um hvað neitt af þessu þýðir. 


mbl.is Írland er besta land í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júní 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband