Súrrealískt

Valtteri Bottas hjá Williams sló í gegn og varð ann­ar í mark

Bæði? 

Hann sagðist undr­ast þann hraða sem bíll hans bjó yfir í braut­inni.

Þetta var alls ekkert hraðskreiður bíll, nei nei, hann bara "bjó yfir hraða."  Hvað hann var hinsvegar að gera í brautinni veit ég ekki, né heldur hvernig hann komst þangað.  Eru menn alveg vissir um að hann hafi ekki verið *á* henni? 

„Fram að fyrsta stoppi var hraðinn mjög góður og ég færðist fram á við.

Minn bíll færist líka oftlega fram á við, sérstaklega þegar hann er ekki í bakkgír.  Þá ferðast hann nefnilega afturábak 

Bottas seg­ir ár­ang­ur sinn kraft­birt­ing­ar­form þess að Williamsliðið sé í mik­illi fram­för.

Þetta er sko fokking ljóðrænt.  Ekki það að ég botni í merkingunni, en fokking ljóðrænt, maður. 

Felipe Massa, varð að hætta keppni á fyrst hring eft­ir að hafa dreg­ist inn í hið harka­lega óhapp Kimi Räikkön­en hjá Ferr­ari.

Dregist inní óhapp?  Hvaða hvaða... menn festir saman með  streng núna? 


mbl.is Bottas undraðist bílhraðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarar ekki kostnaði

300K+ fyrir *bara* rútupróf?  Og vera þá á ekkert spes launum?

Nei.

Ætli þeir verði þá ekki bara að ráða einhverja útlenda menn sem hafa fengið prófið með hjálp MS paint.


mbl.is Skortur á rútubílstjórum á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. júlí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband