26.8.2014 | 10:50
Of dýr miðað við allt.
Toyota hefur sett á markað nýja gerð Yaris-smábílsins ... Víst er það satt að breytingarnar eru þónokkrar, aðallega á útliti bílsins en þó einnig á undirvagni.
Grunar mig að það hafi verið sóun á tíma og peningum.
Augljósasta breytingin er þó að framan,...Verst bara hvað risastórt loftinntakið minnir mann á yfirvaraskegg eins og á litlum Mexíkana.
Andele andele, arriba! (Hvað sem það nú þýðir.)
Næsta kynslóð Yaris verður reyndar framleidd í Mexíkó
Ég átti einu sinni mexíkanskan bíl. Hann lak. Öllu.
þegar þar að kemur samhliða nýjum Mazda2, og þá munu þeir bílar nota Skyactive-vélarnar frá Mazda, en það er framtíðarmúsík.
Nei, *þetta* er framtíðarmúsík: https://www.youtube.com/watch?v=9a_lOcavDwI
Toyota lagði nokkra vinnu í endurhönnun á undirvagni bílsins sem er stífari en áður.
Sem er algjörlega tilgangslaust, með það í huga að þessi ökutæki ná ekki einusinni 100 km/h niður brekku.
Það finnst vel í akstri hvað bíllinn er skemmtilegri og liggur betur þótt hann virki örlítið hastari á hraðahindrunum.
Og af hverju höfum við meira af en nokkuð annað land á jörðinni, og þó víða væri leitað? HRAÐAHINDRANIR!
Nýr Yaris Hybrid er sá hreinasti í sínum flokki
Minnir mig á að ég þarf að ryksuga bílinn minn að innan bráðlega.
kolefnisgildi hans er aðeins 75 g á km.
Af hverju má ekki borða fíflin sem fundu upp þetta "kolefnisgildi?" Það er ekki hæft til annars en manneldis. Eða sem dýrafóður, ef allt fer a versta veg.
Vélin er 1,5 lítra
Hah! Minn er 1600. Gerið betur en þetta.
Í tvinnútgáfu er hann aðeins fáanlegur með CVT-sjálfskiptingu
Why bother?
Þegar honum er ekið rólega eyðir hann hins vegar mjög litlu enda rafmótorinn að hjálpa til.
Hey, minn bíll eyðir mjög litlu, þó hann hafi engan rafmótor og sé talsvert þyngri, ekinn meira en 200K og sjálfskiftur. Vegna þess að hann er Honda. Sem er miklu betri bíll í alla staði.
Hægt er að stilla á rafstillingu eingöngu í um það bil tveggja kílómetra akstur á hraða undir 50 km á klst.
Það kemur mér varla út í búð. Og ég er í eyjum.
Búið er að færa bæði rafhlöður og bensíntank undir aftursætin og þess vegna er óhætt að segja að Yaris er rúmgóður fyrir smábíl að vera.
Bíllinn er rúmgóður vegna þess að a það eru rafhlöður undir aftursætunum á honum.
Það var og.
og það er "af smábíl að vera" eð ekki "fyrir smábíl..."
Pláss fyrir farþega í aftursætum er þokkalegt og munar þar mest um gott höfuðrými og flatt gólfið.
En ekki hið illa höfurými og mishæðótt gólf gamla Yarisins.
Fótarými er þó af skornum skammti ef þeir sem frammi í sitja þurfa sitt pláss. Mesta plássið er þó í framsætum sem eru bara nokkuð þægileg þrátt fyrir að vera í minna lagi.
Af hverju ætti maður að taka þennan bíl fram yfir Ford Fairmont?
Það er reyndar dálítð langt að teygja sig í stýri og stjórntæki hægra megin við stýrið.
Er annað stýri? Af hverju?
Einhverra hluta vegna er mjög stuttur aðdráttur á stýri
Ef ég bara vissi hvað það væri...
... efnisval í innréttingu er betra en áður.
Ef það er ekki viðarpanell á mælaborðinu og shag-teppi á hurðunum, þá er ekki gott efnisval þar.
Bakkmyndavél, loftkæling og blátannarbúnaður er allt staðalbúnaður til að mynda.
Þarf það eins og gat á hausinn.
Til dæmis er hún ennþá tæpri hálfri milljón dýrari en best búna Fiesta sem hægt er að fá.
Þá er augljóst að maður ætti frekar að fá sér svona Fiestu.
Betra er þá að miða við grunngerðir bílanna, en þar munar talsvert minna. Toyota Yaris er í grunninn á 2.690.000 kr. en ódýrasta Fiestan er á 2.450.000 kr. Mazda2 er ennþá ódýrari á aðeins 2.190.000 í sinni ódýrustu útfærslu.
Og Chevy Cruze, sem er einum klassa fyrir ofan er einungis 200K dýrari. Og þá færðu stærra skott, meira pláss og stærri vél. Sem er ekki hybrid, sem er betra.
Sparibaukur sem á sér fáa keppinauta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2014 | 10:24
Meira fyrir peninginn
Það kostar ekkert meira að fara til meginlands Evrópu en að fara til Akureyrar (framborið Agureyri).
Gisting á einhverju hóteli sem manni dettur í huga að bara mæta á hvar sem er í evrópu kostar minna en gisting sem maður hefur fyrir því að panta á islandi með fyrirvara. (Með undantekningu... einni sem ég veit af - hugsanlega fleiri, en hey... veit bara um eina.)
Ef maður hefur ekki ákveðið að skreppa til Köben, er verðlag allstaðar lægra en hér heima. Á öllu. Mat, drykk, bílaleigubíl, jú neim itt. Þetta á sérstaklega við um Þýzkaland.
Og talandi um Þýzkaland:
Líkurnar á að vera böstaður fyrir að aka eins og maður eru engar. Það er allstaðar hægt að fá jagermeister, og bjór er ódýrari en gos. Og maturinn er æðislegur.
Íslendingar meira til útlanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2014 | 10:17
Hentug stærð
1967 Plymouth Valiant er sennilega hentugasti bíll sem framleiddur hefur verið.
Ekki of lítill, nóg pláss, þolanlega stórt skott. Passar í öll stæði. Við þyrftum eiginlega að fá mótin af þeim bíl og fara að smíða þannig bíla hér á landi. Gætum haft í þeim annaðhvort orginal slant6, sem eyðir ekkert sérlega miklu, eða eitthvað nýrra, eins og td 2 lítra Toyota, eins og var í Carina, eða eitthvað í þeim dúr.
En nei...
Hér á landi virðumst við aka annað hvort A: hræbillegum bíldruslum af verstu sort, því það eru ódýrustu bílarnir; Chevy Cruz og þaðan af verra sem berst til okkar með magnkaupum frá bílaleigum; eða B: forljótum, rándýrum, en ekkert sérlega góðum jeppum. Eins og Landcruiser. Vegna þess að plebbar með peninga eru fífl.
Sumir segja að Range Rover séu góðir... jæja, bíðið þar til þeir byrja að bila.
Örfáir sérvitringar fjárfesta í góðum bíl.
Þetta gerist af skattaástæðum - sem sagt, sömu ástæðum og Ford F150 er vinsælasti bíllinn í USA. Lög & reglugerðir beina fólki í þetta. Óbeint.
Danir hafa það helvíti skítt núna, að þurfa að sætta sig við vita-kraftlausar véltruntur eins og Skoda Oktavia, en það þurfum við líka.
En, Danir hafa hærri ráðstöfunartekjur en við...
Danir aftur í millistærðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |