19.9.2014 | 19:36
... ja hérna.
Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er ekki viðunandi. Fólk er undir fátækramörkum þar,
Hvort segir maður fátækramörk eða fátæktarmörk? Ég held það síðara.
...skýrsluhöfundur nýrrar skýrslu...
Sic erat scriptum.
"Segir mannréttindalög á fólki brotin"
Mannréttindalög á fólki?
"Vandamálið hér á Íslandi er að sveitafélögin hafa sterkan sjálfsákvörðunarrétt"
Er það nauðsynlega vandamál?
"Við höfum mannréttindalög og ýmislegt annað sem verið er að brjóta á þessu fólki"
Þessu fólki? Starfsmenn sveitarfélaga og/eða ráðuneyta? Eða einhverjum allt öðrum?
" Þess vegna mælum við með því að lágmarks framfærslan sé endurskoðuð í hverju landi fyrir sig og hún geri það að verkum að fólk þurfi ekki að lifa í fátækt."
Fólk þarf ekkert að lifa í algerri fátækt. Fyrir heilbrigða menn er létt verk að fá sér vinnu. Til að vera á örorkubótum þarf maður að vera við góða heilsu til þess að starfa við kerfið - eins og það er kallað af kaldhæðnari mönnum.
Annars er þessi texti hið mesta torf.
Fólk er undir fátæktarmörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2014 | 16:14
Það er rétt
Allar tilraunir til þess að þvinga fólk til þess að hjóla, alveg óháð því hve hentugt það er, *það* er mál vinstri manna.
Svo, þegar komið er nógu langt til vinstri banna þeir hjólreiðar líka.
Hjólreiðar ekki mál vinstri manna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |