2.9.2014 | 21:14
Ætti hann ekki einmitt að gera það?
Ekkert gott getur hlotist af því að bregðast við þarna.
Segi ég.
Ekki á móti stofnun hersveitanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2014 | 18:01
HAHAHA!
Síðastliðna mánuði hafa bílablaðamenn á Íslandi gaumgæft og prófað þá nýju bíla sem komið hafa nýir á markað á þessu ári og koma því til greina í vali á bíl ársins 2015.
... en það er 2014 núna...
Bíll ársins 2015, verður þessu Audi: http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=43&cid=102257&sid=392515&schid=642d6ec6-0fe8-40dc-9a50-1ce7f8b25f54&schpage=1
Þættir sem skipta þar miklu máli eru aksturseiginleikar, gæði, öryggi, hönnun, hagkvæmni, umhverfisþættir, rými og fleira í þeim dúr.
Förum yfir það frá mínum sjónarhóli:
1: not available in this country
2: Glætan að meðal íslendingurinn hafi efni á því.
3: Kemur standard - en er annars ökumanninum sjálfum að kenna.
4: Hún kemst kannski í tísku aftur. Þetta fer allt í hring, sjáið til.
5: Non disponibile in questo paese
6: Það er ekki nógu hátt undir flesta fólksbíla.
7: nicht verfügbar in diesem Land
Í ár er úrvalið afbragðsgott og verða bílar valdir í fimm flokkum: Smábílar, fjölskyldubílar, jeppar og jepplingar, sportbílar og vistvænir bílar.
Vistvænir bílar?
Í flokk vistvænna bíla falla rafmagns- og tvinnbílar auk bíla sem knúnir eru öðrum orkugjöfum en hinum hefðbundnu dísil- eða bensínvélum.
Ok... Go kjarnorka!
VW Golf var efstur í flokki minni fólksbíla,
Síðan hvenær er VW *góður bíll?* Jú, svona fyrst, en svo byrja hlutir að detta af. Sem er kvimleitt.
Skoda Octavia í flokki stærri fólksbíla
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!
... stór... hehe...
Honda CRV í flokki jeppa og jepplinga.
Kannski ekki skrítið.
Flest stig hlaut Skoda Octavia og var hann því bíll ársins 2014.
Það er þegar komið fram. Vegna þess að það er þegar fram komið. Þvi þessar upplýsingar hafa byrst áður á undan hér að ofan fyrir framan. Endurtekningar eru endurtekningarsamar.
... árið 2011 varð Volkswagen Passat í metanútfærslu fyrir valinu.
Keypti einhver svoleiðis?
Valið er aldrei auðvelt, enda margir prýðilegir nýir bílar sem standa kaupendum til boða.
Nei. Við höfum úr að velja margar gerðir POS bíla á allt of háu verði. Góðir bílar eru aldrei fluttir hingað inn, enda allt of dýrir.
Það verður því áhugavert að sjá hvaða niðurstöðu bílablaðamenn komast að eftir prófanir, grúsk og heilabrot!
Nei.
Einstaklega fjölbreytt úrval nýrra bíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2014 | 16:40
Ódýrast væri að búa til vatnshalla
Það sem eir þurfa að gera er að fara upp á þak, steypa fyrir smá vatnshalla, sem þýðir smá breytingu á útliti spítalans.
Ef arkitektinn eða afkomendur hans eru á móti þvi, þá kýlum við á bara. Það væri þjóðþrifaverk.
Það er ekkert hægt að hafa þetta svona, lekandi annað hvert ár, með tilheyrandi kostnaði, smithættu og veseni.
Mega búast við leka næstu mánuðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2014 | 16:36
Þetta má sjá í Tokyo og nágrenni
Forneskjulegir Landcruiser jeppar. Ekki margir, en þeir eru til.
Svolítið vel af sér vikið, með það í huga að meðalaldur farartækja í japan er frekar lágur. Bílar eldir en 5 ára kosta slikk á bílasölum. (Verðlag á nýjum bíl er svona 70-80% af því sem þekkist hér á landi. Afföllin eru talsvert hraðari.)
Nýju bílarnir hinsvegrar sjást síður. Kannski þykja þeir ljótir? Má vera.
Toyota hverfur aftur til fortíðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |