Fengu þeir ekki lán?

Það hefur hingað til verið viðurkennd aðferð til bankarána.  Að taka bara lán, og borga þau ekki aftur.

Allt fellur á þá sem skrifuðu undir eða einhver veð sem ekkert er í.

Svo skipta menn um kennitölu og taka annað lán.

Þannig hafa menn getað framið mörg bankarán, og alltaf komist upp með allt saman.


mbl.is Komust undan með peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jeppi"

Þetta er enginn jeppi.

RX, eins og ég sá hann, var vissulega með drif á öllum, vegna þess að það voru 2 vélar - sem er spes.

En það var heldur ekkert lágt drif.  Ekkert læst.

Það er vissulega smá freistandi að fara í smá torfærur á þessu, en samt ekki.  Það er t.d. hærra undir RAV4 bílinn, sem er heldur ekki jeppi (ekki drif á öllum í alvöru) og hann er stórlega of framstæður.  Aðkomuhornið getur ekki verið mjög krappt.

Það sem við höfum þarna er rallýbíll.

Einhverjum hlýtur að detta í hug að nota hann sem slíkan - kannski eftir 10 ár þegar þeir hafa fallið í verði sökum aldurs.

En jú - þetta vantar alveg þessi 300+ hestöfl.


mbl.is Frumsýna Lexus lúxussportjeppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. desember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband