Þetta tvennt útilokar ekki hvort annað

"Kraftmikill en samt þýðgengur"

*en samt?*

Þýðgengi fær maður með annað hvort hærri ganghraða eða fleiri sílyndrum.

"Nýi bíll­inn er fimmta kyn­slóð þessa vin­sæla pall­bíls sem seld­ist vel á Íslandi þegar inn­flutn­ings­gjöld voru pall­bíl­um hag­stæð og þeir báru lægri vöru­gjöld en sam­bæri­leg­ir jepp­ar. Nú er tíðin önn­ur og þess vegna skipt­ir máli að þeir mengi minna en áður,"

!!!

Nei, það skiftir nestu að hann sé ódýr.  Og helst að hann eyði sem minnstu miðað við stærð og afl.

Öllum er sama hve mikið þetta mengar.

"Nýja MIVEC-dísil­vél­in er eina vél­in í boði í þess­um bíl og satt best að segja dug­ar hún vel þrátt fyr­ir að vera aðeins 2,4 lítra."

Ráðfærum okkur við MMC á útlandinu: Þar er boðið uppá 4 vélar: 3 díesl, eina 2.4 bensín.  Virðist vera all frumstætt, allt saman.

Það er einhver afríku-fílingur í þessu öllu.

"Þess vegna er eyðsla henn­ar aðeins 7,2 lítr­ar á hundraðið í blönduðum akstri,"

Mælduði?

"Til sam­an­b­urðar er CO2 inni­hald Toyota Hilux..."

Já, það er ég viss um að Hilux inniheldur CO2, alveg eins og allt annað sem getur innihaldið andrúmsloft.

" L200 er eini pall­bíll­inn sem hægt er að keyra í hvort sem er aft­ur­hjóla­drifi eða fjór­hjóla­drifi við hvaða aðstæður sem er."

Það grunar mig nú að hægt sé að keyra jafnvel crappy pallbíla eins og Dodge Ram við hvaða aðstæður sem er í hvoru drifinu sem verða vill.

"Kost­ur­inn við að geta sett hann í fjór­hjóla­drifið í háa..."

... hafiði einhverja hugmynd um hve gömul þessi tækni er?

"...og lengja blaðfjaðrir að aft­an..."

Fjöðrunin á þessu er hvað nú?  Blaðfjaðrir?

Nýtýzku, það.  Alveg eins og á 14. öld.

"Nýr L200 er á mjög svipuðu verði, 7.390.000..."

Fyrir þann pening er unnt að hringja vestur um  haf og láta senda 10 Ford 150 trukka, innan við 10 ára og lítið ekna.

Það eru miklir klassabílar, hannaðir af sjálfum Fred Flintstone, smíðaðir úr graníti og risafurum og þola allskyns bullshit, eins og að vera ekið fram og aftur í afturdrifinu í rigningu.

Til samanburðar, þá kostar svona prammi frá 4.100.000 kr í Þýzkalandi.  Það er alveg nóg.

7.4?  No way.


mbl.is Kraftmikill en samt þýðgengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. desember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband