5.2.2015 | 14:58
Þýðum þennan texta á 2005 íslensku:
Jórdönsk yfirvöld hafa boðað harðar aðgerðir á hendur Ríki íslams eftir að þau brenndu flugmann í her landsins lifandi.
Jórdanía er eitt nokkurra arabaríkja sem hafa tekið þátt í loftárásum Bandaríkjahers á Ríki íslams í Írak og Sýrlandi. Flugmaðurinn, Maaz al-Kassasbeh, var tekinn höndum af liðsmönnum Ríki íslams í Sýrlandi á aðfangadag er flugvél hans var skotin niður. Fjölskylda hans krefst þess að samtökunum verði eytt af yfirborði jarðar.
Morðið á al-Kassasbeh hefur aukið stuðning almennings í Jórdaníu við baráttuna við Ríki íslams en samtökin hafa lagt undir sig stór svæði í Sýrlandi og Írak.
Í leiðara ríkisdagblaðsins, Al-Rai í dag segir að Jórdanía muni beita öllu brögðum til þess að vernda gildi sín og sannfæringu. Nú sé liðsmanna glæpasamtakanna leitað. Ekkert hefur verið gefið upp um næstu skref en heyrst hefur að Jórdanía muni jafnvel taka þátt í landhernaði á hendur Ríki íslams. Jórdanar hafa ekki tekið þátt í slíkum hernaðaraðgerðum í Miðausturlöndum síðan árið 1973 er jórdanskir hermenn voru sendir til Sýrlands þar sem þeir tóku þátt í sameiginlegum aðgerðum arabaríkjanna gegn Ísrael í Yom Kippur stríðinu.
Abdullah II konungur stytti heimsókn sína til Bandaríkjanna eftir að myndskeiðið af hrottalegri aftöku Kassabeh var birt. Hann kom til Amman í gær og segir hann að morðsins verði hefnt. Snemma í gærmorgun tóku Jórdanar tvo íraska fanga, Sajida al-Rishawi og Ziad al-Karboli, af lífi í hefndarskyni fyrir morðið á flugmanninum.
Á ekkert sameiginlegt með íslamtrú
Fjölmargir tóku þátt í fundum í Amman og borginni Karak, heimaborg flugmannsins, í gær. Meðal þeirra er faðir flugmannsins, Safi al-Kassasbeh, sem segir liðsmenn Ríki íslams vera hryðjuverkamenn og heiðingja sem þekki hvorki mannréttindi né mannúð. Alþjóðasamfélagið verður að sameinast um að eyða Ríki íslams, segir hann.
Ríki íslams hafði boðist til þess að þyrma lífi Kassasbehs og láta japanska blaðamanninn, Kenji Goto. lausan gegn lausn Rishawi. Svo virðist sem flugmaðurinn hafi verið tekinn af lífi áður en Ríki íslams lagði fram tilboð sitt. Goto var síðar afhöfðaður.
Rishawi, 44 ára, var dæmd til dauða fyrir aðild að þremur samtengdum sprengjutilræðum í Amman árið 2005. Sextíu létust í árásunum. Hún var nátengd írösku samtökunum sem lögðu grunninn að stofnun Ríki íslams og var hún talin mikilvæg á táknrænan hátt fyrir hryðjuverkasamtökin.
Í kjölfar drápsins á flugmanninum ákváðu Sameinuðu arabísku furstadæmin að hætta þátttöku í loftárásum Bandaríkjahers. Er það gert í öryggisskyni. Aftur á móti eru furstadæmin hvergi nærri hætt stuðningi við árásirnar og mikilvægur hlekkur í baráttunni við samtökin, samkvæmt upplýsingum AFP úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa lýst yfir hryllingi og reiði vegna morðanna á gíslum Ríki íslams. Meðal þeirra er forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, sem segir grimmd Ríki íslams ná út fyrir allt og hún eigi ekkert sameiginlegt með íslamtrú.
***
Smáatriði, ég veit, en menn töluðu betra mál fyrir 10 árum.
Hefndinni hvergi nærri lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2015 | 14:48
Þeir eru ekkert að spara peningana þarna í Frans
Ekki er mér ljóst hvað olli því að þeir ákváðu allir sem einn að aka um á díselbílum í stað annarra, skemmtilegri ökutækja, en grunar að það tengist því að fransmenn eru sérvitrir, upp til hópa.
Ef þeir vilja endilega aka um á bílum sem eru vel til þess fallnir að draga þunga hluti langar leiðir, þá er það þeirra mál.
Ef þeir eru til í að greiða 3X hærri viðhaldskostnað, þá er það þeirra mál.
Að það þýði að þeir andi að sér svifriki í meira mæli en annars, ætti vart að koma mikið að sök, vegna þess hve mikið þeir reykja.
Nú er svifrikið sem sagt farið að herja svo mjög á þá að til vandræða horfir.
Á meðan erum við hérna megin hafsins að reyna að búa til meira svifrik, okkur til heilsubótar.
Og svo vilja þeir skifta diselnum út fyrir rafmagn... og úr hverju er franskt rafmagn? Það er sko eins gott að það sé úr kjarnorku, því annars kemur bara svifrikið til þeirra úr annarri átt.
Gamlir dísilbílar keyptir út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2015 | 14:42