En er eitthvað raunverulegt á bak við ógnina?

Bara spyr.  Eðlileg spurning.

En skoðum nánar:

Hryðju­verka­ógn­in hef­ur aldrei verið jafn mik­il í Frakklandi og nú.

... og hún lýsir sér einhvernvegin, eða hvað?

Ógnin er kom­in á stig sem hún hef­ur aldrei farið á áður og er óumflýj­an­legt að nýj­ar árás­ir verða gerðar.

Já, sagan segir það líka.  Spurningin er bara hvað ætla þeir að gera, ef eitthvað?

„Ógnin er viðvar­andi,“ seg­ir hann og bæt­ir við að ekki líði sá dag­ur sem viðvör­un­ar­ljós kvikna og upp­lýst er um sam­tök sem reyna að senda fólk til Sýr­lands og Írak.

Það stafar engin hætta af hryðjuverkamönnum sem fara til Sýrlands.  Þeir sem fara ekki geta verið skaðlegir, svo og þeir sem koma aftur.

Þeir sem fara eru hinsvegar ekki til stórræðanna á meðan þeir eru ekki á svæðinu.

Hann seg­ir að leyniþjón­ust­an fylg­ist nú með mun fleir­um en áður og hafi fengið ábend­ing­ar um tvö eða þrjú þúsund manns sem grunaðir eru að ætla sér að fremja ill­virki.

Í Sýrlandi þá?

Hann seg­ir að þetta séu ekki bara leik­menn því marg­ir þeirra eru vel menntaðir at­vinnu­menn ekki ein­hverj­ir sem hafa orðið und­ir.

Menntaðir í hverju?  Skiptir það máli?  Ja, það er vissulega töff ef hryðjuverkamenn eru farnir að vera með gáfuðustu bófum. 

Sér­fræðing­ar í franska varn­ar­málaráðuneyt­inu segja að hryðju­verka­menn­irn­ir noti besta dul­kóðun­ar­búnaðinn sem völ er á og tækni sem er sú besta.

Þeir hljóta að hafa dánódað honum af internetinu.

Þeir sem eru slótt­ug­ast­ir koma ekki einu sinni ná­lægt sím­um held­ur nota þeir skila­boð (messengers).“

Orðið sem þú ert að leita að er "sendiboði."  Eða "boðberi."  Það virkar líka.

AFP hef­ur eft­ir yf­ir­mönn­um í ráðuneyt­inu að mesta ógn­in sé af þeim 200 sem hafa snúið til baka eft­ir að hafa verið þjálf­un­ar­búðum eða bar­ist á þeim svæðum sem Ríki íslams ræður yfir í Sýr­landi eða Írak.

Lítið vandamál það.

Ef þeir eru með stæla, þá geta Frakkar alltaf:

Gert eins og í Charlie Hebdo málinu, og sett GIGN í þetta.  GIGN er einmitt lang-besta lögreglusérsveit í heimi.  Hún kemur þegar terroristarnir hafa lokið sér af, og drepa þá.

Eða:

Þeir geta eytt milljörðum af fé sem þeir ekki eiga til þess að koma upp vopnuðum vörðum úti um allt, sem mæta akkúrat þegar terroristarnir eru að klára sitt thing.

Eða:

Fransmaðurinn á götunni getur bara plaffað á þessa terrorista sjálfur.

Ég sé samt ekki að sú leið verði fyrir valinu.  Of líberal fyri frakkann.

„Þeir hafa misst all­ar höml­ur varðandi of­beldi,“

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um hvað þessi setning þýðir.  Ég hef vissulega um það kenningar, en þori lítt að tjá mig að svo stöddu.


mbl.is „Ógnin er viðvarandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. mars 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband