24.5.2015 | 23:05
Býður uppá ódýrari hreindýraveiði
Maður þarf bara að rigga grind með göddum framan á bílinn sinn, og svo bara keyra á þau dýra sem ramba út á veg.
Þau munu þá festast í göddunum, og farast þar, og tolla þar föst þar til maður kemst á hentugan stað til að taka þau í sundur.
Spök hreindýr hætta fyrir ökumenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2015 | 15:00
... ha?
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði [...] að það kæmi til greina að hækka skatta ef samið yrði um launahækkanir í kjaraviðræðum sem ógna stöðugleika.
Já, en, fólk er að heimt launahækkanir vegna þess einmitt meðal annars að allur peningurinn fer í skatta.
Hér er verið að búa til vítahring. Hvar lærði þessi pési eiginlega hagfræði? Já Steingrími J & Jóhönnu hér varð hrun?
Skattahækkanir væru vopn til að bregðast við aukinni þenslu og verðbólgu.
Með því að búa til meiri verðbólgu?
Ég er ekki að boða þetta.
Hvað varstu þá að segja?
Ég er bara að segja að ef við horfum fram á verulega verðbólgu, þá mun auðvitað þurfa að bæta kjör örykja og auka bætur í samræmi við verðlagsþróun, sagði hann.
Eða ekki.
Vinnandi fólk verður að ganga fyrir öryrkjum. Það er vinnandi fólk sem skaffar, ekki öryrkjar.
Ef verðbólga fer af stað, þá felur það í sér aukinn kostnað hjá ríkinu í mörgum stórum málum, eins og í almannatryggingakerfinu, sem þýðir einfaldlega að ríkið þarf meiri tekjur.
Og í þeim tilgangi ætla þeir að búa til meiri verðbólgu?
Ríkið þyrfti jafnframt að hafa hamlandi áhrif á verðbólgu, en ekki ýta frekar undir hana.
Hærri skattar eru ekki leiðin til þess. Seinasta ríkisstjórn (og reyndar allar stjórnir þar á undan) kenndu okkur það, the hard way.
Og fólk lærir ekki...
Hann ítrekaði að hann væri ekki að boða skattahækkanir, þetta væri aðeins ein leið sem hefði verið litið til í gegnum árin til að bregðast við þenslu.
*facepalm*
Ég er ekki að boða þetta
Boðaðu þá eitthvað annað.
Skattahækkanir koma til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |