23.6.2015 | 23:31
Ein kemur hér spýta...
svo kemur hér spýta, svo spýta í kross.
Allar úr tré. Vegna þess að þetta eru spýtur.
Já...
Illt er í efni ef menn geta ekki límt saman spýtur með smá trélími. Eða bundið þær saman.
Samt er þessi lína einna best: "...allir íspinnarnir hefðu verið með tréspýtum"
Ég sé það fyrir mér... íspinni, með fullt af litlum spýtum standandi út hér og hvar, svo minnir helst á broddgölt. Spýtur sko, allt of stórt til að geta kallast flísar.
Biðjast afsökunar á tréspýtum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.6.2015 | 17:50
Kaldastríðs flassback
Já... við þurftum það.
Ljóð fyrir þig:
Senda þungavopn til Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.6.2015 | 12:52
Hægri öfgar, og ekkert annað!
Að leyfa fólki refsilaust að segja bara það sem því finnst, það er náttúlega forkastanlegt.
En að öllu gríni slepptu, eru einhverjar líkur á að þetta komist í gegn? Það eru einhvernvegin aðeins of jákvæðar fréttir, finnst mér (í trássi við öll lög, er ég viss um) að þarna sé aðeins -kannski fulllítið, en eitthvað þó- grafið undan þessu hundleiðinlega púrítanska kerfi sem við þurfum að búa við.
Erum við ekki menn?
Bann við guðlasti verði afnumið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)