16.11.2016 | 19:47
Þetta þarfnast heimildaskrár
Þessi pistill lýsir of fordómakenndu viðhorfi til kjósenda þessa annálaða frambjóðenda til þess að vera marktækur öðruvísi.
Rýnt í huga kjósenda Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2016 | 14:58
Vill? Hún hefur ekkert val.
Ef ég byggi ekki á Íslandi myndi ég hlæja. En þetta bitnar allt á mér, sem er tragískt.
Katrín vill mynda fjölflokkastjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2016 | 13:48
Skoðum þetta
Þriggja flokka ríkisstjórnir:
VG + Sjálfstæðisflokkurinn + Píratar = 41 þingmaður - sé það ekki fyrir mér, þar sem Píratar & VG hafa opinberlega þvertekið fyrir að vinna með XD.
Fjögurra flokka ríkisstjórnir:
VG + Píratar + Framsóknarflokkurinn + Viðreisn = 35 þingmenn - sé það ekki fyrir mér, þar sem Píratar hafa opinberlega þvertekið fyrir að vinna með framsókn (minnir mig, held mig hafi ekki bara dreymt það).
Fimm flokka ríkisstjórnir:
VG + Píratar + Viðreisn + Björt framtíð + Samfylkingin = 34 þingmenn - Það kæmi sér náttúrulega illa fyrir alla, óháð pólitískum skoðunum. Voða gaman fyrir masókista. Yrðu kannski skemmtilega rætin illindi milli þeirra, en er einhverjum akkur í því? Þeir geta náttúrulega kennt Óttari um allt á eftir.
VG + Framsóknarflokkurinn + Viðreisn + Björt framtíð + Samfylkingin = 32 þingmenn - sama.
Já... það er erfitt að vinna með þroskaskertu fólki, og mig hlakkar ekkert til að hafa slíkt í stjórn.
Hvaða kosti hefur Katrín? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |