Þetta er lengdarinnar pistill fullur af tilfinningum

TV: Margt sam­eig­in­legt var með or­sök­um niður­stöðu Brex­it-þjóðar­at­kvæðagreiðslunn­ar í Bretlandi og kjörs Don­alds Trump sem for­seta Banda­ríkj­anna. Á fundi stjórn­mála­skýrenda í Há­skóla Íslands kom fram að hvoru tveggja byggði mikið á til­finn­ing­um en minna á grjót­hörðum staðreynd­um.

Gildir það ekki um flestar kosningar?

Eft­ir þann ár­ang­ur sem kosn­inga­bar­átta þeirra sem studdu út­göngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, þvert á ráðlegg­ing­ar sér­fræðinga, og lýðskrumar­ans Don­alds Trump í Banda­ríkj­un­um náði hef­ur verið talað um svo­nefnd stjórn­mál eft­ir­sann­leik­ans. Þeim er lýst sem stjórn­mála­menn­ingu þar sem höfðað er til til­finn­inga og staðreynd­ir bíta ekk­ert á ít­rekuðum ósönn­um full­yrðing­um. 

Svona eins og venjuleg pólitik?  Hver er munurinn?  Einn af þessum hlutum er alveg eins og hinir, hver er hann?

Líkt og hjá kjós­end­um Trump hafi mennt­un verið helsti skýr­ing­arþátt­ur­inn í Brex­it-þjóðar­at­kvæðagreiðslunni. Fólk með lægri mennt­un hafi verið lík­legra til þess að kjósa með Brex­it. Eins hefðu þeir sem áttu und­ir högg að sækja efna­hags­lega frek­ar kosið með breyt­ing­um sem út­gang­an fæli í sér, þeir tekju­lægri og þeir sem eldri eru.

Heimild?

Jó­hanna lýsti orðræðu Brex­it-sinna sem hafi verið öll á þá leið að allt væri að fara úr bönd­un­um í Bretlandi og nauðsyn­legt væri að snúa aft­ur til ein­fald­ari tíma þegar landið var stolt og sjálf­stæð þjóð. Inn­an ESB væri Bret­land í raun ekki sjálf­stætt þar sem það þyrfti að taka upp lög sam­bands­ins og lúta niður­stöðum evr­ópskra dóm­stóla. Líkt og Trump hefðu tals­menn Brex­it talað um gildi þess að gera viðskipta­samn­inga við önn­ur ríki.

Er þetta *ekki* mikilvægt?  Þið segið fréttir...

Orðræðan í kring­um þau mál hafi mikið byggst á til­finn­ing­um og hræðslu, jafn­vel svo mikið að íhalds­menn sem studdu út­göngu hafi þótt hún óþægi­leg.

Hún var líka blásin upp í fjölmiðlum eins og hún skifti öllu.

Eins var mál­flutn­ing­ur Brex­it-sinna í kosn­inga­bar­átt­unni gagn­rýnd­ur þar sem hann var tal­inn mis­vís­andi. Þannig benti Jó­hanna á rútu sem ferjaði tals­menn út­göngu á milli staða en á hana var letruð fræg aug­lýs­ing þar sem full­yrt var að Bret­ar sendu dag­lega 350 millj­ón­ir punda úr landi til Evr­ópu­sam­bands­ins. Það fé mætti frek­ar nota í heil­brigðis­kerfið.

Inn í þá tölu hafi hins veg­ar ekki verið reiknað hvað Bret­ar fengu til baka í gegn­um styrki og áætlan­ir ESB, sparnað við það að hafa aðganga að innri markaði sam­bands­ins auk þess að óljóst væri hvort að þessi fjár­hæð rynni í heil­brigðis­kerfið jafn­vel þó Bret­ar segðu skilið við sam­bandið.

Ég hef hitt og talað við breta um þetta.  Fyrir brexit.  Og þeir tjáðu mér að þeir borguðu meira en þeir fengju til baka, og það fór í taugarnar á þeim.

Reyndar fer þetta í taugarnar á hinum almenna þjóðverja líka...

Það er mikið af liði þarna úti sem er að tappa peningum af EU.

Í pall­borðsum­ræðum eft­ir er­ind­in sagðist Guðmund­ur Hálf­dan­ar­son, [...] ekki trúaður á að þessi svo­nefnda eft­ir­sann­leiks­stjórn­mála­menn­ing hafi ráðið úr­slit­um. Inni­halds­laus lof­orð séu ekki einka­eign Brex­it og Trump.

Þess í stað sagði hann niður­stöðurn­ar vís­bend­ingu um kreppu í kapí­talísku kerfi. Komið væri að enda­lok­um hins enda­lausa vaxt­ar. 

1: Þetta kerfi er ekki eins kapitalískt og fólk heldur.

2: Endalok endalauss vaxtar hlýtur að þýða hungursneið, vegna þess að án vaxtar verður minna fyrir nýjar kynslóðir, nýtt fólk.  Eða vitið hvernig þetta virkar?  Malthus, þið vitið?

Guðmund­ur sagði að horf­ast þyrfti í augu við að ekki hafi verið hlustað á þetta fólk.

Það er verið að fussa og sveia á það núna.  Sem þýðir: meira Trump, meira Brexit.  Þar til það verður hlustað.  

Ýmis­legt í orðræðu Trump minnti á fas­isma...

Nánast allt í íslenskri pólitík er nákvæmlega eins og fasismi.  Við vinnum...?

...en Guðmund­ur sagðist þó ekki telja Trump sjálf­an vera fas­ista enda væri erfitt að koma fingri á hvað hann væri í raun.

Hann er tækifærissinni.  Ég sé hann ekki hafa plan.  Mér sýnist hann ætla að gera þetta eftir hendinni.  Sem gefur vissulega mikinn sveigjanleika.

„Ég á frek­ar von á að bylgja gangi niður þegar ljóst verður að hæfi­leika­laus­ir lýðskrum­ar­ar geta ekki staðið við lof­orðin,“ sagði hann.

Lát oss sjá... hér á landi hafa hæfileikalausir lýðsskrumarar vaðið uppi síðan 1944, og þaðan af fyrr.  Og við höfum núna í þessum skrifuðum orðum slatta af þeim að reyna að hnoða saman stjórn.

Svo það gæti liði langur tími þar til þessi "bylgja" gengur niður.

Bald­ur Þór­halls­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræði við HÍ, var aft­ur á móti þeirr­ar skoðunar að sigr­ar Brex­it-sinna og Trump væru í raun eng­in raun­veru­leg breyt­ing þegar litið væri til sög­unn­ar.

Skoðun.  Á hverju hún er byggð veit ég ekki.

Við vitum lítið hvað Trump gerir, en Brexit var spes.  Það var óvænt beygja frá ákveðinni stefnu.  Breytir öllum viðskiftatengzlum í landinu, og meira til.

Ný valda­blokk væri ekki tek­in við held­ur hefði fylg­is­sveifla í átt að gam­alli blokk átt sér stað.

Ekki kannast ég við þá gömlu blokk.  Hún hlýtur að vera falin bakvið lönguvitleysu eða eitthvað.

Rakti hún það til þess að traust til stjórn­mála­manna og stofn­ana sam­fé­lags­ins,[...]hefði fari þverr­andi í vest­ræn­um sam­fé­lög­um.

 

Þau hafa bara ekkert verið traustins verð.

...þar á meðal fjöl­miðla og gáfu­manna

Gáfumanna?  Hverra?  Spyr ég, núna forvitinn.

Inn í það tóma­rúm komi sam­fé­lags­miðlar á harðahlaup­um og bjóða upp á alls kyns túlk­an­ir á sann­leik­an­um. 

Þessi lengdarinnar pistill er svo viss túlkun líka.

Hulda sagði að fólk væri þá komið í þá stöðu að það treysti stjórn­mála­mönn­um og kerf­inu lítið, það hefði ef til vill litla mennt­un og for­send­ur til gagn­rýn­inn­ar grein­ing­ar, það væri óánægt og nei­kvætt. Því væri fólk til­búið að trúa nei­kvæðum hlut­um.

Það er líka reynzla.  Ef kerfið gerir ekkert annað en að þvælast fyrir þér og rukka þig, vegna þess að af því bara, þá fer maður nú ansi fljótt að vantreysta því.  Alveg sérstaklega þegar það klúðrar jafnvel einföldustu hlutum beint fyrir framan nefið á þér.

„Ef staðreynd­irn­ar eru ekki nógu öfl­ug­ar gagn­vart fólki munu til­finn­ing­ar, það sem fólk vill trúa, vinna,“ sagði hún.

Þess vegna eru VG með 14% fylgi.  Svo mikið.  Magnað alveg.

Allt væri stút­fullt af röng­um upp­lýs­ing­um og eng­in leið væri fyr­ir fólk sem hefði tak­markaðan tíma, bjarg­ir eða mennt­un að vinna úr þeim.

2 mínútur á google eru oftas merkilega áhrifaríkar.

Reyni ein­hver að sann­færa það fólk með staðreynd­um sýni reynsl­an að herði það enn frek­ar í skoðunum sín­um.

Hef reynt, oft í viku stundum.

Það er til fólk sem trúir því að það séu lágmarkslaun í Danmörku.


mbl.is Tilfinningar fram yfir staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. desember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband