Þeir gerðu þetta við sjálfa sig

Neyðarástand rík­ir nú í Venesúela, en for­seti lands­ins, Nicolas Maduro, hef­ur hótað að yf­ir­völd taki verk­smiðjur eigna­námi sem hafa verið „lamaðar af borg­ara­stétt­inni“...

Alltaf verið að kenna "borgarastéttinni" um allt.

Þið vitið, verkalýðnum.

Venesúela býr við stærstu olíu­birgðir heims, en lækk­andi olíu­verð hef­ur komið illa niður á rík­is­sjóði lands­ins og efna­hags­lífi þess.

Gott að hafa olíulind, og allt það, en hvers vegna komu þeir sér ekki upp fjölbreyttara atvinnulífi?

Miðstýringin fór öll að tappa pening af olíulindunum, og virðast hafa þvælst fyrir öllum sem höfðu aðrar hugmyndir.

Sennilega vegna þess að þeir voru flestir af "borgarastéttinni."

Ætlum við að læra af þessu?  Ég held ekki.

Geis­ar nú óðaverðbólga í land­inu og reyna yf­ir­völd að berj­ast við efna­hags­sam­drátt.

Ég ætla að leyfa mér að giska á að allt sem yfirvöld þarna gera muni virka öfugt.  Gera ástandið verra.

Eignaupptaka mun gera ríkið auðugra á pappírunum í smá stund, en á meðan fyrirtækin skila engu af sér, þá eru þau de facto verðlaus.

Á síðasta ári var 5,7% efna­hags­sam­drátt­ur í land­inu og verðbólga mæl­ist nú 180%. Spá sér­fræðing­ar því að hún geti jafn­vel farið upp í 700% fyr­ir lok þessa árs.

Bjartir.

Í ræðu á fundi með stuðnings­mönn­um sín­um í gær fór Maduro nán­ar yfir þær aðgerðir sem ráðist yrði í.

Ekki er farið yifr þær í fréttinni.  Hef ekki fundið áætlunina á netinu, og nenni ekki að leita lengur.

Hér er tilvitnun af the guardian: (http://www.theguardian.com/world/2016/may/14/venezuela-maduro-emergency-powers)

The government’s efforts to manage the shortages have included moving clocks forward half an hour, closing schools on Fridays, sending civil servants home three days a week, and even drafting in Maduro himself to dispense energy-saving tips. “Cut the use of hair-dryers, or only use them half the time,” he said on a recent TV appearance. “Do you think you could do this, ladies?”

Sagði hann að hver sá sem vildi halda aft­ur af fram­leiðslu í land­inu til að skaða efna­hag­inn ætti að flytja úr landi og að þeir sem létu verða af slíku at­hæfi ættu heima í fang­elsi.

Hann hefur verið að læra hjá sömu gaurum og kenndu VG & Samfó.

Um­mæl­in koma stuttu eft­ir að stærsta mat­væla­fram­leiðslu­fyr­ir­tæki Venesúela, Pol­ar Group, stoppaði fram­leiðslu sína á bjór og kenndi stjórn­völd­um um þar sem fyr­ir­tækið gæti ekki leng­ur flutt inn hrá­efni í bjór­fram­leiðsluna.

Og hvernig á þetta fyrirtæki að framleiða bjór úr engum hráefnum?

Það mætti halda að þessi Maduro væri einhversskonar ríkisstarfsmaður.


mbl.is Neyðarástand í Venesúela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. maí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband