23.3.2017 | 23:35
Svo margt rangt...
Og ekki bara málfarið. Það er efni í lærða ritgerð.
"Stærð dýra gæti farið að minnka vegna hlýnunar jarðar að mati vísindamanna. Sú ályktun er dregin af rannsóknum sem sýna að stærð spendýra hafi dregist saman þegar hliðstæðar loftlagsbreytingar áttu sér stað fyrir rúmlega 50 milljón árum síðan."
Hmm... lítum á jörðina nú. Stærstu dýrin er vissulega að finna í frosthörkum Afríku. Gírafar og Fílar og slíkt. Hér á funheita fráni eru bara lítil dýr eins og refir.
"Fjallað er um uppgötvunina á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph en þar segir að steingervingafræðingar hafi við rannsóknina fundið steingerða tönn forföður nútímahesta sem og steingert spendýr á stærð við kanínu með hófa."
Dettur þeim ekki í hug að aðrar ástæður valdi?
"Hugsanlegt er talið að stærð dýra hafi minnkað vegna þess að aðgangur að næringu hafi dregist saman vegna hlýnandi veðurfars."
Hvarf allur sandurinn sem þessi dýr borðuðu undir mold og gróður?
Minni dýr vegna hlýnunar jarðar? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2017 | 23:18
Bílar eru hentug vopn
Þeir eru útum allt.
Vissulega eru þeir talsvert flóknari í notkun en Kalashnikov-riffill - bara takkinn til að stilla rúðuþurrkurnar er flóknari í notkun og þarfnast meiri þjálfunar - og það er ætlast til að menn geti beitt þeim grip á ferð.
En á móti þykja bílar eðlilegur hluti af umhverfinu, á meðan Kalashnikov riffill myndi vekja eftirtekt.
Stealth!
Þegar maður hefur ekið einhvern niður á bíl, þá er hægt að búa til mikla vegalengd milli sín og fórnarlambsins.
Kalashnikov riffill er erfiður í notkun af meira en 100 metra færi. (Sigtin eru furðuleg. Enginn skilur þau.)
Þú getur enn keyrt yfir helling af fólki á meðan löggan/herinn er að skjóta á þig. Meðan þú ert að plaffa á fólk með riffli hverfur einbeitingin oftast.
Það er ekki hægt að banna bíla...
Bíll sem vopn: Hvers vegna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |