Þakka ykkur fyrir þetta

Þetta er það fyndnasta sem ég hef séð & heyrt alla vikuna, jafnvel lengur.

Þetta byrjaði mjög vel - heyrði þetta í útvarpinu, og gerandi ráð fyrir að skammirnar í henni væru á rökum reistar bjó ég til mjög skemmtilega og gefandi mynd af þingstörfum.

Svo sá ég myndbandið, og sá að sú mynd sem ég hafði búið til var röng.  Og atvikið var miklu fyndnara en ég hélt.

Við vorum að veltast um af hlátri yfir þessu í vinnunni.

Gerir Katrín sér grein fyrir að allt sem hún segir er tekið upp á vídjó?  Er hún alltaf svona?  Hvernig ætli hún sé á kaffihúsi?

Ég sé það fyrir mér... og það ættuð þið líka að gera. 


mbl.is Kallaði ráðherra „helvítis dóna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Filippus Jóhannsson

Katrín er helvítis dóni sjálf.

Filippus Jóhannsson, 26.2.2014 kl. 20:54

2 identicon

Hvað stóð í bréfunum sem Katrín og Svandís fóru með til Bjarna og fylgdu eftir með leyndadómsfullum mjúkum klöppum á ræðupúltið.

Til í allt án Framsóknar? 

Grímur (IP-tala skráð) 26.2.2014 kl. 22:44

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta hélt bara áfram að verða skrautlegra fram eftir kvöldi og nóttu.

Núna þegar þetta er skrifað eru þingstörfin orðin að fullkomnum skrípaleik.

Alþingisrásin hefur sjaldan áður verið skemmtilegasta sjónvarpsefnið.

Guðmundur Ásgeirsson, 27.2.2014 kl. 02:29

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta var víst miklu betra - það voru myndir á vísi. Þær voru frá öðru sjónarhorni, og sýndu þá ráðherra, báða tvo. Þær gerðu atvikið allt miklu fyndnara.

Þetta lið eru betri trúðar en Jón Gnarr.

Ásgrímur Hartmannsson, 28.2.2014 kl. 08:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband