Miðað við gefnar upplýsingar: ekki þarna

Förum yfir rök með og á móti:

Með: fjór­ar kon­ur hafa fund­ist látn­ar og tvær hafa horfið í smá­bæ í fylk­inu á einu ári.

Á móti: ef nógu margir búa í smábænum er það kannski eðlilegt.

"Tæp­lega 22,000 búa í Chillicot­he sem í um 96 kíló­metra fjar­lægð frá borg­inni Col­umbus."

Hver er glæpatíðnin þar?

Með: þær eru á svipuðum aldri/líta út fyrir að vera á svipuðum aldri.

Á móti: þær voru flestar í dópi, sem er ekki beint vænlegt til lengra lífs.  Og vændi, sem er vænlegt til ... alsskyns.

Á móti: "Sam­kvæmt krufn­ing­ar­skýrslu lést hún vegna of­neyslu eit­ur­lyfja"

"...en móðir henn­ar, Ang­ela Robin­son, tel­ur að dótt­ir henn­ar hafi verið lát­in þegar hún var sett í vatnið."

Segir okkur ekkert.

„Hún var dauðhrædd við vatn. Hún gat ekki synt og var hrædd við skóg­inn,“ sagði Robin­son í sam­tali við ABC News.

Eins og vatnshrætt fólk geti ekki líka drukknað.

"Á jóla­dag 2014 hvarf Shasta Hi­mel­rick en hún var tví­tug. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­reglu var hún ólétt þegar hún hvarf en hún fannst lát­in 2. janú­ar ofan í á. Sam­kvæmt krufn­ingu drekkti hún sér en eng­ir áverk­ar fund­ust á lík­inu."

Hvernig sést við krufningu hvort hún drekkti sér eða datt ofaní ána, eða var hrint?

Engar upplýsingar.

"Fimmta kon­an hét Timberley Clayt­on. Lík henn­ar fannst í skurði í síðasta mánuði. Hún hafði verið skot­in í höfuðið þris­var en sam­kvæmt lög­reglu er einn aðili grunaður um  málið."

Nokkuð aulgjóslega morð, en eitt stakt morð þýðir ekki raðmorðingi.

Sjötta kon­an hét Tiff­any Sayre og hvarf 11. maí á síðasta ári eft­ir að hún kláraði vakt­ina sína á móteli. [...] Lík henn­ar fannst vafið í lak í niður­falli 20.júní.

Grunsamlegt.

Allt í lagi: Eitt tilvik er án alls vafa morð.  Eitt er meira en lítið grunsamlegt.  Hin... gætu allt verið slys.

Annars höfum við of litlar upplýsingar.


mbl.is Gengur raðmorðingi laus?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband