Åsne er asni

"íhalds­samr­ar bylt­ing­ar“

Góður þessi.  'ihaldsmenn gera ekki byltingar.  Það er andstætt öllu sem þeir standa fyrir.

Öfga­full­ir íslam­ist­ar höfðu framið fjölda­morð. Eins og í Nor­egi kom árás­in inn­an frá.

Innan frá Belgí, segja þeir mér.  Með viðkomi í Sýrlandi.  Semsagt, innanfrá.

Búið er að bera kennsl á fimm af hryðju­verka­mönn­un­um átta þegar þetta er skrifað; þeir eru all­ir fransk­ir rík­is­borg­ar­ar. Einn ólst upp íban­lieue fyr­ir utan Par­ís, ann­ar í fé­lags­bú­stöðum í Brus­sel, sá þriðji hef­ur bar­ist í Sýr­landi.

Innann frá.

mann­eskj­una skal steypa í sama mót og það er bara ein rétt trú. 

Bókstafs-Islam fyrir þig.  Illþekkjanlegt frá fasisma.  (Fasismi: þú átt ekki að' leyfa þér að langa annað en það sem ríkið vill.  Heimild: http://www.worldfuturefund.org/wffmaster/Reading/Germany/mussolini.htm, ef þið hafið áhuga á pólitík.  Mikil Samfylking í þessu, reyndar.)

Því að hryðju­verka­menn­irn­ir þekktu sín fórn­ar­lömb. Þeir reiddu til höggs þar sem þeir vissu að sárs­auk­inn yrði mest­ur – la vie á la francaise – köll­um það hvers­dags­lífið.

En ekki hernaðarmannvirki, vegna þess að herinn skýtur á móti.  Það er auðveldara að valda mannfalli úti á götu.

Hér búa hinir svo­kölluðu bó­bos – sem eru bæði bóhem­ar og borg­ara­leg­ir, hér búa græn­ingjarn­ir, hér búa hip­ster-sósí­al­ist­arn­ir. Le Pen, þjóðern­is­sinn­arn­ir og inn­flytj­enda­gagn­rýn­end­urn­ir fengu slæma út­komu í þess­um hverf­um í síðustu kosn­ing­um.

Skotmarkið er sem sagt skilgreiningin á Íróníu.

Hér búa hinir van­trúuðu við hlið múslima, sem í aug­um IS eru ekki rétt­trúaðir, held­ur svik­ar­ar, lodd­ar­ar og meðhlaup­ar­ar. Það sem við köll­um ver­ald­lega eða hóf­sama múslima.

Veraldlegir & hófsamir múslimar bijast rangt fyrir .  Sem er slæmt.  (Flettu þessu upp.)

Gráa svæðið er víg­völl­ur IS. Það er að finna í öll­um evr­ópsk­um stór­borg­um. Maður finn­ur það á milli svarts og hvíts. Milli okk­ar og þeirra. Milli með og á móti. Það er hægt að segja að svæðið sé grátt, en maður get­ur líka kallað það lit­ríkt. Föru­neyti hins lit­ríka er í huga sumra hrós, en skamm­ar­yrði í huga annarra, sem líta á það sem barna­skap, sem muni leiða okk­ur til glöt­un­ar. Rétt eins og hægri öfga­menn hata hið lit­ríka hat­ar Ríki íslams gráa svæðið. Þetta eru tvær lýs­ing­ar á sama hlutn­um.

Þetta jaðrar við súrrealisma, ég veit ekki einusinni hvar ég á að byrja.

Þess vegna ráðast þeir á það sam­fé­lag sem virk­ar.

HAHAHAHAHA!

Frakkar eru á hausnum.  Gjaldþrota.  Og þeir nöldra við hvern sem nennir að hlusta undan þessum múslimum, sem þeim finnst vera allstaðar.

Og Renault.  Hver er afsökunin fyrir þeim andskota?

Þeir sem ótt­ast íslam og Ríki íslams eru full­komn­ir fjend­ur hvor­ir annarra og speg­il­mynd­ir, þeir nær­ast hvor­ir á öðrum og á sömu hug­mynd­inni; að við get­um ekki búið sam­an.

... sem eru?  Það eru engir hræddir við ISIS nema A: þeir sem þurfa að búa á svæðunum sem þeir eru að leggja undir sig, og B: einhverjir nojaðir menn sem vilja að lögreglan vopnist, helst eldflaugum, vegna þess að í vopnaðri lögreglu er galdramáttur.

Það á að losa heim­inn við grá svæði og lit­rík sam­fé­lög.

Morðóðir síkópatar gefa lífinu lit.  Blóðrauðan.  Þess vegna er rétt að faðma þá og knúsa, og gefa þeim epli áður en þeir sprengja sig og alla í kringum sig í tætlur.

Jei!

Ríki íslams vill að Evr­ópu­bú­ar ótt­ist múslima, fyll­ist grun­semd­um, snúi baki við þeim, að tor­tryggni í garð íslams auk­ist, að það verði erfiðara að vera ung­ur múslimi í Evr­ópu.

Evrópa þurfti ekki þeirra hjálp til þess... en, hey, þarna eru þeir.

Þá muni fleiri ung­menni verða ör­vænt­ingu og firr­ingu að bráð og snú­ast til bræðralags heil­ags stríðs.

Örvænting og fyrring?  Prófaðu drottnunargirni, sadisma og ofbeldishneigð. 

Hverj­ar eru varn­ir okk­ar?

Hvað myndu Kínverjar gera?  Rússar?  Það.

Fleiri sprengj­ur í Sýr­landi?

Vantar mannskap á jörðu niðri.  

Trú­um við enn að með sprengj­um megi draga úr hryðju­verk­um?

Trúði því aldrei, en til er fólk sem trúir því, þess vegna er það gert.  (Og nei, enginn þeirra er í hernum.)

Ef stríðið gegn hryðju­verk­um á að hafa kennt okk­ur eitt­hvað er það að orr­ustuflug­vél­ar virka ekki gegn hryðju­verk­um.

En mannskapur á jörðinni gerir það.  Síðan kaninn fór að herja á Írak og Afganistan hafa terroristar verið iðnir við kolann þar, en öllu minna í USA.

Svo það er að virka fyrir þá.

Líkar þér það ekki?  Skiptir engu.

Á Twitter fagna djí­hadist­arn­ir fjölda­morðum föstu­dags­ins. Við hlið hryll­ings­mynd­anna frá Par­ís stilla þeir mynd­um af lim­lest­um sýr­lensk­um börn­um, börn­um með op­inn kvið, kram­in höfuð, sótsvört­um, brennd­um lík­um. Ríki íslams þarf enga aðra rétt­læt­ingu en að það á í heil­ögu stríði,

Þú þekkir þá ekki, er það?

Þú hefur hitt svona gaura, ég get lofað því.  Einn í hverjum bekk.  Kannski tókstu ekki eftir þeim... kannski leiddirðu þá hjá þér.

Islam er stundum svo góð afsökun.

For­svars­menn IS hafa skorað á stuðnings­menn sína að gera árás­ir á eig­in spýt­ur, keyra bíla inn í mann­fjölda, hefja skot­hríð í versl­un­ar­miðstöðvum, draga fram hníf þar sem margt er um mann­inn.

Þeir læra svo margt hjá vinum okkar í Hamas.  Hvenær koma Hamas leiðtogar annars í opinbera heimsókn til Reykjavíkur?

Árás­in í Par­ís var ekki fram­in af viðvan­ing­um,

Jú víst.

hún var vel sam­stillt

Bingó!

Það þarfn­ast kunn­áttu í meðferð sprengi­efna að búa til átta sjálfs­morðssprengju­vesti.

Minna en þú heldur.

Af hverju halda allir að þetta séu einhver kjarnorkuvísindi?

Í ág­úst gekkst hand­tek­inn vígamaður frá Sýr­landi við því í yf­ir­heyrslu franskra leyniþjón­ustu­manna að Ríki íslams hefði beðið hann að láta til skar­ar skríða á ein­um eða fleiri tón­leik­um í Par­ís. Þetta kom fram í frönsk­um fjöl­miðlum í sept­em­ber.

... Frakkar...

Það verður at­hygl­is­vert að sjá hvernig leynþjón­ust­an út­skýr­ir að hún hafi ekki orðið vör við und­ir­bún­ing­inn

Já.  Við sperrum eyrun.

Kannski vildu þeir bara halda uppá fjölbreytinleikann?  Gráa regnbogann sko.  Má ekki vera ó-PC, sko.

Fyr­ir okk­ur, sem enn erum á jörðu, er sterk­asta vörn­in gegn of­beldi þessi: Að til­heyra í okk­ar opnu lýðræðis­ríkj­um.

Hehehe

Fjöl­breytn­in, virðing­in. Því að Ríki íslams ótt­ast sam­stöðu okk­ar meira en það ótt­ast sprengj­ur. Árás­in var bara byrj­un­in, sögðu þeir. Við skul­um segja það sama: Þetta er bara byrj­un­in. Hér á gráa svæðinu er pláss fyr­ir alla liti.

Fjölbreytnin er þeirra vopn líka.  Þannig komust þeir inn til að byrja með.  Samstaða ykkur í ótta og/eða villu og svíma er líka samstaða.

Kumbaja, motherfuckers.


mbl.is Baráttan gegn gráa svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband