Ég get útskýrt, að hluta:

Þegar átti að fara að henda stjórninni út í ystu myrkur fyrir það sem hingað til hefur þótt smotterí (eins og td. grænu baunirnar hans Steingríma, eða rúmmetrinn af brennivíni sem Jón Baldvin fékk sér, eða brot Jóhönnu Sig á landslögum, eða ítrekaðar tilraunir Steingríms J. til að gefa útlendingum alla peninga landsmanna langt fram í tímann osfrv.) þá rann upp fyrir fólki (mörgum, amk.) að núverandi stjórnvöld eru þó talsvert skárri en þau sem voru á undan, og þau sem buðust í staðinn.  Sem hefðu verið sami hluturinn.

Og þetta skynja stjórnvöld.

g þau hegða sér í takt við það.

Svo... viltu breytingar?  Bjóddu eitthvað betra.  Eitthvað sem við *vitum* að er betra.

Við *vitum* ekkert um pírata.  Við vitum um D, S, B og VG.  Þeir hafa allir logið allskyns tjöru um sjálfa sig, en verk þeirra eru í fersku minni.  Við höldum auðvitað að píratar ljúgi, alveg eins og hinir.

Þeir þurfa að gera eitthvað, sýna hvað þeir eru í alvöru.

Vegna þess að allt sem þingmenn segja er lygi.

Illskyljanlegt?


mbl.is Pólitíkin vill ekkert læra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband