Sshh!

Söluskatturinn hækkar.  Sem er gott fyrir þá tekjulægstu, því þá hækka allir þeirra reikningar.  Aftur.

En það tekur enginn eftir því... merkilegt.

Jæja, stökk úr 37% upp í 47% er nú gott högg.  Þeir sem þurfa að láta mála hjá sér geta nú sparað 25% söluskatt og greitt út 60% af venjulegum verkamannslaunum hverjum sem tekur að sér að mála, og það kemur samt betur út fyrir málarann.

Það þarf bara að sleppa pappírsvinnunni.  Í það fara allir þessir auka seðlar sem eru í umferð (sem eru nú að týna verðgildi sínu í þessari mjög svo æðislegu verðbólgu.  Hvað er hún raunverulega?  50%?  80% á ári?)

Nei, ég held að þingið þurfi að hugsa þetta betur.  Gera eitthvað frumlegt.  Eitthvað sem skilar árangri án þess að valda neinu tjóni - svona einu sinni.


mbl.is 47% skattur á launatekjur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála það vantar úrræði. Td að lækka skatta myndi auka fjármagnsflæði inn í hagkerfið meiri peningar í umferð þíða meiri umsvif.

Sigurður Haraldsson, 11.11.2009 kl. 02:06

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

En það er ekki sósíalismi.  Yfirvöld vilja koma á sósíalísku hagkerfi.  Eins og fyrir austan járntjald hér í denn.  Það leið víst öllum svo vel þar.  Ef ekki, þá voru þeir lamdir.

Ásgrímur Hartmannsson, 11.11.2009 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband