30.10.2017 | 16:39
Ekki nógu margar löggur til að halda þessu uppi
29.10.2017 | 20:30
Gott að byrja daginn á að vera dipló
Annars sé ég ekki betur en það ætti að vera hægt að mynda nokkuð stöðuga stjórn úr þessu hakki sem býðst:
Það eru nefnilega 2 framsóknarflokkar og 2 sjálfstæðisflokkar. Semsagt B & M, annars vegar og D og C hinsvegar.
Þeir hljóta að geta unnið saman. Jú, það eru einhver atriði sem þeir geta rifist um, en það eru fleiri sem þeir eru sammála um.
Svo ég mæli með að þeir rotti sig saman.
Allt sem þei geta ekki sæst á geta þeir A: sópað undir teppið og gleymt, eða B: sett í þjóðaratkvæðagreiðzlu.
Einfalt.
Útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2017 | 20:22
Sá eini sem einhver missir var í
Allir hinir voru í besta falli miðlungs.
Annars losnuðum við mikið af fólki sem ekkert var varið í - veit ekki hvort liðið sem kom inn í staðinn er eitthvað betra. Á alveg eftir að sjá það.
Pawel, já. Greindarvísitalan á þingi var skör hærri þegar hann var þar.
Eins og að aftengja sprengjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2017 | 15:18
Úti í hinum stóra heimi taka fæstir mark á þessari vitleysu
Bara Trudeau er nógu vitlaus til þess að reyna að standa við þetta, http://business.financialpost.com/opinion/lawrence-solomon-trudeau-stubbornly-keeps-canada-standing-with-paris-as-everyone-else-bails.
Og sennilega við... okkar ráðamenn stíga heldur ekkert í vitið. Eru frægir fyrir það allstaðar.
Q: "most signatories are ignoring, if not altogether abandoning Paris commitments, undoubtedly because voters in large part put no stock in scary global warming scenarios."
Stefna í loftslagsmálum hefur áhrif á flokkaval | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.10.2017 | 23:17
Vá maður, þessu júroprís bjór er sko aldeilis magnaður... eða hvað?
"Borgarstjórinn í París hefur hafið stríð á hendur einkabílnum í borginni - og reyndar atvinubílum einnig." (sic)
Það var og...
"Boðar hún bann við dísilbílum upp úr 2020 og bensínbílnum í síðasta lagi 2030." (sic)
Nú vitum við sem sagt að það er og hefur alltaf verið bara einn bensínbíll í þeirri borg.
"Hún segir það ekki lengur móður meðal borgarbúa að eiga eigin bíl." (sic)
Ha? Hvað? Hvernig...? Móður hvers? Í hvaða samhengi?
"Í ræðu á hálfnuðu kjörtímabilinu í síðustu viku sagði borgarstjórinn, Anne Hidalgo, að notkun bíla með brunavélum gæti heyrt sögunni til í París jafnvel fyrir 2030." (sic)
Nú fyrst fáum við að vita nafnið. Eftir ferlegustu ambögu sem ég hef lesið í... örugglega 10 sekúndur núna.
"Hún sagði einungis einn af hverjum tíu borgarbúum æki á bíl til vinnu." (sic)
Þá höfum við einu ástæðu Parísarbúa til að aka bíl. Vörur eru fluttar með hestvögnum eða í svona rickshaw.
"Að eiga sinn eigin einkabíl eru leifar frá dýrðlegum fjórða áratugnum og er ekki lengur í móð." (sic)
Ah... þetta er þýtt úr frönsku. Með google-translate sennilega, eða enhverju svoleiðis.
Hvað um það...
"Dýrðlegur 4 áratugur???" WTF? Hvað var svo frábært við millistríðsárin? Kreppan kannski?
"Það getur vel farið svo að bensínbílar verði horfnir af götum borgarinnar eitthvað fyrir 2030 vegna nýs hegðanamynsturs og nýtækni og framþróun í bílsmíði," (sic)
Nýtækini? Og hvað varð um fallbeygingu sagnorða? Og þessi eini bensínbíll síðan áðan hefur nú fjölgað sér.
"Hidalgo kvaðst ekki fallast á að orðið bann væri viðeigandi í umfjöllun um áform hennar." (sic)
Svo hún er leftisti.
"Brogarbúar og samtök bílaeigenda hafa hins vegar brugðist við og gagnrýnt hana harkalega fyrir boð hennar og bönn varðandi bílum." (sic)
Súrrealískt.
"Hún réttlætir stefnu Parísarborgar og segir hana annars vegar vera hluta af því markmiði að gera borgina kolefnafría..." (sic)
... kolefnafría?
"Aldrei áður hefur mengun verið jafn marga daga yfir mörkum. Það er skylda okkar að bregðast skjótt við, jafnvel þótt erfitt sé. Takmarkið er að kom menguninni niður fyrir sérstök mörg, sagði Hidalgo." (sic)
Dagar einkabílsins taldir í París | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2017 | 19:57
Menn úti hafa meira vit en við hér heima
"...er búist við að íhaldsmaðurinn Sebastian Kurz taki í kjölfarið við sem kanslari landsins."
Við komumst að því á eftir - ekki telja eggin fyrr en þau eru komin út úr hænunni.
"Fram kemur í frétt AFP að gert sé ráð fyrir að austurríski Þjóðarflokkurinn, flokkur Kurz, fái yfir 30% fylgi í kosningunum og muni í kjölfarið mynda ríkisstjórn með Frelsisflokknum sem skilgreindur hefur verið sem öfgahægriflokkur."
Er annað hægt en að óska þeim til hamingju með það?
Jú, það er hægt að dauð-öfunda þá.
"Fram kemur í frétt AFP að verði þetta niðurstaðan skapi það nýjan höfuðverk fyrir Evrópusambandið ofan á útgöngu Bretlands úr sambandinu og uppgang lýðhyggjuflokka víða í ríkjum þess eins og í Þýskalandi og Póllandi."
Gott.
Kurz hefur einnig lagt áherslu á hóflega skattastefnu.
Svo hægri-öfgaflokkurinn er í alvöru til hægri? Sjaldséðir hvítir hrafnar!
"Frelsisflokkurinn [...] var á sínum tíma stofnaður af fyrrverandi nasistum."
Ja, vinstri-öfgamenn hafa þá líka einhvern til að kjósa.
"Jafnaðarmenn, sem eru við völd í landinu, hafa átt á brattann að sækja. Meðal annars vegna hneykslismála."
Hneykslismál bíta á þá þar? Ja hérna. Hér mega þeir finnast uppí rúmi í threesome með dauris telpu og lifandi strák, og allt er ljómandi fínt.
"Leiðtogi þeirra, Christian Kern núverandi kanslari, varaði í gær við fyrirhugaðri hægristjórn og vísaði til sögunnar."
Hann þarf að útskýra nánar.
"Flokkarnir tveir eru ennfremur sammála um að lækka skatta, draga úr regluverki og stemma stigum við afskiptum Evrópusambandsins af innanlandsmálum."
Íslenskir pólitíkusar geta lært sitthvað af þeim.
Stefnir í skarpa hægrisveiflu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2017 | 21:03
Ég vona að þeir hafi ekki borgað mikið fyrir þetta
Hve mikil mengun ætli hafi myndast við framleiðzlu þessarar græju?
Alvöru mengun meina ég þá, ekki bara eitthvert útöndunarloft.
Alltaf er það eitthvað... ef ekki þetta, þá frenólógía.
Draga koltvíoxíð úr andrúmslofti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2017 | 15:50
Á þessu eru ýmsar aðrar skýringar:
Sjá þessa frétt sem dæmi: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2017/10/11/11_gripnir_med_gull_i_endatharminum/
Eitt leiðir af öðru.
Gull og silfur í skólpinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2017 | 23:37
210 ár
Það er tíminn sem tæki bandaríkjamenn, á sama róli og undanfarin 35 ár, að ná okkur.
Svo miklu fleri hafa hlutfallslega verið drepnir hér af óðum manni í svona "kill spree." Það er *ef* enginn annar tekur uppá að drepa nokkra í einu.
Hugsið aðeins um það.
Bandaríkjamenn og byssurnar þeirra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2017 | 20:44
Eru þeir margir þar?
Ef svo er, hvers vegna?
Ef dísel-bílar væru skattaðir og tollaðir eins og bensínbílar, þá væru þeir ca 15-30% dýrari. Fer eftir ýmsu. Þetta eru sérhæfð fyrirbæri. Þeir eru ekki skemmtilegir í akstri, þeir eru gerðir til að draga, og vinna lengi.
Og fólk allstaðar í evrópu er í fíflaríi að nota þá í snatt.
Ef díselolía væri skattlögð eins og bensín, þá væri hún dýrari- svo er hér, við miklar óvinsældir.
Þar sem þetta tvennt kæmi saman, væri enginn að þvælast um á díselknúnum bílum nema þeir sem þess þyrftu. Og þá væri enginn að segja að það þyrti að banna þá sérstaklega.
Borgarstjóri vill banna díselbíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |