28.10.2018 | 12:10
Hann ætti að líta í eigin barm
"Ásmundur Einar Daðason, félagsmála- og jafnréttisráðherra, segir að skapa þurfi þá tilfinningu að hér á landi búi ein þjóð en ekki tvær þegar kemur að launauppbyggingu."
Miðað við allar lífsskoðanir, eins og þær koma fram í verkum þeirra, þá eru ráðherrar og alþingismenn ekkert hluti af þjóðinni. Þeir hafa enga sömu hagsmuni, virðist vera. Það er eins og þeir umgangist okkur ekkert.
Reyndar er eins og það sé ekki bara svo, að þeir geri sér enga grein fyrir okkar högum, heldur hati þeir okkur líka út af lífinu. Verk þeirra gefa það til kynna.
Segir hátekjuskatt koma til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2018 | 16:43
Jöfnuður er bara annað orð yfir fátækt
Ég man eftir hátekjuskatti. Hann lagðist á fólk með 6 milljóna árstekjur.
Tilvitnun: "Hins vegar segir hún liggja fyrir að markmið ríkisstjórnarinnar með breytingunum sé að þær leiði til aukins jafnaðar."
Tilvitnun 2: "Per il problema finanziario: NOI VOGLIAMO: a. Una forte imposta straordinaria sul capitale a carattere progressivo, che abbia la forma di vera ESPROPRIAZIONE PARZIALE di tutte le ricchezze."
Virkaði ekki þá, virkar ekki núna.
Aukinn jöfnuður alltaf markmiðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.10.2018 | 02:34
Japanska Ero-guro senan
Það mun vera stytting á "erotic grotesque nonsense," -lýsir fyrirbærinu fullkomlega- frasi sem var fundinn upp fyrir WW2 til að lýsa verkum Edogawa Rampo. Flettið honum upp, vel þess virði. "You only live twice" stal alveg slatta frá honum. Og "Grosse Point Blank" líka.
https://www.imdb.com/title/tt0074102/?ref_=nv_sr_1
Kvikmyndin er sannsöguleg, og alls ekkert ætluð sem klámmynd, frekar en neitt annað í Ero-guro deildinni. Sem er "erotica" (wiki: https://en.wikipedia.org/wiki/Erotica) en ekki klám. Það er munur. Það eru aðrir tendensar á bakvið.
Og þetta er ekkert sér-japanskt, japanir hafa bara nafn yfir svona lagað.
Það er þannig vel hægt að færa rök fyrir því að ítalska kvikmyndin Salo: 120 days of Sodom sé Ero-guro. Sú kvikmynd fellur að öllu leyti undir skilgreininguna. Og það er líka alveg einstaklega léleg klámmynd. De Sade var sennilega að reyna að búa til klám, en Pasolini var ekki að reyna neitt slíkt.
Það þýðir ekkert að mæla með klámi fyrir nokkurn. Það eru ekkert allir fyrir zebrahesta og dvergaklám, eða multi-racial lesbian threesome, eða hvað annað sem mönnum kann að hugnast.
Þú getur hinsvegar hiklaust mælt með Ero-guro fyrir hryllings-aðdáendur. Þeir munu kunna að meta það. Þeir eiga eftir að höndla "veldi tilfinninganna" og meta þá ræmu á alveg réttum forsendum.
Japönsk kvikmynd þótti of dónaleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2018 | 01:56
Ég hef lausn:
Smíðið geitina úr vír. Helst ryðfríum, en vír má svosem galvanisera eða jafnvel mála.
Markmiðið að engin kveiki í geitinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.10.2018 | 13:53
Bú - hiss
"Karlar gera merkilega hluti er mikilvægur og valdeflandi vettvangur [...] segir í yfirlýsingu stjórnenda Facebook-hópsins Karlar gera merkilega hluti, Sóleyjar Tómasdóttur, Hildar Lilliendahl og Sæunnar Ingibjargar Marinósdóttur."
Ég er ekki viss um að þær leggi sama skilning í orðið "valdeflandi" og ég.
"þær segja að hann ætti kannski að prófa sitt eigið meðal."
Hópur sem beinlínis bannar rökræður er ekki líklegur til að útskýra hvað þær meina með þessu.
Ég held lík að meðlimir þessa söfnuðar geri sér enga grein fyrir hvað lögfræði eða réttarríkishugmyndin gengur út á.
Reyndar gera það fæstir, en fleiri virðast sætta sig við það.
Jón Steinar prófi sitt eigið meðal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2018 | 15:45
Um ískyggilega glæpahneigð sjálfstæðisflokksins
Hér hafa þeir í trássi við lög fellt niður fasteignagjöld eldri borgara í mörg ár. Þetta gera þeir til þess að ellimenn geti haft það aðeins náðugra í ellinni. Vegna þess að eldri borgarar eru ekkert frægir fyrir það að vera sérlega auðugir.
Ljóst er að þetta er í algjöru trássi við stefnu stjórnvalda, og kolólöglegt.
https://eyjafrettir.is/2018/10/15/skattaafslattur-til-eldri-borgara-amaelisverdur/
Ég velti fyrir mér hvort það er ekki komin hefð á málið.
Þetta yrði það skemmtilegasta kærumál sem upp gæti komið. Hugsið aðeins um þetta.
14.10.2018 | 14:59
Fólk leggur við það hús sem það á erindi í
Ekki í "nokkurra mínútna fjarlægð."
Þetta heitir "bílastæðaskortur."
Sektað við höllina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2018 | 20:41
Hann skiftir sér af þessu vegna þess að...
Um daginn handtóku tyrkir einhvern bandarískan prest, og héldu honum sér til skemmtunar og yndisauka í djeilinu.
Trump leist illa á það og setti á þá viðskiftaþvinganir sem rústuðu efnahag Tyrklands. Svo tyrkir slepptu manninum.
Og nú er þá Trump sennilegast að sýna að tyrkir eru enn bandamenn... NATO og allt það.
Allt meikar sens í samhengi.
Trump hótar harðri refsingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2018 | 20:30
MBL er alveg að selja þennan gaur
Hann er hvatvís, hefur lýst aðdáun sinni á hermennsku, er fylgjandi almennri byssueign, afkastamikill á samfélagsmiðlum og hefur verið sakaður um kvenfyrirlitningu og rasisma: Hægri öfgamaðurinn Jair Bolsonaro, sem hlaut flest atkvæði í fyrstu umferð forsetakosninganna í Brasilíu, á sitthvað sameiginlegt með leiðtoga Bandaríkjanna, Donald Trump.
Og skoðum þetta nánar:
1: Hann er hvatvís,
Check
2: hefur lýst aðdáun sinni á hermennsku,
Q: Trump er erfingi mikilla auðæfa, komst undan herskyldu...
Man ekki til þess að hann hafi lýst sig andsnúnum hermennsku samt. Repúblikanar bera yfirleitt lágmarks virðingu fyrir hernum og þeim sem þar eru.
3: er fylgjandi almennri byssueign,
Það er í stjórnarskránni hjá kananum. Kjósendur Trump eru mjög hrifnir af henni.
4: afkastamikill á samfélagsmiðlum
Check
5: og hefur verið sakaður um kvenfyrirlitningu
Menn eru sakaðir um hitt og þetta, erfiðara er að fact-checka það.
6: rasisma
Við getum ekki farið að væna annan hvorn þeirra um slíkt, umfram það sem tíðkast almennt.
*Eins og Trump er hann leikari, frambjóðandi sem skilur lítið í almennum stjórnmálum, sem talar frjálslega, en hefur einhverra hluta vegna óútskýranlegan sjarma sem dregur að sér ákveðna tegund kjósenda
Þetta er allt jákvætt.
* kjósenda sem hneigjast til fasisma.
Hvað ættu þeir þá að kjósa þennan? Ég meina:
Q: er fylgjandi almennri byssueign
Q: Verð hlutabréfa í landinu hefur lækkað frá kosningunum um síðustu helgi og er óvissu um framtíð ríkisrekinna orkufyrirtæka landsins m.a. sagt um að kenna. Bolsonaro ítrekaði nefnilega áform sín um einkavæðingu.
Fasismi, ha? Þið vitið ekki hvað það orð þýðir.
(Rökin með því að hann sé fasisti eru hinsvegar þau að hann ætlar ekkert að hræra í eftirlaunakerfinu, og hann hyggst ekki einkavæða *öll* ríkisfyrirtækin.)
*En Junior segir þó að grundvallarmunur sé á stuðningsmönnum Bolsonaro og Trumps. Stór hluti þeirra sem kusu Trump var fátækt, hvítt fólk. Í tilfelli Bolsonaro er stuðningurinn mestur meðal millistéttar- og yfirstéttar fólks.
Djöfull er millistéttin þá stór þarna. Stendur algerlega undir nafni.
*Óttast er að mikil sundrung sé nú meðal Brasilíumanna ...
Já, þið tönnlist á því.
Miðað við liðið sem venjulega velst til valda þarna ú S-Ameríku, þá er þetta mikill öndvegismaður, sýnist mér.
Hvatvísi herforinginn vill á valdastól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2018 | 12:27
Mikið er þetta jákvæður náungi
Hann kemur kannski ekki öllu sem hann hugsar í orð, svo það þarf að fylgjast vel með, en hann er með margar tillögur.
Hann virðist hafa fengið Trump tilnað skifta um skoðun. Sem er áhugavert. Sem gerir Kanye West að valdamesta tónlistamanni í heimi.
Kanye gerði Trump nær orðlausan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |