30.12.2018 | 00:03
Þetta er að minnsta kosti 2% verðbólga
Ofaná þessa venjulegu 2-3% verðbólgu sem er alltaf.
Sem þýðir hækkun á verðtryggðum lánum, sem eru ennþá hlutur sem er til.
Einhver smá hækkun á persónuafsætti dekkar þetta ekkert. Það þarf að lækka tekjuskattinn mikið. Niður í 0%, ideal, en það verður aldrei.
Sjá, fyrir fólk með barn, þá er kolagjaldið alveg að éta það up, og meira til. Fólk með börn er semsagt að tapa á þessu. Fólk sem á engin börn tapar líka, meira, en það þarf ekkert að fara í húsdýragarðinn svosem.
Allur þessi peningur fer svo í ekkert.
Þeir geta gert ekkert rétt. 2009-2013 flashback. Vondir tímar framundan. Manngerð, heimatilbúin efnahagslægð. Í langan tíma.
Ef við svo lítum til útlanda, þá gengur vel í Póllandi, Rússlandi, Bandaríkjum Norður Ameríku, Kína... og allt er að fara á flug í Brazilíu og Chile, jafnvel Kólumbíu. Nokkur lönd í Afríku eru að pluma sig líka.
Ekki gengur svo mjög vel í Frakklandi, þaðan sem við fáum allar okkar heimskulegustu hugmyndir. Þar er allt í uppþotum ennþá. Það er það sem okkur vantar. Uppþot. Myndi kóróna þetta.
Allt gengur vel, nema í Evrópu.
Áfengi, tóbak og eldsneyti hækka í verði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.12.2018 | 12:39
Þetta segir mér ekkert
"Aldrei hafa fleiri verið drepnir með skotvopnum í Svíþjóð en á þessu ári, 44 hafa látist af völdum skotvopna það sem af er árinu."
Er það stærra hlitfall af heild? Ég meina, hefur fjöldi þeirra sem hafa verið myrtir með skotvopnum haldist í hendur við heildarfjölda myrtra?
Eða hefur morðum fækkað, en fleiri eru nú myrtir með skotvopnum?
"Lögreglan hefur þá einnig lagt meiri áherslu á baráttuna gegn skotvopnum sl. ár og hefur til að mynda lagt hald á 800 skotvopn það sem af er ári og þá hafa 299 einstaklingar verið handteknir vegna gruns um gróf eða alvarleg brot á vopnalögum."
Já. Gengin skulu hundskast til að myrða hvert annað með hnífum, handsprengjum og vélknúnum ökutækjum.
"Sænska lögreglan telur þessar breyttu áherslur m.a. hafa leitt til þess að það tókst að kæfa deilur milli tveggja glæpagengja í Rinkeby."
Þær deilur hafa varla verið alvarlegar þá.
Viðeigandi mynd
Aldrei fleiri skotnir til bana í Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 29.12.2018 kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2018 | 12:32
Það er svona þegar 70% af veggjaldinu er stolið
Enn og aftur: við höfum verið rukkuð um fjórbreiða brú, en fáum einbreiða.
Einbreiðar brýr sérstakt vandamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.12.2018 | 21:25
Afsakanir
Q: Ég verð bara að segja að mér ofbýður algjörlega þessi hamagangur og vægðarlausu svipugöng sem Dagur verður nú fyrir útaf þessu braggamáli.
Þetta er ekkert. Frakkar væru að henda í hann grjóti.
Og það væri rétt af þeim.
Q: "Jón segir að það sé vel þekkt að opinberar framkvæmdir fari yfirleitt fram úr áætlun, eða í 90% tilfella. Það er ekki gott. En það er yfirleitt ekki við spillingu eða vanhæfni fólks að sakast heldur er þetta kerfislægur vandi, einsog í svo mörgu hér á landi, þeas við erum með svo stjarnfræðilega lélegt regluverk að það bara býður uppá svona klúður,"
Lélegt fólk gerir lélegt regluverk - og fer svo ekki eftir því.
Nei, hér erum við að díla við einbeittan brotavilja, ekki einhvern "kerfislegan vanda." Það ma´reyndar líta á einbeitta brotaviljann sem kerfislegan vanda, vegna þess að það getur ekki talist eðlilegt að 90% af áætlunum standist ekki.
Eða hvað?
Eins og einhver sagði: heimska er afsökun... einu sinni.
Q: "Meira að segja Vigdís Hauksdóttir fékk fyrirsögn á RÚV um daginn. Hver er eiginlega í alvöru að pæla í því hvað henni finnst?"
Þeir sömu og eru að pæla í hvað Jóni Gnarr finnst?
Q: "Hún er td. ekki enn búin að svara því hvort formaðurinn hennar og þrír aðrir meðlimir flokks hennar eigi að segja af sér þingmennsku útaf yfirgengilegu fylleríis-rugli,"
Í ótengdum málum.
Nú getur Vigdís alltaf sagt að það sé alger óþarfi fyrir einhverja alka sem hún vinnur með að segja af sér vegna smámuna, meðan fjöldi meiriháttar krimma þarf ekki að gera það fyrir stórvægilegar sakir.
Ef Dagur þarf ekki að segja af sér, þá eru sexmenningarnir á kránni allt í einu eins og saklausir hvítþvegnir englar.
Q: Hvorki Dagur né Hrólfur eru vondir, spilltir eða heimskir. Langt í frá. Þetta er kerfislægur vandi, það vita það allir sem vilja.
Þeir hljóta að vera eitthvað combó af þessu, annað er beinlínis órökrétt. Dæmið gengur ekki upp ef Jón hefur hér rétt fyrir sér.
Q: "Þeir sem ekki skilja það hafa annað hvort ekki kynnt sér málið eða hreinlega þykjast ekki vita það til að ná einhverju fram sem þeir vilja.
Jón í afneitun?
Q: "Jóni þykir líka ömurlegt að horfa upp á þegar fólk og hópar nýta sér persónulegar aðstæður fólks til að koma á það höggi. Hann segir að ein helsta ástæða þess að Dagur hafi átt í erfiðleikum með að svara fyrir þetta sé sú að hann hafi verið að glíma við erfiðan sjúkdóm og sé tiltölulega nýkominn úr veikindaleyfi."
Það er dálítið ömurlegt að horfa á manninn skýla sér bakvið einhvern sjúkdóm.
Ef maðurinn er svona veikur, ætti það þá ekki að vera næg ástæða fyrir hann til að segja af sér? Fyrst hann er svo veikur að hann getur ekki unnið, augljóslega.
Q: "Ég held að þessi landlægi ruddaskapur og villimennska sé ein helsta ástæða þess hvað fólk er tregt til að þora að skipta sér af stjórnmálum og eina fólkið sem virðist þrífast þarna eru einhverjir fárveikir alkóhólistar,
Spot on. Og þegar við höfum fengið veika menn og vankaða, þá losnum við ekki við þá. Og við megum helst ekki ýte eftir því vegna þess að þeir eru svo góðir og ljúfir inn við beinið, og meina ekkert með því að féfletta okkur og skeina sig með öllum peningunum. Á hverju ári höfum við minna milli handanna, bara vegna skattheimtu, sem virðist ekki fara í neitt annað en spillingu.
Hvorki Dagur né Hrólfur eru vondir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.12.2018 | 09:20
Líkurnar nálgast 0
Það á enginn eftir að veðja móti mér ef ég veðja á að Dagur segi ekki af sér. Dautt mál.
En gefum okkur nú að borgarstjórnarmeirihlutinn yrði lostinn eldingu. Þá yrði að kjósa aftur. Ég held að Reykvíkingar myndu kjósa nýtt sett af alveg jafn lélegu fólki, sem myndi skandalisera alveg jafn mikið.
Það er hefðin. Mig grunar líka að það hafð orðið þar brain-drain, þeir sem hugsa amk hálfa hugsun hafa allir flutt til Hafnarfjarðar eða út á Reykjanes. Eða lengra.
Vörður kallar eftir afsögn Dags | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2018 | 20:14
Það má alveg ganga lengra
Hildur gæti til dæmis alveg hringt í lögregluna.
Skjalafals er jú ólöglegt. Og við höfum greinilega þarna meiriháttar samsæri.
Ég meina, fólk fór í djeilið fyrir að myrða Geirfinn ekki, svo því ekki fyrir Braggamálið?
Víkur sjálf ef Dagur víkur ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.12.2018 | 20:06
Það er fréttnæmt ef það er ekki yfir kostnaðaráætlun
Hvítir svanir og svartir hrafnar eru hvorki sjaldséðir né óvæntir.
Fleiri skýrslur vegna framúrkeyrslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.12.2018 | 19:16
Það er alveg hægt
... en ekki á þessum árstíma. Ágúst er góður tími. Eða bara hvenær sem er eftir leysingar. Þá kamstu vel þarna yfir á Hondu Accord eða öðru sliku.
Fórum þarna einu sinni á 1979 módel Chrysler LeBaron. Það gekk vel. Rakst aldrei niður.
Ætluðu á smábíl yfir Kjöl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.12.2018 | 05:36
Hann hlýtur að vera andsetinn af Steingrími J.
Við vitum öll að Steingrímur J er sérlega illur andi.
Hérna: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/19/horft_verdur_til_haekkana/
Q: "Við höfum boðað skattalækkanir í þágu þeirra sem eru í neðra þrepinu, lægri og millitekjuhópunum, en það er óskynsamlegt að fylgja því eftir ef kjarasamningar fara úr böndunum"
Hans eigin orð. Og svo segir hann:
Q: "Ég verð bara að lýsa furðu á því að menn telji ástæðu til að gefa út yfirlýsingar þegar ég bendi á hluti sem allir ættu að hafa skilning á..."
Hvaða fólk hefur hann eiginlega verið að umgangast? Engan sem ég þekki, sýnist mér. Venjulegt fólk vill fá borgað fyrir vinnu. Venjulegt fólk er ekkert hrifið af að fá minna útborgað vegna þess að einhver leftisti hefur ákveðið að ríkið þurfi peninginn meira.
Ætli hann viti hvers vegna fólk fer í verkfall á næsta ári? Ég býst við mótmælum. Jafnvel grjótkasti. Svo þetta verði ekki meðmæli.
Það þarf einhver að hnyppa í Bjarna og segja honum að halda sig hægra megin.
Furðar sig á yfirlýsingum um hótanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.12.2018 | 06:14
Það eru allt of margir ríkisstarfsmenn
... og lítið vit er í þeim.
"Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir áform ríkisstjórnarinnar um lækkun tekjuskatts verða endurmetin ef samið verði um óábyrgar launahækkanir í komandi kjarasamningum."
Við skulum endilega fjalla aðeins um óábyrgar launahækkanir, og https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/14/pakkaflod_a_althingi/ og aðra óábyrga útgjaldaaukningu ríkisins, https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/13/politiskum_adstodarmonnum_mun_fjolga/.
Við höfum boðað skattalækkanir í þágu þeirra sem eru í neðra þrepinu, lægri og millitekjuhópunum,"
Ég trúi því þegar ég sé það.
"Þá þarf að huga mjög vel að tímasetningu slíkra aðgerða. Þær eru hugsaðar til að greiða fyrir samningum en ekki til að greiða fyrir óábyrgum samningum, segir Bjarni."
Hann er ekkert að gera sig vinsælan. Það er verið að taka Macron á þetta.
"Tilefnið er óvissa um hagvöxt vegna óróa í ferðaþjónustunni."
Ef ríkið þvældist ekki fyrir öllu öðru, þá væri miklu meira að gerast hér, og minna að hafa áhyggjur af.
"Með því gætu tekjur ríkissjóðs á næsta ári reynst minni en áætlað var."
Þá þarf ríkið bara að sníða sér stakk eftir vexti. Eða kunna þeir sem þar ráða ekki að reka ríki?
Hvað erum við að borga einhverjum untermench meira en 2 milljónir á mánuði + útgjöld ef þeir ráða ekki einu sinni við það?
"Miðað við núverandi afkomumarkmið má ekki mikið út af bera til að afkoma fari undir gólf fjármálastefnunnar á næstunni."
Það er ljóðrænt orðað. En lausinin er jafn einföld og hún er þeim óframkvæmanleg: minnkið bara ríkið.
"Því er svigrúm til launahækkana hjá ríkinu lítið."
Það verður litið framhjá því, er ég viss um. Ég myndi ekki þekkja ríkið af öðru.
Horft verður til hækkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |