18.12.2018 | 15:37
Hefði geta verið verra
Hann hefði geta verið samfylkingarmaður.
Ef maður ber saman Nazismann sem slíkan og það sem samfylkingin hefur gert af sér, þá er það nefnilega svolítið Nazismanum í hag.
Sjá: https://simple.wikipedia.org/wiki/NSDAP_25_points_manifesto
Fangelsuð fyrir nýnasisma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.12.2018 | 17:06
Fleiri jólalög
Allir vita að Ítalir eru jólalegasta fólk í heimi. Þess vegna eru svo mörg jæolalög ítölsk.
Hér eru því nokkur sem verða væntanlega vinsæl jólalög í framtíðinni:
Það er bara formsatriði að búa til jólalegan texta.
Þetta er nú þegar með ágætis tillögu að hugljúfum jóla-texta.
Þessi tónlistarstefna hefur lengi verið vannýtt til jólalagagerðar.
Svo er þetta gamla góða lag, sem vantar bara texta til að jóla sig upp.
17.12.2018 | 16:06
VW rúgbrauð
Hippa-Rúgbrauðin seldust svo vel að þau voru farin að hafa slæm áhrif, svo framleiendur létu setja þennan toll á, kallaðan "hænsnaskattinn."
Þetta hentaði verktökum reyndar frekar illa, og hippum, en öllum er sama um hippa og verktaka.
Reyndar þá toppum við þetta í fávitahætti: Hybrid ökutæki eru skattfrjáls. Sem leiðir til þess að hybrid ökutæki seljast frekar, sem leiðir til þess að meiri gjaldeyrir flæðir úr landi vegna bílakaupa en annars.
Vegna þess að hybrid bíll kostar í alvöru 4 - 6 milljónir, á meðan normal bíll kostar bara 2.5 - 3.
Það er sama hvaða heimskupör kaninn gerist sekur um, við toppum hann alltaf.
Óvenjulegir bílatollar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.12.2018 | 04:06
Það var ljótt og þakið lak
Þess vegna reif hann það.
Horfið á myndina, og þið sjáið alveg að ég hef rétt fyrir mér.
Og nú á hann að smíða annan hönnunargalla.
Maður sleppur hvergi undan forræðishyggju-fávitum.
Gert að byggja eftirlíkingu af húsi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.12.2018 | 17:54
Tengdar fréttir
Af MBL: https://www.mbl.is/frettir/erlent/2018/12/16/vinsaeldir_macrons_dvina/
Í hvað fara öll þessi gjöld eiginlega sem við greiðum nú þegar?
Veggjöld samþykkt eftir áramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2018 | 21:33
Í tengdum fréttum:
https://www.rt.com/news/446551-scuffles-paris-yellow-vests/
Þetta eru hálfvitar. Allt saman. Þau eiga óeirðirnar skilið.
Regluverk Parísarsamningsins samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2018 | 23:05
Góðar fréttir, ekki slæmar
Seinast þegar Grænlandsjökull var minni var vel lífvænlegt þar, segja bæði ritaðar heimildir og fornleyfar.
Auka ræktarland er *ekki* neikvætt.
Hvað dettur ykkur í hug næst? Nostalgía eftir ginklofa og taugaveiki?
Munum missa Grænland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.12.2018 | 14:43
Það er enginn peningur til í þetta
Í tengdum fréttum: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/12/13/politiskum_adstodarmonnum_mun_fjolga/
Þetta útskýrir allt.
Spurði um hærri laun hjúkrunarfræðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.12.2018 | 17:11
Jólalög
Veltum um stund fyrir okkur einhverju öðru en leiðinlegu og niðurdrepandi dægurþrasi og jafnvel enn meira niðurdrepandi fréttum af pólitík og öðrum hörmungum.
Tölum um jólalög.
Jólalög þurfa ekkert nauðsynlega að vera andstyggilegasta tónlist sem boðið er uppá, þó flestir trúi öðru. Hún þarf heldur ekkert að vera úr takti við alla jólastemmingu og allt sem jólin standa fyrir, þó margir haldi annað.
Nei. Jólalög geta verið upplífgandi og uppbyggileg og þrungin merkingu og jákvæðum boðskap.
Hér er eitt besta jólalag heims, samið af jólalegustu hljómsveit jarðar: Gorgoroth:
Með einhverjum kristilegum skírskotunum, meira að segja.
Hér eru þeir. Sjá, þeir líta út alveg nákvæmlega eins og maður sér fyrir sér svona týpíska jólasveina. Jólasveinar sem halda mikið uppá KISS, augljóslega.
Hér er einmitt einstaklega jolalegt lag með KISS og einhverju bandi frá fjarskanistan sem heitir Momoiru Clover Z, sem er eitthvað sem er til:
Meðfylgjandi myndband er litríkt og furðulegt og jólalegt og örugglega fullt af öðrum hlutum.
Þú getur náttúrlega gert marga verri hluti yfir jólin en að hlusta á KISS. Eins og t.d. fengið stólpípu.
En aftur að jolalögunum:
Fátt kemur manni í betra stuð fyrir hátíðarnar en Mayhem. Svo er textinn líka svo hugljúfur, eins og Mayhem eru og hafa alltaf verið þekktir fyrir.
Svo er hér eitt fyrir þá sem eru vanir útsendingum jólarásarinnar, eins og hún var hér í denn:
Jóla! Þegar Jólarásin spilaði allt nema jólalög. Góður tími.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2018 | 16:24
Frakkar eru æðislegir
Við þurfum að taka þá okkur til fyrirmyndar.
Hjartað að hverfa vegna bráðnunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |