31.8.2018 | 07:51
Ég skora á Trump að kýla á þetta.
Því að stunda viðskifti gegnum þriðja aðila?
Hótar að ganga úr WTO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2018 | 06:51
Þetta er ein magnaðasta svikamylla sem fundin hefu verið upp
Viðskifti með "losunarheimildir."
Það eru margar aðferðirnar sem þeir finna upp þarna úti til að tappa fé af fólki.
Verð losunarheimilda í sögulegu hámarki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.8.2018 | 17:34
Endurtekningasöm láglaunastörf hverfa fyrst
*Ef yfirvöld koma upp hvatakerfi fyrir íslensk fyrirtæki til að fjárfesta í gervigreind, gæti það haft í för með sér fordæmalausan efnahagsblóma.
Ef yfirvöld þurfa að setja á hvatakerfi þá vitum við að gervigreind er ekki peninganna virði.
*Hann svaraði þeirri röksemd með því að eftir 30 ár verði sennilegast komin tölva sem er greindari en Einstein var.
MP4 spilarinn minn er greindari en sumir sem ég þekki.
Fólk er ekkert það gáfað að það sé eitthvert vesen að búa til tæki sem er því greindara.
*Lagt var upp með að svara spurningunni um hvort næsti yfirmaður okkar verði vélmenni. Svarið var nei.
Ef einhver tölva verður greindari en Einstein, þá er dagljóst að einhver tölva mun verða yfirmaður margra þessara mannvera sem eru á sama vitsmunaplani og Roomba.
Næsti yfirmaður verður ekki vélmenni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2018 | 16:57
Ég vitna bara í Pancho Villa
þegar hann var búinn að lesa Genfarsáttmálann: (með herkjum)
"Haldiði að þetta sé einhver leikur?"
Stríðsglæpir af hálfu allra aðila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2018 | 15:26
Það eru ekkert allir ríkir
Þar af leiðir að það er ekkert endalaus eftirspurn eftir "lúxusíbúðum," eða öðrum íbúðum á uppsprengdu verði.
Laun eru ekkert að fara að hækka, svo annaðhvort lækkar verðið eða þessar íbúðir bara seljast ekkert. Ja, ekki fyrr en fokríku fólki fjölgar í samræmi við fólksfjölda almennt. Sem gerist, er kenningin.
Ekki eru þau mikilvæg, vandamálin núorðið.
Hægir á sölu lúxusíbúða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2018 | 16:21
Það er þá ólíklegt að það verði framhald?
Kannski þetta slái í gegn í Kína.
Tekjur af mynd Spacey 14 þúsund krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2018 | 21:23
Brjóst & byssur
Þetta tvennt er ritskoðað á Facebook.
https://montreal.ctvnews.ca/facebook-censors-picasso-exhibit-montreal-museum-fights-back-1.4039341
Meira að segja stílfærð brjóst fá ekki að vera í friði. FB er ekki hrifið af kvenlíkamanum. Af einhverjum sökum.
Hef ég líka oft tekið eftir að menn sem eru að reyna að selja riffla og önnur skotvopn á FB eru ritskoðaðir með það sama.
Veltir maður sér fyrir þessu. FB er mjög skrítin skepna. Ekki mjög karlmannleg, né heldur ung í anda.
Hvernig höndla myspace, twitter og snapchat svona lagað?
19.8.2018 | 21:18
Af hverju er ekki fyrir löngu búið að sökkva þessum peyja?
Það hefur örugglega verið hægt, í kyrrþey. Eða bara fyrir opnum tjöldum á eins tilkomumikinn hátt og við verður komið.
Áður en hann veldur meira tjóni.
Vilja sökkva hvalveiðiskipunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.8.2018 | 21:14
Tilkomumikið að geta þetta
Þeir eru ljóslega vel græjaðir, þessir járn-leitarmenn.
Ekkert gagnast látnum járnið, svo það held ég þeir megi hirða það. Annars ryðgar það bara, mengandi sjóinn í leiðinni.
Ræna breskar stríðsgrafir í Asíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2018 | 20:48
Heimsku kommúnistar
Fyrst stöðva þeir að fólk eignist fleiri en eitt barn, svo þegar það stefnir fyrirsjáanlega í óefni, þá kemur bara annað valdboð.
Þeirra vandamál, búin til af þeim sjálfum.
Vilja skattleggja barnfáar fjölskyldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |