27.9.2018 | 17:21
... en ekki fyrr en eftir að það er búið að framleiða þá.
Framleiðzla á rafhlöðum er svo minnhiháttar umhverfisslys sem slíkt, kannski eitthvað í líkingu við Chernobyl.
Ekki það að mannfólk slyppi neitt þó það hætti með bílana, vegna þess að símarnir eru meira og minna byggðir umhverfis svona rafhlöður...
Þeir voru ekkert að spauga hér um daginn, náungarnir sem bentu á að Humvee væru umhverfisvænni en Prius.
Kolefnisfótspor rafbíla 5 sinnum minna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2018 | 19:47
Og ég var ekkert búinn að venjast "N1"
Þessu var bara breytt um daginn, finnst mér. Hvenær mun því verða breytt aftur í "Essó?"
Breytingar hjá N1 og nýtt nafn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2018 | 19:44
Pissað uppí vindinn aftur
Því það hefur alltaf reynst svo vel.
Mikilvægt er að Alþingi Íslendinga taki höndum saman til að stemma stigu við ópíóðafaraldri á Íslandi.
En er það í raun faraldur?
Fyrst segja þeir alltaf að til sé sívaxandi vandamál. Sem kannski er ekkert til. Svo fara þeir og þykjast leysa það. Þá verður til raunverulegt vandamál.
Það er mín reynzla af ríkinu.
... 29 dauðsföll til rannsóknar þar sem grunur leikur á að lyf hafi komið við sögu.
Í heildina? Aspirín meðtalið? (Það er víst banvænt.)
Sagði verkefnisstjóri lyfjamála hjá embætti landlæknis það vekja athygli að matsgerðum hafi fjölgað mjög; tilfellin hafi verið 32 allt árið í fyrra samanborið við 29 á fyrri helmingi þessa árs,
Semsagt, svo vitað sé. (Bendir til fleiri tilfella, ef eitthvað er - sem aftur bendir til ónákvæmni sem aftur gerir tölurnar svona vísbendingu frekar en staðreynd. Lágmark.)
...meðalaldur sé að lækka og margir einstaklingar sem hafa tekið talsvert af lyfjum stuttu fyrir andlát hafa ekki fengið þeim ávísað.
Einhverjir eru að drýgja tekjurnar, kannski.
Erum við að sjá tímabundna bólu - tízkusveiflu meðal fíkla?
Starfshópurinn skilaði af sér tillögum í níu liðum og miða þær að því að takmarka aðgang að ávanabindandi lyfjum, auka fræðslu hjá fagstéttum og almenningi, herða eftirlit með ávísanavenjum lækna, gera kröfur um bætta greiningu á ADHD, bæta aðgang að öðrum úrræðum en lyfjum við meðferð á ADHD, svefnvanda, kvíðaröskunum og langvinnum verkjum.
Síðan hvenær fóru menn að taka ópíum við ADHD?
Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og þingmaður Vinstri grænna, benti á vandann sem fylgi því að fólk fái ávísað lyfjum erlendis sem flutt eru til landsins árituð.
Er rangt að fólk leyti sér lækninga i útlöndum? Má lyfjagjöf ekki halda áfram eftir að komið er yfir landamærin? Ef fólk er með pappíra fyrir þessu, hver er vandinn?
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, sagði þörf á þjóðarsátt geng faraldrinum. Sagði hún að ef það reyndist rétt að auðveldara væri að verða sér úti um fíkniefni en að panta pítsu þurfi allir í samfélaginu að taka höndum saman.
Það er þannig. Það er vegna þess að viðskiftin eru ólögleg. Ef ÁTVR byði uppá 24 stunda heimsendingu á Ákavíti gæti ég trúað að drægi aðeins úr þessu. *Smávegis.*
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, töluðu báðar um bætt aðgengi að neyðarlyfinu Naloxon.
Það er varla við öllu. Hvað gerist ef það er gefið við einhverji öðru, fyrir slysni?
Bara spyr. Er ekki læknir...
Halldóra talaði sömuleiðis um að stjórnvöld þurfi að gæta þess að auka ekki frekar á vanda fíkla með aðgerðum sínum.
Blessuð vertu, þau hugsa ekkert um það.
Þá geti takmarkað framboð sömuleiðis skapað eftirspurn eftir t.d. heróíni sem opni á annan og hættulegri vanda.
Nah, sama vandamál, annað nafn.
Viljiði draga úr neyzlu á ópíumskyldum efnum? Gerið aðgang að öðrum efnum auðveldari. Dópistar elta bara vímuna. Sumum er sama hvernig hún fæst. Svo deyja þeir bara úr ofneyzlu á einhverju öðru í staðinn.
Þjóðarsátt gegn ópíóðafaraldri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2018 | 15:33
Alvarlegt kannski, en ekki óvænt
Svo margt sem ríkið gerir er byggt á röngum upplýsingum eða tilbúningi, svo það er alveg í samræmi að upplýsingar um hitt og þetta á vef Alþingis séu ónógar eða uppspuni.
Það er ekki bara eitt hótel í Nuuk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2018 | 23:26
Ekki allt skiljanlegt
Við þurfum sterkar heilbrigðisstofnanir og getum ekki svelt opinbera kerfið af því að aðrir þurfi á fé að halda, sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Jú víst, og ættu að gera það líka.
... og játaði þeirri spurningu þáttastjórnandans Kristjáns Kristjánssonar að sjálfstætt starfandi sérfræðingar þurfi að koma þar á eftir.
Ha? Á eftir hverju? Í hvaða samhengi? Þetta passar ekkert við það sem á undan er komið hér... en ég heyrði heldur ekki viðtalið.
Síðast þegar ég vissi var McKinsey ekki vinstri sinnað eða Ríkisendurskoðun í Vinstri grænum, sagði Svandís. Báðir séu hlutlausir greinendur, sem tali einum rómi, um vanda sem íslenska heilbrigðiskrefið búi við.
Ég veit ekki hvað neitt af þessu kemur nokkru við.
Viðreisn hafi ekki áhyggjur af vinstri slagsíðu
En það ættu þau einmitt að gera. En gera líklega ekki, verandi eins vinstri sinnuð og þau eru...
Í grunnin er kerfið sterkt, en erum til að mynda að horfa á eitt umfjöllunarefni sem eru biðlistar (1) á aðra höndina og oflækningar (2) á hina.
Tvö umfjöllunarefni.
Stjórnvöld þurfi að skerpa á því hvernig þau ráðstafi fé.
Hvað þýðir það eiginlega?
... Svandís [...] nefndi að mönnunarvandinn í heilbrigðiskerfinu sé nokkuð sem fari vaxandi í framtíðinni.
Ef þau vilja ekki borga fólkinu...
Ríkisendurskoðun ekki í Vinstri grænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.9.2018 | 23:16
Hnífar eru bannaðir í London...
...og í UK meira og minna.
Þeir voru bannaðir þegar morðin voru færri, vegna þessara færri morða.
Það var greinilega engin lausn. Ég hefði svosem geta sagt þeim það. Ekki það að þeir hefðu hlustað.
Þetta er samt ekkert mikið ennþá. Það er enn svigrúm fyrir miklu meira ofbeldi og læti.
Ekki fleiri morð síðan 2008 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2018 | 11:33
Auðvitað rifu þeir braggann
Hann var í kópavogi, og því engin leið að gera hann upp fyrir 400 milljónir.
Rifu bragga frá stríðsárunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2018 | 18:19
Það helsta sem kemur upp í hugann:
Fyrst þetta með Roxy music:
Þetta lag með Cindy Lauper kemur líka sterkt inn:
Og þetta: (það er þema)
Þetta var í helvíti krípí þáttum um *tengd efni,* skulum við segja:
Og loksins þetta, vegna þess að það á mjög svo við:
Ég er ekkert einn um að vera að hlæja að þessari vitleysu.
Hvaða rugl er í gangi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2018 | 16:55
Frávik?
Já, ég hef orðið var við mörg undarleg frávik á ævinni. Til dæmis hefur vatn stundum, en sjaldan, átt það til að vera blautt.
Umframkostnaður bragga óvenjulegt frávik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2018 | 18:23
Heimur grænnkandi fer
Af NASA: https://www.nasa.gov/feature/goddard/2016/carbon-dioxide-fertilization-greening-earth
Þeir hjá NASA halda að þetta sé af mannavöldum.* Ekki veit ég hvort það e rétt, en á móti virðist vera að mannkyn hafi verið að ausa talsvert meira af koltvísýringi út í andrúmsloftið á þessum tíma. Meira hvert ár, er mér sagt.
Mig grunaði svosem að þetta gæti gerst, alveg frá því ég frétti hvað CO2 gerir. Vita aðrir ekki af þessu?
Ef ekki, af hverju hlusta þeir ekki þegar þeim er tjáð þetta?
Ef svo er, hvers vegna er þeim svo illa við gróður?
*Það hefur hlýnað - það er nefnilega fleira en bara CO2 sem lætur blómin vaxa. Hlýindi og úrkoma eru líka atriði. En fólk virðist ekki skilja hluti eins og samspil tveggja eða fleiri þátta, allt á bara eina orsök í hugum fólks.