30.1.2019 | 16:00
... svo þetta er alvöru?
Ja hérna.
Það væri hægt að ljúga hverju sem er uppá þessa fávita.
Pálmatrén kosta 1,5 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2019 | 17:49
Ég veit ekkert um sögu Tælands
... fátt eitt um Búrma, Laos, Kambódíu, Pakistan osfrv.
Þess vegna býst ég ekki við að tælendingur viti nokkuð um sögu evrópu.
Viðeigandi mynd.
Var ókunnugt um sögu nasista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.1.2019 | 23:39
Sumt nýtt þarna, en kemur okkur ekkert við fyrir það.
Utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld munu gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að vilji venesúelsku þjóðarinnar nái fram að ganga og útilokar ekki að viðskiptasambandi Íslands við ríkisstjórn Nicolas Maduro verði slitið.
Eigum við viðskifti við Venezuela? Vissi það ekki.
Hafa þeir einhver efni á að borga okkur fyrir vörur?
Aðalatriðið er að ríki heims sameinist um það að gera það sem þau geta til þess að vilji fólksins nái fram að ganga, segir Guðlaugur Þór Þórðarson...
Ég vil nú minnst skifta mér af þeirra innanríkisdeilum.
Ástandið er óþolandi og við höfum gagnrýnt framgöngu stjórnvalda í Venesúela margoft. Þetta eru slíkar hörmungar að orð fá því ekki lýst. Það eru þrjár milljónir manna á flótta frá þessu landi sem er svo ríkt af auðlindum, en óstjórn og meingölluð hugmyndafræði hafa haft þessar skelfilegu afleiðingar, segir Guðlaugur Þór.
Mikið vildi ég að þau þarna á þingi lærðu eitthvað af veseni þeirra í útlandinu. Eða bara útlöndum almenn. Frakklandi til dæmis. Við erum að apa upp eftir þeim Macron og félögum allskyns ósiði.
Reyndar hef ég tekið eftir að stjórnvöld eru einstaklega nösk á ósiði til að apa eftir. Einusinni öpuðum við eftir svíum allskyns mistök. Svo höfum við apað eftir kananum mistök, á meðan við keppumst við að formæla það sem þeir gera þó rétt.
Við gerum það sem við getum til þess að ýta undir það að þessi forseti, sem hefur gengið fram með eins ólýðræðislegum hætti og hugsast getur, sitji ekki þarna áfram í óþökk eigin þjóðar.
Guðlaug er ekki alvara með þessu. Engum þarna inni er alvara með neinu af þessu.
Ástandið er óþolandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2019 | 15:44
Íróníu "gæsa" lappir
Er MBL að "reyna" að segja okkur eitthvað?
Kona hagkvæmasti bíllinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2019 | 18:35
Viðeigandi, af Youtube
Við lifum, við lærum.
Mikilvægt að sýna starfsmönnum nærgætni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2019 | 18:11
"Aðeins 1% allrar sölu verslunarkeðjunnar má rekja til klámblaða."
Það er sko hægt að skilja þessa setningu á tvo vegu: "Aðeins 1% allrar sölu verslunarkeðjunnar má rekja til klámblaða."
1: einhvernvegin laða klámblöðin að sér 1% allra viðskiftavina.
2: klámblöðin eru alveg hressilega vinsæll varningur þarna.
Ég eiginlega man ekki eftir þessum blöðum. Veit að það var hilla þarna með myndasögum, sá þær, en veitti þeim litla athyli (kann ekki að lesa hrafnasparkið). Var aðallega að spökulera í bjórnum og wiskýinu.
Klámblöð úr hillum verslana í Japan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.1.2019 | 21:23
"Get woke, go broke"
Af RT:
https://www.rt.com/usa/448820-gillette-toxic-masculinity-ad/
Af knwoyourmeme:
https://knowyourmeme.com/memes/events/the-best-men-can-be-gillette-psa
Þetta eru bara fyrstu viðbrögð af netinu. Og ég er ekkert sérstaklega að fylgjast með þessu.
MBL er greinilega miklum minnihluta - sem mér finnst afar jákvætt, það bendir til að mannkyni sé við bjargandi.
... upp á bak.
Gillette á hvers manns vörum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.1.2019 | 19:40
Einmitt þegar hann er að fá alla þessa fríu auglýsingu?
Tilkynnt var um mikinn niðurskurð hjá bílaframleiðendunum Jaguar Land Rover (JLR) og Ford í vikunni.
Það er samdráttur. Getur tengst hækkandi verði á vöru, úr takti við laun, sem hækka ekki með.
Þúsundum manna var sagt upp og mikil stefnubreyting er í kortunum í átt til framleiðslu á grænni valkostum og sjálfkeyrandi bílum.
Ég skil ekki sjálfkeyrandi bíla. Fyrst fólk vill ekki keyra sjálft, af hverju tekur það ekki taxa(Uber?
Við höfum orðið vör við það með bæði rafmagnsbíla og tengiltvinnbíla að framleiðslunni á þessum bílum hefur oftar en ekki seinkað miðað við þær upplýsingar sem fyrst voru gefnar út af framleiðendum. Aðspurður nefnir hann t.a.m. að framleiðslan á rafhlöðum í bílana sé að öllum líkindum flöskuháls þegar kemur að því að anna eftirspurninni.
Bíddu bara þar til það fera að bera á alvöru skorti á þessum jarðefnum sem þeir þurfa. Þá sérðu alvöru fall á eftirspurn.
Samkvæmt tölum frá Bílgreinasambandinu voru nýskráningar bifreiða 17.979 í fyrra en 21.287 árið 2017 og drógust saman um 15,6%.
Mettaður markaður + verðhæækun án allrar innistæðu. Þið megið þakka rikinu fyrir það síðarnefnda.
Gríðarlegar fjárfestingar fram undan í bílaframleiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.1.2019 | 23:13
Nú fyrst?
Við höfum öll vitað af honum í mörg ár - Aldís Schram málinu, þ.e.a.s. Það hefur ekkert verið talað um það í fleiri ár.
Af hverju er öllum skyndilega hætt að vera sama?
Metoo-hópur stofnaður um Jón Baldvin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |