30.12.2019 | 07:58
Kirkjugestir geta verið byssumenn líka
Inn á milli er stundum einhver sem maður getur borið virðingu fyrir.
*Árið 2017 skaut árásarmaður 26 til bana í kirkju í Sutherland Springs í Texas. Um ári síðar voru 11 skotnir til bana í mosku í Pittsburgh.
Kannski hafa þeir lært af reynzlunni?
*Byssur eru notaðar í um 36 þúsund dauðsföllum á ári í Bandaríkjunum.
1: Þetta er sérlaga kauðslega orðað.
2: Hvað kemur þetta málinu við?
*Fjöldaskotárásum hefur fjölgað mjög í landinu undanfarin ár.
Gefum okkur að það sé rétt. Nenni ekki að fletta því upp (frekar en fréttamður MBL, er ég viss um.) Bara þessi venjulegi fasista-áróður, ekkert nýtt.
Á sama tíma fer morðum fækkandi þarna úti ár frá ári. Merkilegt. Kannski vegna þess að fólk er tekið uppá að skjóta á glæpamenn?
Kirkjugestir skutu byssumann til bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2019 | 22:47
Nokkuð góður áratugur
*Bítlarnir, hipparnir, mannréttindabarátta, geimferðir, svarthvítt sjónvarp og stúdentaóeirðir gera þessi ár lifandi í hugum flestra sama hvort þeir hafi verið á staðnum eða ekki.
AD 2009-2019 voru reyndar bara 2 Bítlar og sjónvarpið komið í lit þvert á kröfur VG, en allt annað var til staðar.
*Fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra rammar áratuginn í raun nokkuð snyrtilega inn fyrir okkur þar sem verið er að reyna að koma hækjum undir viti borna umræðu í samfélaginu.
Maður þarf að vera í sérstöku andlegu ástandi til að hlæja að þessum brandara.
*Þróunin kristallast þegar íslenskar stofnanir og opinber fyrirtæki veita skattfé í að auglýsa hjá fyrirtækjum í Kaliforníu,
Sem er skandall sem enn hefur ekki verið farið nógu rækilega í saumana á.
*Áratugur samfélagsmiðlanna hófst með mikilli bjartsýni á lýðræðislega virkni þeirra. [...] Bjartsýnir byggðu því eðlilega vonir við að slíkt flæði á upplýsingum gæti verið banabiti illra alræðisafla.
Kínverjar hafa náð miklum árangri í að njósna um eigið fólk í gegnum farsíma til þess að grafa undan öllum tilhneygingum þess til uppreisna.
*stjórn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar Framtíðar og Viðreisnar sem liðaðist í sundur eftir að umræða um uppreista æru kynferðisglæpamanna komst í hámæli og tengdist áhrifamönnum í Sjálfstæðisflokki.
sem leiðir hugann að...
*Oftar en ekki færi þó líklega betur á því að nota lágstemmdari lýsingar en í tilfelli #metoo á það vel við. Frásagnir íslenskra kvenna af kynferðislegri áreitni og ofbeldi í öllum kimum samfélagsins í lok árs 2017 ollu miklum titringi og sársaukafullri sjálfsskoðun víða.
Tókuði eftir hvað allt metoo talið þagnaði fljótt þegar það kom á daginn að allir aðal perrarnir voru í Samfylkingunni?
Maður veltir fyrir sér...
*Eftir mikinn umræðuþunga í og þrýsting vísindasamfélagsins þótti töluverður árangur hafa náðst þegar skrifað var undir Parísarsamkomulagið árið 2015. (sic)
"vísindasamfélagsins." Þú gleymdir íróníu-gæsalöppunum.
*Fréttastreymi fólks eru full af fréttum af öfgum í veðri og tilfinningin er sú að maður lesi sífellt oftar um þurrka, skógarelda, hitabylgjur, flóð og óveður.
... seinna stendur:
*Það sem helst ratar í fréttir og telst til stórviðburða er gjarnan á neikvæðum nótum.
*facepalm*
*Greta Thunberg var rétt skriðin af leikskóla þegar áratugurinn hófst en ásjóna hennar er nú orðin íkónísk á heimsvísu. Hvað sem gerist er hún orðin að andliti baráttunnar svipað og Gandhi, Martin Luther King og Mandela voru á sínum tíma.
Einn af þessum er ekki eins og hinir. Gandhi, King og Mandela börðust fyrir almúgann. Gréta berst gegn almúganum.
*Vinstri-stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar náði að halda út heilt kjörtímabil á árunum 2009-2013...
Það er ekki enn búið að moka skítinn eftir þau.
*Efnahagshamfarirnar sem skóku heiminn undir lok síðasta áratugar settu augljóslega svip á þann sem eftir fylgdi. Þegar ósköpin gengu yfir sat ég námskeið á MA-stigi í sagnfræði um fasisma hjá Val Ingimundarsyni.
Sat eitthvað eftir?
*Barack Obama var fyrsti blökkumaðurinn til að gegna embættinu á árunum 2009-2017 og hans kosningarloforð var "Change we can belive in" . Bandaríkjaforsetar eru alltaf umdeildir og Obama var það vissulega en hann bar þó með sér mannúð, yfirvegun og ábyrgð sem hann mælti fyrir af þekkingu og innsýn. Yfirburðaræðumaður.
Eins og einn kani sem ég þekki sagði: þegar Obama tók við voru Bandaríkin í tveimur stríðum. Nú eru þeir í þremur.
En hann rak landið og stríðin vel. Setti landið ekki á hausinn. Þingið hindraði hann í að starta fjórða stríðinu, ens og minna er talað um.
*Trump er slétt sama um álit annarra og valdatíð hans hefur verið með ólíkindum sveiflukennd þar sem mannabreytingar í hæstu embættum þjóðarinnar hafa verið tíðar.
Hans mottó virðist vera: hvað sem virkar. Enda eru Bandaríkin nú ríkari en nokkru sinni fyrr.
Og það hefur dregið úr hernaði. Mörgum til ama, af einhverjum orsökum.
*Hér á Íslandi var þreytan á stjórnmálamenningu landsins hvergi sýnilegri en þegar grínistinn Jón Gnarr leiddi Besta flokkinn til sigurs í borgarstjórnarkosningum í byrjun áratugarins. Stefnumálin skiptu litlu máli. Fólk vildi bara eitthvað annað en hefðbundna stjórnmálamenn. Hans verður mögulega helst minnst fyrir að hafa náð að gera stjórnmálin mannleg á furðulegum tímum þar sem mikil reiði og gremja bjó í fólki eftir bankahrunið.
Og honum gekk ekki betur en svo að nú þorir enginn aftur að breyta til.
*Nýr forseti sem kjörinn var á tímabilinu hefur líka verið ferskur andvari í stjórnmálin...
Hvernig? Ég hef aldrei séð annað en gagnslausan já-mann. Hvað er svo ferskt við það?
*Í Bretlandi kaus fólk að ganga út úr Evrópusambandinu ...
Elítan var eitthvað á móti því, þess vegna tók það langan tíma. Nú er kominn alþýðu-maður í þetta.
*Staðreyndin er sú róttæk þjóðernisöfl hafa verið í mikilli sókn í evrópskum stjórnmálum á undanförnum misserum.
Fyrir þá sem hafa augun opin er ekkert skrítið við það.
Áratugur ólgu og breytinga á enda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.12.2019 | 17:05
Annáll ársins, annar hluti
Menning og listir.
Bók ársins:
Mueller report. Fáanleg á Amazon í mörgum útfærzlum. Eða frítt á netinu einhversstaðar, ef þú nennir að gúgla.
Sértrúarsöfnuður ársins:
Loftslags-Dauðaköltið.
Passið að þeir komist ekki í lím. Það er fyndið, en til ama.
Bíll ársins:
Væntanlegur á markað einhverntíma fyrir 2050. Kannski.
Tónlist ársins var öll flutt af einhverjum DJ Smurosti og skinku og hljómaði svona: "tik tik tik... tik tik... tik tik... (hvísl hvísl hvísl...) *ÓP!*" osfrv.
Kvikmynd ársins:
Þorsti.
Gífurlega hallærisleg og súr kvikmynd um vampýrur.
Hefur marga kosti, eins og - engir hestar, kindur, sviðakjammar eða lopapeysur sjást nokkru sinni í henni.
Hefur líka marag ókosti sem við lítum bara framhjá.
28.12.2019 | 16:40
Stuttur annáll árnsins
Byggt á skjáskotum.
8 febrúar, ekkert að gerast:
20 Júní, af hinu framtakssama lúsmýi:
11 Júlí, um hvar lík finnast og hvar ekki:
16. október, af rannsóknum á strutugleri, og hveru lengi má sjóða smábörn:
6 Október: skytturnar:
15 október: Ævintýri selsins Skúla:
Þetta voru fyrirsagnir. Það voru fleiri, en ég læt þessar nægja.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2019 | 23:11
Hugmyndir að nýjum jólalögum
Flest jólalög eru ítölsk, það vita allir. Ekkert leyndarmál.
Það gæti verið liðin tíð, menn virðast nenna að semja eitthvað af þessu sjálfir núorðið, sem er jákvætt, það var byrjað að slá talsvert hressilega í elstu jólalög.
En, ítalir verða alltaf jólalegir:
Liberpool. Hunde im kaffee. (eða eitthvað... kann ekkert í ítölsku.)
Opinberun Holdguðs. Kjötætu-lamb. Menn eru að jóla yfir sig.
Hvað með þetta?
Það eru jólabjöllur og allt. Textinn er bara formsatriði.
20.12.2019 | 13:23
Hver var samkeppnin?
Hér á landi er hæun nánast engin - bara Hilux, sem er með kraflausri vél sem var hönnuð einhverntíma þegar risaeðlur ráfuðu um héruð, og er grút-máttlaus eftir því. Og Isuzu, sem ég veit ekkert um annað en ég hef aldrei heyrt neinn kvarta.
Svo er hægt, ef iðnaðarmenn þykjast auðugir, að fá meira alvöru pallbíl frá USA.
Navarran, án þess að eta borið hana saman við annað en Hilux, er OK. Betri, vissulega, vegna þess að þetta er allt ný tækni.
En eftir það er samanburðurinn enginn.
Hilux vour einu sinni 200 kg léttari og með miklu öflugri 3 lítra dísel vél sem skilaði þeim vel áfram. Það var betri bíll.
Nissan Navara pallbíll ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.12.2019 | 16:34
Myndasaga, frí um helgina
Þið getið litið á þetta sem jólagjöf til ykkar: Af .co.uk., eða hér: ef brexit hefur skemmt uk hlekkinn þá virkar þessi.
17.12.2019 | 18:49
Hvernig borgaði hann fyrir kolefnisjöfnunina?
17.12.2019 | 18:44
14 af slysförum...
Kóbalt er eitrað.
En eins og ég hef áður sagt: öllum er sama um einhverja krakka í Afríku.
Þeir eru víst bara skemmtilegir þegar þeir eru að svelta, þá má draga þá framí dagsljósið og syngja um þá og hægan hungurdauða þeirra mikinn gleðisöng.
Annars er mikið kapp lagt á að halda Afríku fátækri. Ekki alltaf viljandi, en það verður að hugsa um að redda þessi kóbalti, vegna þess að fólk verður að hugsa um koltvísýringinn. Þið vitið, þetta efni sem gerir ekkert, en allir eru voða hræddir við núna. Það er mikið í tízku.
Segja tæknifyrirtæki meðvituð um barnaþrælkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.12.2019 | 18:36