30.9.2017 | 15:19
Miðað við skoðanakannanir munum við fá:
Launalækkun í formi verðbólgu
kaupmáttarrýrnun í formi skattahækkana
Stöðnun með íþyngjandi reglugerðum
og fullt af þrítugum sýrlenzkum flóttabörnum frá Lýbíu sem má ekki gagnrýna né fá til að aðlagast.
Öryrkjar fá *ekkert*
Aldraðir fá *ekkert.* Ekkert frekar en venjulega þ.e.a.s. Ja, þeir geta fengið launalækkun og skattahækkun eins og aðrir.
Við fáum líka lán til þess að fá hærri afborganir - eitthvað verða skattarnir að fara í, ekki fara þeir í vegegerð. Og athugið hér að þetta verða hærri afborganir greiddar af lægri tekjum, vegna þess að:
Útgerðin mun færast á færri hendur
Annar iðnaður mun færast á færri hendur eða hreinlega hverfa.
Peningar munu streyma úr landi.
Þetta er stefnan sem fólk vill. Virðist mér.
Sýnir að kjósendur vilja stefnubreytingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |